Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 20
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201620
Nú hefur leikskóladeildin Eldhamr-
ar verið opnuð í Grunnskóla Grund-
arfjarðar. Það hefur verið þétt setið
í leikskólanum Sólvöllum undanfarið
og því var brugðið á það ráð að opna
deild innan grunnskólans fyrir elstu
nemendur leikskólans. Mánudaginn
25. apríl röltu nemendur í 5. og 6.
bekk grunnskólans niður á leikskóla
og fylgdu fyrstu nemendum fimm ára
deildarinnar upp í grunnskólann og
sýndu þeim nýju skólastofuna þeirra.
Nemendur í fimm ára deildinni eru
sex talsins en þeim mun fjölga tals-
vert næsta haust þegar næsti árgang-
ur kemur. Það var kátt á hjalla þegar
fréttaritari leit inn í stofuna til þess-
ara nýjustu nemenda skólans og ekki
var hægt að sjá annað en að krakk-
arnir væru hinir sprækustu. tfk
Fengu verðandi
nemendur í heimsókn
Tónlistarfélag Borgarfjarðar fagn-
ar fimmtíu ára afmæli á þessu ári.
Af því tilefni hefur verið efnt til tón-
listarhátíðar í Borgarnesi fimmtu-
daginn 5. maí næstkomandi. „Það
verða haldnir ýmsir smátónleikar,
eða örtónleikar, á klukkustundar-
fresti allan daginn. Tónleikarnir
verða haldnir víðsvegar um bæinn,
svo sem í kirkjunni, húsnæði tónlist-
arskólans, hjúkrunarheimilinu Brák-
arhlíð, Safnahúsi Borgarfjarðar og
Landnámssetri,“ segir Jónína Ei-
ríksdóttir í samtali við Skessuhorn.
Alls verða haldnir tíu mismundandi
tónleikar og byrja þeir á heila tím-
anum frá klukkan 11 fyrir hádegi til
klukkan 20 um kvöldið. Tónleikarnir
verða allir um 40 mínútna langir. Að
sögn Jónínu verða flytjendur af ýms-
um toga en eiga það þó sameiginlegt
að vera Borgfirðingar. „Þetta verða
héraðsmenn sem fram koma. Tón-
listarskólinn mun til dæmis flytja
kveðju til félagsins, enda var það
fyrsta verk þess að stofna tónlistar-
skólann 1967.“ Þá koma bæði fram
ungir og eldri tónlistarmenn og kór-
arnir, Söngbræður, Freyjukórinn og
Gleðigjafar, kór eldri borgara í Borg-
arnesi og nærsveitum. „Borgarnes-
kirkja leikur stórt hlutverk á þessum
degi, uppstigningardagur er svokall-
aður kirkjudagur hennar og fer vel
á því. Hún hefur um árabil fóstrað
starf félagsins ásamt Reykholtskirkju
og auk fleiri viðburða í henni flytja
Reykholtskórinn og kór Borgarnes-
kirkju Þýska messu eftir Schubert við
guðsþjónustu kl. 14.
Óformlegur
félagsskapur
Tónlistarfélag Borgarfjarðar var
stofnað haustið 1966. Þá var skipuð
undirbúningsnefnd til þess að auðga
og efla tónlistarlíf í héraðinu. Það
var þáverandi sýslumaður í Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu, Ásgeir Péturs-
son, sem fól Friðjóni Sveinbjörns-
syni, Hirti Þórarinssyni og Jakobi
Jónssyni að koma málinu áfram.
Jónína hefur verið stjórnarmeðlim-
ur í tónlistarfélaginu í rúm þrjátíu ár
og segir hún félagsskapinn enn vera
óformlegan líkt og hann var í upp-
hafi. „Í raun er stjórn félagsins enn
bara undirbúningsnefnd. Það hafa
aldrei verið haldnir formlegir félags-
fundir eða aðalfundir. Að sjálfsögðu
hefur samt sem áður verið haldið
formlega utan um fjármál félagsins
og reikninga en ekki kallað til form-
legra funda eða haldnar kosningar,“
útskýrir hún. Í þá hálfu öld sem fé-
lagið hefur starfað hefur það staðið
fyrir tónleikum víðsvegar um Borg-
arfjörð og lagt sig fram við að hafa
þá fjölbreytta. „Heimamenn hafa
fengið tækifæri til að koma fram þó
stærsta hlutverkið hafi ævinlega ver-
ið að sækja framúrskarandi listafólk
hingað í héraðið. Við höfum einnig
unnið að því að veita fjölbreyttri tón-
list inn í grunnskólanna. Við höfum
meðal annars tekið þátt í; „Tónlist
fyrir alla“ sem var á vegum mennta-
málaráðuneytisins og Landsbyggðar-
tónleikum FÍT. Við höfum því notið
góðs af því að ýmsir tónlistarmenn
hafa fengið styrki til að koma fram í
Borgarfirði.“
Blikur á lofti
Tónlistarfélagið hefur staðið fyr-
ir fjórum til átta tónleikum á hverju
starfsári. Jónína segir þó líklegt að
nú verði breyting þar á og segir blik-
ur á lofti varðandi framtíð félags-
ins. „Samfélagsbreytingar hafa vald-
ið því að það hefur fækkað í félaginu.
Kannski finnst fólki ekki akkur í því
að sækja fyrirfram ákveðna tónleika
í heimabyggð, enda hefur afþreying
aukist og það er auðveldara að sækja
ýmsa skemmtun,“ segir hún. Sjóð-
ir félagsins hafa rýrnað og opinberir
styrkir hafa dregist saman. „Grund-
völlurinn er við það að bresta. Sjóð-
ir félagsins munu tæmast með þessu
áframhaldi. Aðsókn er ekki það góð
að þetta muni standa undir sér lengi,“
bætir hún við. „Við horfum því fram
til þess að kannski eru dagar félagsins
að verða taldir.“
Jónína segist horfa fram til breyt-
inga á störfum félagsins. Núver-
andi stjórn félagsins sé að eldast
og líða fari að því að stjórnarmeð-
limir vilji afhenda fánann einhverj-
um öðrum. „Það þarf að hugsa fyr-
ir því að allt er að breytast og félagið
þarf að breytast með. Félagið þarf
að mótast með samfélaginu, það er
hluti þess og ef það á ekki að lognast
útaf, þarf að taka meðvitaða ákvörð-
un um hið gagnstæða.“ Hún segir
þörf á að Borgfirðingar taki hönd-
um saman og meti stöðuna í menn-
ingar- og listamálum, móti stefnu og
skapi framtíðarsýn í þessum málum.
Tónlist er bara ein grein listalífsins
og henni þarf að sinna eins og öllum
hinum. „Félagið hyggur á málþing á
afmælisári í samstarfi við Snorrastofu
í Reykholti þar sem umræða af þess-
um toga verður í fyrirrúmi. Þó auð-
velt sé að nálgast afþreyingu í dag,
þá þarf að hlúa að grasrótinni, að
list geti orðið til og skapa ennfremur
vettvang þar sem hægt er að flytja og
njóta lista.“ grþ
Afmælishátíð Tónlistarfélags Borgarfjarðar framundan
Jónína Eiríksdóttir og Hjörtur Þórarinsson. Hluti tónlistarfólks, sem fram komu á afmælistónleikum félagsins 2007. F.v:
Ingibjörg Þorsteinsdóttir, Guðrún Ingimarsdóttir, Jónína E. Arnardóttir, Þórður
Þorsteinsson og Eygló Dóra Davíðsdóttir.
Jón Stefánsson leikur hér undir á lokahátíð Söngdaga í Kleppjárnsreykjaskóla á
vegum Tónlistarfélagsins á fyrri hluta tíunda áratugarins. Það voru frændsystkinin
Jón og Margrét Bóasdóttir sem stjórnuðu söngdögum í tvígang.
Bræðurnir Jakob og Pétur Jónssynir á minningarhátíð um Björn Jakobsson, sem
haldin var í Borgarneskirkju 1994.Nokkrar af stjórnarkonum í gegnum árin saman komnar á 40 ára afmælinu. F.v:
Rebekka Þiðriksdóttir, Jónína, Steinunn Ingólfsdóttir, Anna Guðmundsdóttir,
Helga Vilhjálmsdóttir og Margrét Guðjónsdóttir.