Skessuhorn - 27.04.2016, Síða 22
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201622
Vortónleikar Tónlistarskóla Stykkis-
hólms fóru fram í Stykkishólmskirkju
á sumardaginn fyrsta. Sama dag var
sitthvað fleira um að vera í Hólmin-
um. Í Leir7 voru kynntar nýjar afurð-
ir úr leir og tré og í Ásbyrgi var settur
upp markaður í Setrinu. Þar er end-
urnýting í forgrunni og frábær vinna
sem fer fram. sá
Ljúfir tónar og sýningar í sumarbyrjun
Smáforritið KeyWe er hannað fyrir
spjaldtölvur og önnur snjalltæki og
ætlað til kennslu í grunnskólum. Að-
standendur forritsins telja að það geti
í framtíðinni orðið grundvallarnáms-
tæki í hugvísindum. „KeyWe er staf-
ræn glósubók sem býr sjálfkrafa til
leiki úr því efni sem notandinn set-
ur inn í það,“ segir Ólafur Stefánsson
hugmyndasmiður og einn eigenda
KeyWe. Gildir þá einu hvort for-
ritið er matað á texta, myndum eða
vefslóðum, svo dæmi séu tekin. „Allt
efnið, eins konar stafræn hugkort og
„taggarnir,“ sem hafa sömu virkni og
„hashtögg“ á Instagram eða Pintrest,
verður síðan að einstaklingsbundnu
efni í tölvuleikina sem við erum enn
að vinna að,“ bætir hann við.
Ólafur segir að forritið hafi ver-
ið kynnt fyrir breiðum aldri grunn-
skólanema. „Við höfum verið að
vinna með börnum allt frá átta ára og
upp í 15 ára. Allir aldurshópar taka
þessu vel því leikirnir verða til út frá
því efni sem hver og einn setur inn
í forritið. Þar af leiðandi verða leik-
irnir alltaf einstaklingsmiðaðir,“ seg-
ir hann og bætir því við að vel hafi
gengið að innleiða forritið í skóla.
„Við náðum okkar markmiði, sem
var að koma fyrstu útgáfu forritsins
til þúsund nemenda í sjö skólum. Við
vildum ekki fara hraðar af stað því
forritið leyfði ekki meiri umgang. En
nú erum við komin með næstu gerð
sem er enn betri og erum að prófa
hana með nemendum og kennur-
um í sömu skólum. Í haust verður
þriðja útgáfa tilbúin, sem mun með-
al annars innihalda fyrstu leikina. Þá
getum við farið að nálgast enn fleiri
skóla,“ segir Ólafur. Hann segir bæði
nemendur og kennara ánægða með
verkefnið. „Krakkarnir hafa gam-
an af þessu og kennararnir eru mjög
ánægðir. Fyrsta útgáfan var fyrst og
fremst hugsuð til að fá skólaverk-
efni gerð inn í forritið, hún var ekki
nógu þroskuð til að krakkarnir léku
sér í henni eftir að þeir komu heim úr
skólanum. En það mun gerast með
þriðju útgáfunni sem kemur í haust,“
segir Ólafur ánægður.
Fannst þekkingin sitja í
glósunum
Aðspurður um tilurð verkefnisins
segir Ólafur að hugmyndina megi
rekja til þess þegar hann sjálfur fet-
aði menntaveginn. „Sjálfur var ég
lengi í fjarnámi í heimspeki, sálfræði
og bókmenntum samhliða handbolt-
anum. Ég blandaði alltaf saman líf-
spælingum og námspælingum og
hafði í einni minnis- og pælingabók.
Þessar bækur hlóðust síðan bara upp
og enduðu einhvers staðar úti í skúr,
veruleiki sem flest okkar kannast
við. Eftir langt nám átti ég vissulega
gráðu og diplóma en fannst öll þekk-
ingin, vinnan og erfiðið, sitja einung-
is þarna í bókunum en ekki vera mér
til mikils gagns,“ segir hann. Í fram-
haldinu kveðst Ólafur hafa farið að
skoða möguleika á starfrænum lær-
dómsforritum og geymsluforritum.
„Eitthvað sem gæti gert hugsanir líf-
legri og lífvænlegri til langs tíma. Ég
fann engin slík forrit sem mér fannst
henta sjálfum mér þannig sú að hug-
mynd fór að gerjast að búa til eitt
slíkt sjálfur,“ segir hann „og ekki bara
glósubók, heldur tölvuleiki byggða á
efni glósubókar hvers og eins. Ég fór
og hitti gott og klárt fólk og fuglinn
byrjaði að rölta af stað, boltinn fór að
rúlla,“ bætir hann við.
Gengið vel í
Grundaskóla
Grundaskóli á Akranesi er einn
þeirra skóla þar sem KeyWe hef-
ur verið til prófunar. Hjördís Dögg
Grímarsdóttir, kennari við unglinga-
deild skólans, segir vel hafa geng-
ið að innleiða forritið. „Við höfum
verið að prófa okkur áfram með for-
ritið í vetur og það hefur gengið vel.
Þessa rafrænu glósubók sem hver og
einn getur tileinkað sér. Nemend-
ur hafa kynnst forritinu í vetur og
hvernig þeir geta nýtt sér það til að
tengjast námsefninu hver með sínum
hætti,“ segir Hjördís ánægð og segir
að ætlunin sé að halda áfram að nota
KeyWe við kennslu í Grundaskóla.
„Undanfarið ár hefur verið innleið-
ingarár hjá okkur. Næsta haust sé ég
fram á að forritið verði orðinn fast-
ur hluti af hjálpargögnum nemenda,
eins hver önnur stílabók. Krakkarnir
verða þá búnir að kynnast forritinu
og þekkja hvernig það virka. Ég trúi
því að forritið muni hjálpa nemend-
um að sækja þekkingu sína á skjótan
hátt og að í framtíðinni verði nem-
endum eðlislægara nemendur að
nota forritið í staðinn fyrir að skrifa
bara glósur á pappír,“ segir Hjördís.
Efnið alltaf aðgengilegt
Hún segir KeyWe vera mjög einstak-
lingsmiðað forrit og að það sé mikill
kostur. „Það gerir hverjum og einum
kleift að tileinka sér það sem hann
lærir og setja inn í forritið þannig að
hann sjálfur eigi auðveldara með að
rifja það upp seinna. Nemendur fá
tækifæri til að tengja við námsefn-
ið á eigin forsendum,“ segir Hjör-
dís. „Síðan mun næsta útgáfan, sem
kemur í haust, auðvitað vera fær um
að búa til leiki og þrautir úr efninu
sem það er matað á. Það mun hjálpa
til við að gera upprifjun á námsefn-
inu skemmtilegri,“ bætir hún við.
Þó engir leikir séu væntanlegir fyrr
en í þriðju útgáfu KeyWe sem kemur
næsta haust segir Hjördís nemend-
ur sína engu að síður ánægða. „Þeir
hafa tekið þessu mjög vel. Þróunin
á forritinu hefur verið mjög góð og
við erum ánægð með þá útgáfu sem
er í notkun núna. Nemendur ná betri
tengslum við námsefnið og eru farn-
ir að prófa að nota forritið við heima-
lærdóm utan skóla. Þeir hafa fundið
að þetta er góð leið til að koma frá
sér hugmyndum sínum og hugsun-
um. Það sem sett er inn í forritið er
alltaf aðgengilegt, ekki í 20 mismun-
andi stílabókum sem þarf að leita í,“
segir hún.
Ný tækni getur hjálpað
nemendum
Aðspurð kveðst Hjördís aldrei hafa
verið feimin við að tileinka sér
tæknina. Enn fremur segir hún um
þessar mundir vera mikið framboð
af sniðugri tækni sem nýta má við
kennslu. „Ég hef alltaf verið opin
fyrir tækninýjungum, alveg frá því
ég var í námi,“ segir hún. „Núna er
að koma inn mikið af skemmtileg-
um tækninýjungum þannig mað-
ur drekkur í sig þekkingu og reyn-
ir að fylgjast vel með,“ bætir hún við
og segir að samkennarar hennar séu
flestir mjög opnir að taka tæknina í
sína þjónustu. „Markmiðið hjá okkur
í Grundaskóla er að tæknivæðast enn
frekar. Við viljum vera framsækin í
þessum málum,“ segir hún. Ástæð-
una segir hún einfaldlega vera að ný
tækni geti komið nemendum til góða
og kennarar verði að hafa augun opin
fyrir öllu slíku. „Það er mikilvægt að
vera opinn fyrir nýjungum og reyna
að sjá möguleika sem geta hjálpað
nemendum. Kennarar verða alltaf
að spyrja sig: „hvernig get ég hjálpað
krökkunum að læra?“ Því öll lærum
við á mismunandi hátt,“ segir Hjör-
dís að lokum.
kgk
Smáforritið KeyWe er nokkurs konar rafræn glósubók
„Nemendur fá tækifæri til að tengja við námsefnið á eigin forsendum“
Ólafur Stefánsson fræðir nemendur Grundaskóla um KeyWe.
Hjördís Dögg Grímarsdóttir leiðbeinir nemendum sínum við notkun forritsins.
Ljósm. bbm.
Forritið er matað á efni með því að búa
til svokallaða kubba, sem halda utan
um efnið. Hér má sjá nokkra slíka.
Í þriðju útgáfu KeyWe, sem væntanleg
er í haust, mun forritið sjálft búa til
leiki úr því efni sem það er matað á.
Hér má sjá valmyndina og hvaða leikir
verða meðal annars í boði.