Skessuhorn - 27.04.2016, Page 24
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201624
Í sumar verður sett upp ljósmynda-
sýningin STEYPA í Sjávarsafn-
inu í Ólafsvík. Um er að ræða sýn-
ingu sem undanfarin ár hefur verið
sýnd í Gömlu síldarverksmiðjunni í
Djúpuvík en er nú í fyrsta sinn sýnd
á öðrum stað. Eru þar sýnd verk
níu íslenskra og erlendra ljósmynd-
ara þar sem þeir birta óhefðbundn-
ar ljósmyndir. Myndirnar eru allar
teknar á Íslandi og voru ljósmynd-
ararnir beðnir um að óhefðbundn-
ar myndir, sem fæstar landslags- eða
náttúrumyndir. Það er Þjóðverjinn
Claus Sterneck sem stendur fyr-
ir sýningunni ásamt hinni dönsku
Emilie Dalum.
„Þetta byrjaði allt sem tilraun
árið 2013 þar sem okkur langaði
að sýna á einni sýningu verk eft-
ir ólíka ljósmyndara víðsvegar að
sem allir hefðu tengingu við Djúpu-
vík á Ströndum. Markmiðið var
að sýna breitt ljósmyndasvið af Ís-
landi en ekki hefðbundnar lands-
lags- og náttúrumyndir líkt og flest-
ir taka. Þremur árum síðar er hug-
myndin enn sú sama, við erum enn
að sýna óhefðbundnar ljósmynd-
ir frá Íslandi,“ segir Claus. Sýning-
in verður opin alla daga frá 1. júní
til 31. ágúst og er frítt inn. „Til að
dekka kostnaðinn við að prenta út
bæklinga, auglýsingaspjöld og sitt-
hvað fleira settum við af stað söfnun
á Karolina fund. Okkur langar líka
að prenta út bók eða bækling með
þeim ljósmyndum sem sýndar eru
á sýningunni en kostnaðurinn við
að framkalla myndirnar sem sýndar
eru sýningunni eru greiddar af lista-
mönnunum sjálfum.“ Hann segir að
til standi að dreifa bæklingnum um
allt land. Í honum megi finna upp-
lýsingar um hvern ljósmyndara,
staðsetningu, leiðbeiningar hvernig
megi komast til Ólafsvíkur og sitt-
hvað fleira.
Claus segir sýninguna verða sí-
fellt vinsælli með hverju árinu og er
ánægður með nýja staðsetningu fyr-
ir sýninguna. „Þessi staður er alveg
frábær og passar mjög vel. Á Sjáv-
arsafninu má enn finna muni sem
tilheyra safninu og þarna blandast
saman tveir ólíkir heimar. Annars
vegar sú saga og menning sem til-
heyrir staðnum og hins vegar list-
in sem kemur með ljósmyndunum.
Ljósmyndararnir í ár koma líkt og
áður víðs vegar að úr heiminum, svo
sem frá Bandaríkjunum, Danmörku,
Þýskalandi og Íslandi. Claus seg-
ir STEYPU vera komna til að vera.
„Þið megið búast við að sjá okkur
aftur á næsta ári. Með því að styrkja
verkefnið hjálpið þið hjólunum að
snúast til framtíðar. Sjáumst í Ólafs-
vík í sumar!“ grþ
Ljósmyndasýning í
Sjávarsafninu í sumar
Hér má sjá sýningarrýmið í Sjávarsafninu.
Claus Sterneck og Emilie Dalum standa fyrir ljósmyndasýningunni STEYPA.
„Brot á vinnuverndarlöggjöfinni
virðast hafa lítið vægi hjá lög-
regluembættum landsins, jafnvel
þó um vítaverð brot gegn barni sé
að ræða. Það sýnir mál sem Vinnu-
eftirlit ríkisins kærði til lögregl-
unnar í Vestmannaeyjum í febrú-
ar árið 2012 vegna fiskvinnslufyr-
irtækis í bænum. Ástæða kærunn-
ar var þríþætt brot fiskvinnslufyr-
irtækisins á 14 ára barni sem end-
aði með alvarlegu vinnuslysi þar
sem barnið missti m.a. framan af
fingri og hlaut varanlega örorku,“
segir í harðorðri tilkynningu sem
Alþýðusamband Íslands hefur sent
frá sér.
Brotin sem um ræðir í þessu til-
viku voru eftirfarandi:
1. Barnið var látið vinna við
hættulega vél sem er með öllu
óheimilt að láta börn vinna við.
2. Barnið vann á 12 tíma vökt-
um.
3. Barnið var látið vinna á næt-
urvöktum.
„Með þessari háttsemi braut
fiskvinnslufyrirtækið gegn lögum
um aðbúnað, hollustuhætti og ör-
yggi á vinnustöðum og reglugerð
um vinnu barna og unglinga.
Slysið átti sér stað í júlí 2011
og var það rannsakað áfram árið
2012. Starfsmaðurinn sem sá um
málið hjá lögregluembættinu í
Vestamannaeyjum hætti hins veg-
ar störfum árið 2012 og þar með
stöðvaðist framgangur málsins
hjá embættinu. Þar sem refsing-
ar vegna brota á vinnuverndarlög-
gjöfinni varða eingöngu sektum
þá fyrnast slík mál á aðeins tveim-
ur árum. Af þessum sökum felldi
lögreglustjórinn í Vestmannaeyj-
um málið niður með bréfi dagsettu
9. mars 2016. Eftir situr einstak-
lingur sem varð fyrir vinnuslysi
þar sem hann starfaði við aðstæð-
ur sem voru vítaverðar þegar barn
á í hlut.
Þetta mál er því miður ekkert
einsdæmi. Kærur Vinnueftirlits-
ins lenda gjarnan neðarlega á for-
gangslist lögreglu m.a. vegna þess
hversu vægar refsingarnar eru. Til
að koma í veg fyrir að þetta gerist
þarf því að herða refsirammann og
kveða á um að brot á vinnuvernd-
arlöggjöfinni varði a.m.k. sektum
eða tveggja ára fangelsisvist, en við
það lengist fyrningarfrestur slíkra
mála í 5 ár,“ segir í tilkynningu frá
ASÍ.
mm
Mál vegna vinnu-
slyss barns fyrnist
hjá lögreglu
Freisting vikunnar að þessu sinni
er lágkolvetna hrökkkex. Kexið
er meinhollt og ótrúlega bragð-
gott. Það er gott að grípa í hrökk-
kex með góðum ostum, túnfisk-
salati eða öðru áleggi og þá er
ekki slæmt ef kexið er í hollari
kantinum. Þetta kex er bæði syk-
ur- og hveitilaust og fullt af holl-
um og góðum fræjum. Einfalt er
að útbúa kexið en það má búast
við því að það klárist fljótt, enda
frábært sem millimál eða til að
nota í staðinn fyrir hefðbundið
brauð.
Lágkolvetna hrökkkex
(um 20 stk)
Innihald:
2 egg
2 dl rifinn ostur
1 dl kotasæla
½ tsk. salt
½ tsk. lyftiduft
3 dl sesamfræ
1 dl hörfræ
Aðferð: Byrjið á því að stilla ofn-
inn á 180°C. Blandið því næst öllu
innihaldinu saman og fletjið það
út á eina bökunarplötu. Sting-
ið plötunni inn í ofninn og bak-
ið í 20 mínútur. Skerið kexið í bita
um leið og það er tekið út úr ofn-
inum.
Hollt og gott hrökkkex
Freisting vikunnar
Sjúkraþjálfara í Borgarnesi
Dag ur í lífi...
Nafn: Hilmar Þór Hákonarson
Fjölskylduhagir/búseta: Gift-
ur Dórótheu Elísdóttur og við
eigum saman fjögur börn og
erum búsett í Borgarnesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Ég er
sjálfstætt starfandi sjúkraþjálfari
í Borgarnesi.
Hvað er það besta við starfið?
Bæta líðan og getu fólks.
Áhugamál: Golf og enski bolt-
inn. Þetta er ekki flókið líf.
Dagurinn: Mánudagurinn
18. apríl
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Vakna kl. 7.25 og það
fyrsta sem ég geri er að snooza
vekjaraklukkuna til 7.34.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? AB mjólk með múslí og
slatti af kaffibollum.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Klukkan 7.55 labba
ég í vinnuna og það tekur ca. 3
mínútur að komast til vinnu.
Fyrstu verk í vinnunni: Það
er að taka á móti fyrsta sjúlla og
sinna honum.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Í miðri meðferð.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Smá heimalagað nesti í hádeg-
inu, en annars haldið
áfram að vinna.
Hvað varstu að gera
klukkan 14? Á týpísk-
um vinnudegi hjá mér
tekur ein meðferð við af
annarri, þannig að kl. 14
var ég í einni slíkri.
Hvenær hætt og það
síðasta sem þú gerðir í
vinnunni? Lauk síðustu
meðferð um kl 16.30, en
átti þá eftir að gera smá
tölvuvinnu sem tók um
20 mínútur.
Hvað gerðirðu eftir
vinnu? Ég fór með bíl-
inn til Frumherja þar
sem það á að skoða hann
í fyrramálið.
Hvað var í kvöldmat og
hver eldaði? Það voru
dýrindis pullur í matinn
og kallinn eldaði, en remúlað-
ið var útrunnið, þannig að sum-
ir voru ekki alveg sáttir við að fá
það ekki á pulluna sína.
Hvernig var kvöldið? Einn
leikur í enska. Málaði hurðar-
lista í bílskúrnum. Heitt bað og
kallinn rakaði sig. Upp í rúm og
kíkt í tölvuna.
Hvenær fórstu að sofa? Rúm-
lega 11.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Bauð góða nótt.
Hvað stendur upp úr eftir
daginn? Stress. Það var óvenju
mikið stress á mér þennan dag-
inn og helgast það að mestu leyti
af því að ég er að standa í því að
selja bílinn minn og þurfti að
redda ýmsu vegna þess.