Skessuhorn


Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 10

Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 10
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201610 Eitt af vandamálum íslensks heil- brigðiskerfis er löng bið eftir lið- skiptiaðgerðum, svo sem mjaðma- og hnéaðgerðum. Tæplega fimm- tán hundruð manns eru nú á biðl- ista og hafa 80% þeirra beðið í leng- ur en þrjá mánuði. Meðalbiðtím- inn er rúmt ár og skilar sér í mikl- um kostnaði fyrir íslenskt samfélag. Hópur sex MBA nema í viðskipta- fræði og stjórnun við Háskólann í Reykjavík gerði nýverið lokaverk- efni þar sem hópurinn greindi þenn- an vanda á þeim þremur sjúkrahús- um á landinu þar sem slíkar aðgerð- ir eru framkvæmdar; Landspítalan- um, Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi og Sjúkrahúsi Akureyrar. Í greiningunni rannsökuðu þau hvað veldur þessum vanda og reyndu að koma með lausnir sem miða að því að draga úr þessum langa biðtíma og ná honum niður fyrir þrjá mán- uði. Hópurinn komst að þeirri nið- urstöðu að hagkvæmast væri að opna sérhæfða liðskiptadeild á E-deild- inni á HVE á Akranesi en sú deild hefur staðið lokuð um árabil. Gunn- ar Mýrdal hjartaskurðlæknir er einn þeirra mastersnema sem vann að verkefninu. Skessuhorn ræddi við Gunnar um málið. Mun fara aftur úr böndunum Heilbrigðisráðherra undirritaði ný- verið samninga við þrjár heilbrigðis- stofnanir um þátttöku þeirra í skipu- lögðu átaki til að stytta bið sjúklinga eftir liðskiptiaðgerðum. Gunnar seg- ir meðalbiðtíma í liðskiptiaðgerðum á Íslandi vera eitt til tvö ár en seg- ir tímann þó hafa styst aðeins með þessum samningum. En betur má ef duga skal. „Við gerðum heildræna úttekt á þessu máli og skoðuðum alla þrjá spítalana sem framkvæma þess- ar aðgerðir. Biðlistinn hefur rok- ið upp á síðastliðnum árum en að- gerðafjöldi hefur farið minnkandi af ýmsum ástæðum. Með skipulagða átakinu er verið að fara inn á sömu línu og var árið 2012, þetta verður sami aðgerðafjöldi og var þá,“ segir Gunnar. Hann segir verkefnið ekki hafa verið unnið í samstarfi við neina stofnun, heldur hafi verið leitað til þessara þriggja sjúkrahúsa. „Við vor- um að vinna þetta fyrir sjúklingana sem eru að bíða. Í verkefninu er vandamálinu lýst, svo köfuðum við ofan í málið og fundum lausn,“ seg- ir hann. Hópurinn notaði flókin reiknimódel til að skoða málið og til að meta þörfina eftir aðgerðum. Þau komust að þeirri niðurstöðu að átak heilbrigðisráðherra muni ekki skila miklum árangri til lengri tíma litið. „Það er til dæmis ekki gert ráð fyrir auknu innflæði í hnéaðgerðum og þetta mun því fara aftur úr bönd- unum. Það þarf að auka aðgerða- fjöldann meira og byrja á því helst í gær. Það er ekkert hægt að bíða eft- ir nýjum Landspítala eða slíkt,“ seg- ir hann. E-deildin vel nothæf Í rannsókn sinni gerði hópurinn ít- arlega greiningu á öllum þremur sjúkrahúsunum og skoðaði ýmis úr- ræði. Ein af þeim tillögum sem hóp- urinn kemur fram með er að opna E-deild HVE fyrir liðskiptiaðgerð- ir, sem væri hentug og ódýr lausn. „Þar væri hægt að fjölga aðgerðum um 350 á næsta ári. Þetta er minnsta fjárfestingin sem hægt er að fara í, það þarf bara að bæta við mannskap. Kostnaðurinn myndi hlaupa á um 25 milljónum við að opna deildina, það þarf bara að mála og kaupa ný rúm. Deildin er vel nothæf og það er hægt að gera þetta með litlum tilkostn- aði,“ útskýrir Gunnar. Hann segir þessa úrlausn leysa aðkallandi vanda. „Með skipulagða átakinu er verið að setja inn peninga til að kaupa ákveð- ið margar aðgerðir í viðbót, svo og svo margar á hverjum stað. Við setj- um dæmið upp þannig að þarna væri hægt að opna fimm daga deild. Þannig næst hagkvæmni í rekstri. Mönnunarmál ættu ekki að verða vandamál, þarna væri hægt að ná inn starfsfólki sem er orðið þreytt á brá- ðaati og vaktavinnu.“ Hann segir að ef það tækist að koma þessu í gang myndi verða til deild sem sérhæfir sig í mjaðma- og hnjáliðaskiptum. „Það sýnir sig úti í heimi að svona sérhæfðar deildir sem sinna þröngu sviði og ákveðnum málaflokki skila sér í því að starfsfólkið nær góðum fókus. Það nær að gera hlutina bet- ur og á hagkvæmari hátt enda ekkert annað sem truflar.“ Boltinn hjá ráðuneytinu og HVE Gunnar bætir því við að byrja mætti á að gera verkefnið til þriggja ára og sjá svo til. Ef ekki væri enn þörf á slíkri deild að þremur árum liðn- um, væri einfalt að loka henni aft- ur. „En mín kenning er sú að að- gerðum myndi bara fjölga á þessum þremur árum. Þarna væri þá komin sérhæfing, þekking og deildin búin að skapa sér nafn. Þarna væri kom- inn grundvöllur fyrir framtíðarlífi.“ Gunnar segir þó ekkert hafa ver- ið ákveðið í þessum efnum eftir að nemendurnir skiluðu verkefninu af sér og getur ekki svarað því hvort líklegt sé að af því verði að E-deild- in verði opnuð á nýjan leik. „Þetta er bara skólaverkefni og flest slík verk- efni fara bara ofan í skúffu eftir kynn- ingu. En við kynntum verkefnið vel, bæði hjá Landlækni og ráðuneytinu. Þar stendur verkefnið núna og það þarf að vinna þetta áfram.“ Hann segir málið vera undir ráðuneytinu og Heilbrigðisstofnun Vesturlands komið. „Við sjáum líka fyrir okkur að þetta gæti verið samstarf hjá spít- ölunum. Er kerfið ekki fyrir sjúk- lingana? Við spyrjum okkur að því,“ segir hann að endingu. grþ Vilja opna E-deildina fyrir liðskiptiaðgerðir Húsnæði fyrrum E-deildar Sjúkrahússins á Akranesi var nýlega uppgert þegar starfseminni var hætt. Lítið er talið kosta að opna húsnæðið á nýjan leik fyrir þessa starfsemi. Hér til hægri má sjá umrætt húsnæði fyrrum E-deildar. Ein af þeim skýringarmyndum sem birt er í skýrslu hópsins. Graf þetta sýnir að fólki á biðlistum fjölgar umtalsvert á hverju ári. Hópur meistaranemenda við Háskólann í Reykjavík stingur upp á því að opna E - deildina á nýjan leik og nýta hana sem fimm daga deild fyrir liðskiptiaðgerðir. Reiknistofnun Háskóla Íslands fók í síðustu viku í notkun nýja ofurtölvu sem mun stórefla rannsóknir á fjöl- mörgum vísindasviðum. Ofurtölvan opnar möguleika til rannsókna sem byggjast á þungum tölvureikningum við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. „Reiknifræði (computatio- nal science) er ört vaxandi svið innan vísindarannsókna, stundum sett fram sem þriðja rannsóknaaðferðin auk tilrauna og kennilegra rannsókna. Ís- land hefur verið eftirbátur nágranna- landanna á þessu sviði en nú er stig- ið stórt skref í þá átt að jafna stöðu íslenskra vísindamanna. Allir starfs- menn og nemendur við Háskóla Ís- lands og Háskólann í Reykjavík, sem vinna í rannsóknum þar sem þungir tölvureikningar koma við sögu, munu geta hagnýtt sér nýja tölvubúnaðinn,“ segir í tilkynningu frá HÍ. Sem dæmi um hagnýta notkun of- urtölvunnar má nefna reikninga á afoxun koltvíoxíðs með rafefnafræði sem gæti leitt til þess að unnt verði að nýta það til að framleiða eldsneyti, reikninga á eiginleikum og ferlum í sólhlöðum til að finna betri efni til að hanna og þróa ódýrari og skilvirk- ari sólhlöður, reikninga á nýstárleg- um rafeindakerfum og segulkerfum sem opna möguleika á að hanna nýjar gerðir íhluta (devices) og úrvinnslu á fjarkönnunarmyndum frá gervihnött- um sem varða fjölmarga hluti á jörðu niðri, þ.m.t. breytingar á jöklum, haf- ís og hegðun eldfjalla, t.d. í aðdrag- anda eldgosa. Reiknistofnun Háskóla Íslands mun sjá um viðhald og rekst- ur nýju ofurtölvunnar. mm Reiknistofa HÍ tekur í gagnið nýja ofurtölvu Sæþór L. Jónsson, forstöðumaður Reiknistofnunar Háskóla Íslands við nýju ofur- tölvuna. Ljósm. ki. Bætt hefur verið nýrri skráningu í WorldFeng, upprunaættbók ís- lenska hestsins, en það er skráning á umráðamanni hvers hests. „Sam- kvæmt nýlegum reglum Evrópu- sambandsins um hestahald og vegna þess að WorldFengur virkar sem raf- rænt hestavegabréf hér að landi, er nauðsynlegt að taka upp skráningu á umráðamanni hrossa. Umráðamað- ur hestsins er alltaf einn aðili og er í raun umsjónarmaður hestsins,“ seg- ir í tilkynningu frá Matvælastofnun. Umráðamaður er í flestum til- vikum sami aðili og skráður eig- andi en vegna eftirfarandi þátta þarf að skerpa á nokkrum atrið- um: Ef margir eru skráðir eigend-• ur þá þurfa eigendur að senda inn tilkynningu um skrán- ingu á einum umráðamanni (Enginn er skráður umráða- maður hrossa í eigu fleiri en eins aðila fyrr en eigend- ur hafa sent inn tilkynningu, eða skráð í heimarétt, hver sé umráðamaður hrossins). Ef skráður eigandi er und-• ir lögaldri – Þá þarf einnig að senda inn tilkynningu um skráningu á umráðamanni. Ef eigandi er ekki staðsettur • í sama landi og hrossið – t.d. útlendingar sem eiga hross hér á landi. • Þá tekur Matvælastofnun fram að ef um eigendaskipti er að ræða á hestinum, verður hinn nýi eigandi sjálfkrafa skráður umráðamaður ef atriðin að ofan eiga ekki við. Þá verður það á ábyrgð umráða- manns að skila inn skýrsluhalds- upplýsingum á hverju hausti. Í því felst að skrá eða bera ábyrgð á skráningu um afdrif hrossa, fyljun og folaldaskráningu þeirra hrossa sem umráðamaður hefur umráð yfir. Jafnframt verður gert auð- veldara að skila inn haustskýrslu til Matvælastofnunar í gegnum heimarétt WorldFengs og verður það á ábyrgð umráðamanns. Með þessu móti er reynt að tryggja að gerð sé rétt grein fyrir öllum hrossum í landinu við búfjáreftirlit í samræmi við lög um búfjárhald. mm Hertar reglur um skráningu umráðamanns hrossa Nokkrir glaðbeittir hestamenn í ferð við Hreðavatn. Ljósm. úr safni Skessuhorns sem tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.