Skessuhorn - 27.04.2016, Side 17
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2016 17
Verkalýðsfélag Akraness, Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar,
VR, FIT Félag iðn- og tæknigreina, Kennarasamband Íslands og
Sjúkraliðafélag Íslands standa fyrir dagskrá á hátíðar- og
baráttudegi verkafólks 1. maí
1. MAÍ
AKRANESI!
Félagsmenn fjölmennið!
Safnast verður saman við Kirkjubraut 40, kl. 14:00 og genginn
verður hringur á Neðri-Skaga. Undirleik í göngu annast
Skólahljómsveit Akraness.
Að göngu lokinni verður hátíðardagskrá í sal
Verkalýðsfélags Akraness á þriðju hæð Kirkjubrautar 40.
Fundarstjóri:
Vilhjálmur Birgisson
Ræðumaður dagsins:
Drífa Snædal
Kvennakórinn Ymur
syngur nokkur lög
Kaffiveitingar
Athugið! Frítt í bíó fyrir börnin
í Bíóhöllinni kl. 15:00
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Háskólinn á Hólum
Hagnýtt háskólanám
• Ferðamálafræði
• Viðburðastjórnun
• Fiskeldisfræði
• Reiðmennska og reiðkennsla
Tækifærin eru í okkar greinum
Hólaskóli -
Háskólinn á Hólum
Hólum í Hjaltadal 551 Sauðárkrókur
Sími 455 6300 holaskoli@holar.is www.holar.is
ný
pr
en
t
0
2
/2
0
16
Háskólasamfélag með langa sögu
Hólar í Hjaltadal er í senn mikill
sögustaður og útivistarparadís.
Háskólinn á Hólum er lítill en
öflugur háskóli sem sinnir kennslu
og rannsóknum á sviði ört
vaxandi atvinnugreina.
w
w
w
.h
ol
ar
.is
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
VS Tölvuþjónusta ehf. á Akra-
nesi fékk nýverið staðfesta alþjóð-
lega upplýsingaöryggisvottun á
starfsemi sína á Íslandi samkvæmt
staðlinum ISO 27001. Um er að
ræða alþjóðlegan staðal frá vott-
unarstofunni BSI og felur vottun-
in í sér að fyrirtækið uppfyllir fyr-
irfram staðlaðar kröfur sem byggja
á árlegum úttektum á fyrirtæk-
inu. VS Tölvuþjónusta hefur verið
starfandi frá því í júlí 2014 þegar
eigendur fyrirtækisins, Valdimar
Þór Guðmundsson og Sigurþór
Þorgilsson, tóku við þeim hluta
af rekstri Tölvuþjónustunnar Sec-
urstore ehf. sem sneri að hýsingu
á tölvubúnaði, rekstrarþjónustu
og skýjalausnum. Þá er VS Tölvu-
þjónusta þjónustu- og umboðsað-
ili fyrir fyrirtækið Keepitsafe, fyr-
irtæki staðsett í Írlandi sem keypti
afritunarþjónustu Securstore.
„Við erum fyrirtæki sem getur
aðstoðað við alla þjónustu í kring-
um tölvur, tölvubúnað og rekstur
tölvukerfa fyrir stór og smá fyrir-
tæki.Við getum því veitt hýsingu,
þjónustu og gott aðgengi að sér-
fræðiþjónustu,“ segja Valdimar
og Sigurþór í samtali við Skessu-
horn. Þeir segja vottunina mikinn
áfanga, enda sýni hún að fyrirtækið
fylgi ákveðnum reglum og ferlum
varðandi öryggi upplýsinga. „Það
tók hátt í ár að fá vottunina end-
anlega. Svo er henni haldið við,
það kemur úttektarmaður til okkar
á hverju ári sem tryggir að starfað
sé eftir þessum ferlum,“ segja þeir.
Til að fá vottunina þurfti fyrirtæk-
ið að innleiða ákveðið stjórnkerfi.
Í tilfelli VS Tölvuþjónustu þá nær
stjórnkerfið utan um allan rekst-
ur fyrirtækisins en það er algeng-
ast að fyrirtæki fái aðeins vottun
á takmarkaðan hluta starfseminn-
ar. „Við erum einnig búnir að skil-
greina allar hættur sem við teljum
að geti haft áhrif á reksturinn og
erum búnir að hugsa upp og inn-
leiða ýmsar fyrirbyggjandi aðgerð-
ir. Við þurfum að vita hvað er hægt
að gera ef rafmagnið fer af, ef það
er brotist inn, gerðar tilraunir til
upplýsingastuldar eða ef við skyld-
um lenda í eldsvoða eða vatnstjóni,
svo dæmi séu tekin. Það þarf að
hugsa fyrir þessu öllu og gera að-
gerðaráætlanir. Við erum því ávallt
í viðbragðsstöðu og sífellt á tánum
við að finna nýjar leiðir til að fyr-
irbyggja að gögn tapist.“ Sigurþór
og Valdimar segja að ekki sé gerð
krafa um að fyrirtæki í tölvugeir-
anum hafi þessa alþjóðlegu upplýs-
ingaöryggisvottun. „Almennt eru
ekki mörg fyrirtæki á Íslandi sem
hafa þessa vottun. En við leggjum
mikið upp úr því að hafa þetta til
að sýna fram á að við tryggjum ör-
yggi til okkar ýtrasta. Vottun sem
þessi er mikils metin og vel þekkt
í alþjóðlegu samhengi. Með þessu
erum við líka búnir að sýna fram
á að við erum vel samkeppnishæf-
ir á erlendum markaði þar sem eru
gerðar mun strangari kröfur um
slíkar vottanir.“
grþ
VS Tölvuþjónusta á
Akranesi fær
alþjóðlega vottun
Valdimar og Sigurþór með vottunina.