Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201628
Skeifudagurinn, keppni nemenda
í hrossarækt III við Landbúnað-
arháskóla Íslands á Hvanneyri, fór
fram á Mið-Fossum í blíðskapa-
veðri fyrsta dag sumars. Að hátíð-
inni stendur Hestamannafélag-
ið Grani á Hvanneyri og var þetta
í sextugasta skipti sem keppnin fer
fram. Í tilefni afmælisins var fyrrum
sigurvegurum keppninnar boðið að
koma og þeir heiðraðir. Ánægjulegt
að um rétt tæpur helmingur þeirra
gat mætt. Metfjöldi gesta var því á
hátíðinnni og voru áhorfendabekk-
ir reiðhallarinnar þétt setnir.
Nemendur í Hrossarækt III
kepptu um Gunnarsbikarinn, sem
gefinn er til minningar um Gunn-
ar Bjarnason fyrrum hrossarækt-
arráðunaut, en nemendur keppa í
fjórgangi. Úrslit urðu þau að í fyrsta
sæti varð Halldóra Halldórsdóttir á
Hróbjarti frá Höfðabrekku. Í næstu
sætum urðu Þorbjörg Helga Sig-
urðardóttir, Gabríela María Reg-
insdóttir, Karen Björg Steinsdóttir
og Jón Kristján Sæmundsson.
Félag tamningamanna gefur
verðlaun þeim nemanda sem þyk-
ir sitja hest sinn best og þau verð-
laun hlaut Þorbjörg Helga Sigurð-
ardóttir.
Eiðfaxabikarinn hlaut Kar-
en Helga Steinsdóttir en hann er
veittur þeim nemanda sem hlýtur
hæstu einkunn í bóklegum áfanga
(hrossarækt II).
Framfaraverðlaun Reynis eru
veitt þeim nemanda sem sýnt hef-
ur hvað mestan áhuga, ástundun
og tekið hvað mestum framförum í
Hrossarækt III. Þau verðlaun hlaut
Gabríela María Reginsdóttir.
Hina margrómuðu Morgun-
blaðsskeifu hlaut Þorbjörg Helga
Sigurðardóttir en næstu sæti skip-
uðu Gabríela María Reginsdótt-
ir, Halldóra Halldórsdóttir, Karen
Helga Steinsdóttir og Elísabet Ýr
Kristjánsdóttir.
Skeifudagurinn er einnig út-
skriftardagur nemenda í námskeið-
inu Reiðmaðurinn, sem er tveggja
ára starfsmenntanám ætlað þeim
sem vilja bæta reiðmennsku sína.
Alls brautskráðust 23 nemendur úr
tveimur Reiðmanns-námshópum,
annar frá Selfossi og hinn úr Kópa-
vogi. Reiðmannsnemendur keppa
um Reynisbikarinn sem gefinn er
ef fjölskyldu Reynis Aðalsteinsson-
ar, upphafsmann Reiðmannsnám-
skeiðsins. Efstur eftir forkeppni var
Bragi Viðar Gunnarsson á Brag frá
Túnsbergi. Úrslitin fóru þannig að
í fyrsta sæti varð Guðríður Eva Þór-
arinsdóttir á Framsókn frá Litlu-
Gröf. Í næstu sætum urðu þau Bára
Másdóttir, Gunnar Jónsson, Esther
Ósk Ármannsdóttir og Bragi Viðar
Gunnarsson.
Að lokinni keppni var kaffihlað-
boð í Ásgarði á Hvanneyri þar sem
hið vinsæla folatollahappdrætti fór
fram þar sem vinningar eru gjafa-
bréf fyrir handhafa að leiða hryssu
sína undir hina ýmsu stóðhesta og
búa til framtíðargæðinga. Dagur-
inn var vel heppnaður og skemmti-
legur.
bss/mm/ Ljósm. Gunnhildur Birna
Björnsdóttir.
Skeifudagurinn í sextugasta skipti
Vel á þriðja dug eldri skeifuhafa mætti á hátíðina.
Fánareið.
Gunnar Reynisson afhenti Reynisbikarinn. Gabríela María Reginsdóttir hlaut hann.
Halldóra Halldórsdóttir á Hróbjarti frá Höfðabrekku er hér með Gunnarsbikarinn.
Morgunblaðsskeifu hlaut Þorbjörg Helga Sigurðardóttir.