Skessuhorn - 27.04.2016, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201612
Freyjukórinn í Borgarfirði og
Karlakórinn Söngbræður halda
sameiginlega tónleika í Reykholts-
kirkju laugardaginn 30. apríl kl.
16:00. Á dagskránni eru skemmti-
leg lög úr ýmsum áttum, bæði
klassísk kóralög og sígild dægur-
lög. Kórarnir munu fyrst syngja í
sitt hvoru lagi, en taka að lokum
nokkur sameiginleg lög.
Freyjukórinn í Borgarfirði var
formlega stofnaður haustið 1990.
Fyrsti stjórnandi kórsins var Bjarni
Guðráðsson organist og bóndi í
Nesi í Reykholtsdal. Árið 1998
tók Zsuzsanna Budai tónlistar-
kennari við stjórn kórsins og hefur
stjórnað honum síðan. Freyjukór-
inn hefur staðið fyrir margs kon-
ar uppákomum í gegnum tíðina í
samstarfi við aðra listamenn inn-
an héraðs og utan, boðið kórum til
samstarfs um tónleikahald og þeg-
ið boð frá öðrum kórum svo fjöl-
breytnin sé sem mest. „Syngjandi
konur á Vesturlandi“ er viðburður
sem Freyjukórinn hefur staðið fyr-
ir og konur alls staðar af Vestur-
landi hafa sótt vel. Þessi viðburð-
ur hefur verið haldinn í samstarfi
við Kristjönu Stefánsdóttur söng-
konu. Kórinn hefur haldið tón-
leika erlendis m.a. í Ungverjalandi
og Ítalíu og næsta vor er svo stefn-
an tekin á Írland og er mikil til-
hlökkun komin í hópinn. Kórinn
er styrkþegi Uppbyggingarsjóðs
Vesturlands.
Karlakórinn Söngbræður var
stofnaður 1978 og var fyrsti stjórn-
andi hans Sigurður Guðmundsson
organist og bóndi á Kirkjubóli í
Hvítársíðu. Síðar voru þeir Jacek
Tosik Warsawiak og Pavel Mana-
sek stjórnendur, en hin síðari ár
hefur Viðar Guðmundsson hald-
ið um tónsprotann. Kórinn hefur
haldið fjölda tónleika hér á landi
í gegnum tíðina og hefur sungið í
Póllandi, Tékklandi, Austurríki og
Írlandi. Kórinn hefur hlotið styrki
frá Menningarsjóði Vesturland
og nú Uppbyggingarsjóði Vestur-
lands og frá Menningarsjóði Borg-
arbyggðar, en jafnframt var hon-
um veitt viðurkenning frá Minn-
ingarsjóði Guðmundar Böðvars-
sonar og Ingibjörgu Sigurðardótt-
ur. Efnisskrá kórsins hefur löngum
einkennst af léttri tónlist, en kór-
inn hefur flutt hefðbundin karla-
kórslög auk sígildra dægurlaga.
Ef eitthvað er þá verður tónlistar-
flutningur kórsins alltaf fjörugri,
sem vonandi hefur, að minnsta
kosti fyrir suma, meira skemmt-
anagildi. Allir eru hjartanlega vel-
komnir.
-fréttatilkynning
Freyjukór og Söngbræður saman með tónleika
Elín Elísabet Einarsdóttir er ungur
teiknari úr Borgarnesi. Hún lýkur
um þessar mundir diplómanámi
við teiknideild Myndlistaskólans
í Reykjavík. Lokaverkefni Elínar
er teiknuð myndabók og hyggur
hún á almenna útgáfu bókarinnar
á næstu misserum. „Nýlega varði
ég nokkrum vikum á Borgarfirði
eystri við að teikna fólk og um-
hverfi á staðnum. Afraksturinn af
þeirri vinnu er uppistaðan í bók-
inni Onyfir sem kemur út í maí,“
segir Elín. Titillinn er vísun í mál-
notkun bæjarbúa, sem tala gjarnan
um að fara onyfir (ofan yfir) þegar
þeir koma til Borgarfjarðar, t.d. frá
Egilsstöðum.
Aðspurð hvers vegna þessi bær
varð fyrir valinu segir Elín að leið
hennar hafi legið þangað óvænt
fyrir nokkrum árum. „Haustið
2011 vantaði mig og vinkonu mína
vinnu í rúman mánuð. Við hringd-
um í Fiskverkun Kalla Sveins á
Borgarfirði eystri, aðallega af því
að okkur fannst nafnið á fisk-
verkuninni fyndið. Það vildi svo
skemmtilega til að hann var stadd-
ur á kaffihúsi þar í bæ með Stebba
á Litlu-Brekku á Mýrum [Stefáni
Ólafssyni]. Við fengum því óvænt
meðmæli þá og þegar og vorum
síðan ráðnar,“ segir Elín. „En það
var algjör vendipunktur að fá þessa
vinnu. Síðan hef ég snúið þangað
aftur á hverju ári í nokkrar vikur
til að vinna þó það sé varla hægt að
komast lengra að heiman án þess
að fara úr landi,“ bætir hún við.
Hversdagsleikinn er
sérstakur
Þegar Elín dvelur fyrir austan hefur
hún jafnan skissubókina meðferð-
is. Viðfangsefni bókarinnar Onyf-
ir er nefnilega daglegt líf á Borgar-
firði eystri. Blýants- og vatnslita-
teikningar segir hún að henti því
viðfangsefni vel. „Mig langaði að
fanga hversdagsleikann og fannst
þetta rétta formið til þess. Mynd-
irnar eru mikið teiknaðar á staðn-
um og ég var alltaf með skissubók-
ina meðferðis. Ég fór í fiskverk-
unina á staðnum og þetta hentaði
mér vel til að fanga augnablikið,“
segir hún. „Þarna var allt niðri á
jörðinni og ég reyndi að fanga bara
það sem ég sá hverju sinni.“
Hún segir að verkefnið hafi
höfðað til hennar. Hversdags-
leikinn í þorpinu á Borgarfirði
eystri hafi verið skemmtilegt við-
fangsefni. „Mannlífið á Borg-
arfirði er magnað. Þar er til að
mynda að finna gælutjaldinn Bald-
ur sem svarar kalli og étur lifur í
fiskverkuninni. Allir vita yfirleitt
hvar allir aðrir eru staddir út frá
því hvar bíllinn þeirra er og bæj-
arbúar halda móttökuathöfn fyrir
lundann á vorin,“ nefnir hún sem
dæmi. „Þetta langaði mig að fanga
með teikningunum. Þennan sér-
staka hversdagsleika á Borgarfirði
eystri,“ bætir hún við.
Jákvæð viðbrögð fólks
Hún telur að almennt mætti meira
vera gert af því að teikna mannlíf-
ið og hversdagsleikann. „Fólk hef-
ur áhuga á að skoða og að fá list-
ræna sýn á eitthvað hversdagslegt
sem það þekkir,“ segir hún. „Við-
brögð fólks við því að ég væri að
teikna það voru mjög jákvæð.
Fólki fannst skemmtilegt að sjá sig
á mynd þegar ég sýndi því teikn-
ingarnar og margir urðu hissa, en
á góðan hátt,“ segir Elín og bætir
því við að Borgfirðingar eystra hafi
sýnt verkefninu mikinn áhuga. „Ég
ætla að halda sýningu þar í kring-
um Bræðsluna sem er í lok júlí,“
segir hún. Fyrst mun hún þó sýna
verkin á útskriftarsýningu Mynd-
listaskólans í Reykjavík sem verður
opnuð 12. maí næstkomandi.
Þar að auki verður vitanlega
hægt að fletta í gegnum verk
Elínar í bókinni Onyfir sem kemur
út í maímánuði. Áhugasömum er
bent á að þessa dagana stendur yfir
hópfjármögnun fyrir útgáfu bók-
arinnar á Karolina Fund. Nánari
upplýsingar um bókina má finna
á https://www.karolinafund.com/
project/view/1343.
kgk
Elín Elísabet gefur út myndabók
Langaði að fanga hversdagsleikann á Borgarfirði eystri
Elín Elísabet Einarsdóttir, teiknari úr Borgarnesi.
Borgarfjörður eystri er viðfangsefni bókarinnar Onyfir.
Fiskverkunarfólk að störfum í Fiskverkun Kalla Sveins.