Skessuhorn - 27.04.2016, Blaðsíða 32
MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 201632
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Leggjum dren- og frárennslislagnir
Fjarskiptasjóður gekk í síðustu
viku frá samkomulagi vegna ljós-
leiðaratenginga í 14 sveitarfé-
lögum. Samkomulagið felur í sér
að tengja 900 staði með ljósleið-
ara og um 200 staði með ídrátt-
arröri fyrir ljósleiðara. Það fjár-
magn sem nýtt er til verksins kem-
ur til vegna fjárveitingar sem lagð-
ar voru til af hálfu fjárlaganefnd-
ar Alþingis við afgreiðslu fjárlaga
fyrir árið 2016. Sveitarfélög sem fá
styrk eru Borgarbyggð, Húnaþing
vestra, Súðavíkurhreppur, Eyja-
og Miklaholtshreppur, Sveitarfé-
lagið Skagafjörður, Blönduósbær,
Húnavatnshreppur, Norðurþing,
Fljótsdalshérað, Svalbarðshrepp-
ur, Þingeyjarsveit, Rangárþing
eystra, Rangárþing ytra og Kjósar-
hreppur.
Orðum fylgja athafnir
Fyrir þremur árum var ekki í gangi
vinna við að ljósleiðaravæða sveit-
ir landsins og stefnan var sú að
3G tengingar væru nægilegur
gagnaflutningur fyrir stór land-
svæði. Þetta breyttist vegna þess
að ákveðið var að setja ljósleiðara-
væðingu sveitanna sem forgangs-
mál í aðdraganda síðustu kosninga.
Framsóknarflokkurinn lagði mikla
áherslu á þetta mál enda er þetta
einn af stærstu þáttunum sem hafa
áhrif á búsetuval ungs fólks. Í grein
sem formaður, varaformaður og
þingflokksformaður Framsóknar-
flokksins skrifuðu í Morgunblaðið
30. mars 2013 sagði:
„Ríkisstjórnin ætti að hafa frum-
kvæði að því að kalla saman fjar-
skiptafyrirtækin og leggja áherslur
á að nýta Fjarskiptasjóð í slíkt
verkefni. Allir fjarskiptaaðilar geta
veitt þjónustu á kerfinu. Mikilvægt
er að allir landsmenn geti feng-
ið jafna og góða þjónustu á sama
verði. – Fyrir þessu höfum við
framsóknarmenn talað. Með sam-
starfi allra aðila ásamt sveitarfélög-
unum væri hægt að ljósleiðaravæða
landið á nokkrum árum.“
Forystumenn Framsóknar-
flokksins sögðu jafnframt: „Ný
heildstæð byggðastefna er nauð-
synleg. Framsóknarflokkurinn
leggur mikla áherslu á að um hana
ríki víðtæk sátt. Við erum fámenn
þjóð í stóru landi. Eitt fyrsta skref-
ið ætti að vera ljósleiðaravæðing
alls landsins.“ Þessi stefna var sett
fram í stjórnarsáttmála núverandi
ríkisstjórnar og unnið hefur ver-
ið eftir henni frá síðustu kosning-
um. Til þess að fylgja þessu eftir þá
ákvað ríkisstjórnin að fela tveimur
stjórnarþingmönnum, þeim Páli
Jóhanni Pálssyni frá Framsóknar-
flokki og Haraldi Benediktssyni
frá Sjálfstæðisflokki, að fara ofan í
málið og móta tillögur um hvern-
ig best væri að vinna málinu fram-
gang. Þeir hafa staðið sig vel í sinni
vinnu og skilað af sér tillögum sem
ákveðið var að vinna eftir.
Fjárlaganefnd Alþingis
tók forystu
Afgreiðsla fjárlaganefndar á fjár-
lagafrumvarpi fyrir árið 2015 og
2016 hefur verið ánægjuleg stað-
festing á því að ríkisstjórnin ætli
líkt og bent var á fyrir síðustu kosn-
ingar að beita sér
fyrir bættum fjar-
skiptum. Það er
mikilvægt að allir
sitji við sama borð þegar kemur að
þessum málum og ljósleiðaravæð-
ing gegnir þar lykilhlutverki. Fyr-
ir það fjármagn sem fjárlaganefnd
lagði fram á síðasta ári þá var lok-
ið við hringtengingu á ljósleiðara á
nokkrum svæðum auk þess að und-
irbúa verkefnið frekar. Í fjárveit-
ingu þessa árs þá er hin eiginlega
ljósleiðaravæðing að hefjast.
Fjármagn til að klára
verkið á næstu árum
Nú er það svo að færri komast að
en vilja í fyrstu umferð. Það er
hinsvegar mikilvægt að gera sér
grein fyrir því að eftir að núver-
andi ríkisstjórn tók við völdum
þá varð stefnubreyting í þessum
málaflokki. Nú talar enginn um að
3G tengingar séu nægilegar góð-
ar fyrir sveitir landsins. Eftir að
ljósleiðaravæðingunni hefur ver-
ið fleytt formlega af stað þá mun
enginn snúa við þessari stefnu-
mörkun. Verkefnið er hinsvegar
að þetta geti gengið sem hraðast
fyrir sig og framundan er barátta
við að tryggja sem mest fjármagn
til verksins. Markmiðið er að inn-
an nokkura ára þá sé búið að ljós-
leiðaravæða allar sveitir landsins.
Ásmundur Einar Daðason
Höf. er formaður þingflokks
Framsóknarflokksins og nefndar-
maður í fjárlaganefnd Alþingis
Ljósleiðari á hvert heimili
Pennagrein
Því er greinilega farið að þykja nóg
um sóðaskapinn í ferðamönnun-
um starfsfólkinu á leikskólanum
Klettaborg í Borgarnesi. Ljósmynd-
ari Skessuhorn gekk fram á þetta
bannmerki við grenilundinn hjá
bílastæðinu við Klettaborg í liðinni
viku. Færst hefur í vöxt hér á landi
að leigðir séu út svonefndir „mini-
camper“ bílar sem mörgum ferða-
manninum þykir góður og hag-
kvæmur kostur þar sem þeir gista í
bílunum og losna við að greiða fyrir
gistingu annars staðar. Sá hængur er
þó á, að farartæki þessi eru náðhús-
laus, enda finnast æ fleiri „túrista-
hreiður“ á skjólgóðum stöðum sem
ekki eru í alfaraleið. þg
Vilja ekki túristahreiður
á leikskólalóð
Á sumardaginn fyrsta var haldin sum-
argleði í Setrinu í Stykkishólmi, þá
voru starfsmenn Ásbyrgis með sölu-
sýningu þar sem gestir gátu verslað,
tekið þátt í happdrætti og kynnst því
starfi sem unnið er í Ásbyrgi. Starf-
semin í Ásbyrgi er rekin af Félags-
og skólaþjónustu Snæfellinga með
það að markmiði að aðstoða fullorð-
ið fatlað fólk að komast í vinnu á al-
mennum vinnumarkaði. Síðan fyllir
fólk vinnudaginn eða vikuna í þess-
ari starfsstöð. Þar er ýmislegt unn-
ið og endurnýtt, t.d. kerti, leikföng,
kort, rennilásar og margt fleira. Það
kenndi ýmissa grasa á sölusýningunni
sumardaginn fyrsta og var margt um
manninn. Allur ágóði sölunar rann
í fræðslu og skemmtanasjóð starfs-
manna Ásbyrgis. jse
Sumargleði í Hólminum
Frændurnir Bæring Nói og Bæring Breiðfjörð rákust á margt sem fangaði
athygli þeirra.