Skessuhorn - 11.05.2016, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 19. tbl. 19. árg. 11. maí 2016 - kr. 750 í lausasölu
Framtíðin er
full af möguleikum
Traust fjármálaráðgjöf leggur grunn
að farsælli framtíð
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
–
1
5
-0
0
5
0
Fæst án lyfseðils
LYFIS
HERRAFATNAÐUR
Gott úrval af stutterma
pólóbolum fyrir sumarið
verð frá kr. 7.990,-
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Háskólalestin átti leið um Búðardal um síðustu helgi og reyndist heimsóknin
ævintýri fyrir gesti af yngri kynslóðinni. Hér er leikið fyrir framan nema sem sýndi
hitasvæði á skjá. Sjá nánar bls. 13. Ljósm. sm.
Nýr vefur Skessuhorns
fór í loftið síðastlinn
fimmtudag. Hann bygg-
ir á Open source forrit-
un og er um margt ólíkur
eldri fréttaveitum Vest-
urlands. Vefurinn er for-
ritaður og gerður hjá
Skessuhorni. Þá vinnu
önnuðust vefhönnuðurn-
ir Sigurður Sigbjörnsson
og Þórarinn Ingi Tóm-
asson. Við hönnun nýs
vefjar var tekið mið af því
að hann yrði snjalltækja-
vænn, fyrir spjaldtölv-
ur og síma, auk þess að
henta fyrir hefðbundn-
ar tölvur. Þrátt fyrir að
búið sé að opna vefinn
á eftir að forrita og setja
inn ýmsar veflausnir sem
munu smám saman bæt-
ast við á næstu misserum.
Í því samhengi má segja að endan-
legri hönnun ljúki aldrei og minnt
á máltækið að góðir hlutir gerast
hægt.
Ástæða er til að benda lesend-
um á að nú þarf að skrá viðburði
sem fólk óskar eftir að birta á vef
og í blaði okkar í gegnum vefsíðu
Skessuhorns. Viðburðaskrá er ekki
lengur tengd skrám sveitarfélaga
enda byggja þau veflausnir sínar á
nokkrum ólíkum gerðum vefum-
sjónarkerfa. Lesendur geta skráð
smáauglýsingar með mynd í gegn-
um vefinn sér að kostnaðarlausu, sé
ekki um atvinnutengda starfsemi
að ræða. Vonandi njóta lesend-
ur Skessuhorns nýs vefjar, en all-
ar góðar og gagnlegar ábendingar
um vefinn óskast sendar á netfang-
ið: toti@skessuhorn.is.
mm
Nýr snjalltækjavænn vefur
Í liðinni viku urðu miklar svipting-
ar í framboðsmálum til embætt-
is forseta Íslands, en kosið verður
eins og kunnugt er 25. júní. Í stuttu
máli bar helst til tíðinda að Ólaf-
ur Ragnar Grímsson forseti dró á
mánudaginn framboð sitt til baka
eftir að hafa réttum þremur vik-
um áður lýst því yfir að hann sækt-
ist eftir endurkjöri. Áður en til þess
kom hafði Guðni Th Jóhannesson
sagnfræðingur lýst yfir framboði,
valdi til þess uppstigningardag. En
á sunnudag urðu þó hin óvæntu
tíðindi, sem fæstir höfðu spáð en
margir haft í flimtingum, að Davíð
Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins
og fyrrverandi borgarstjóri, forsæt-
isráðherra og Seðlabankastjóri lýsti
yfir framboði sínu til forseta.
Kannanir sem birtar voru á
mánudaginn bentu ótvírætt til að
fylgi Ólafs Ragnars hefur dalað um-
talsvert á þeim tveimur vikum sem
hann hafði látið ósvarað erlend-
um fréttum þar sem fjallað var um
meintan eignarhluta eiginkonu for-
setans í hlutabréfum í skattaskjóls-
löndum. Óljósar fréttir um fjármál
eiginkonunnar höfðu einfaldlega
komið Ólafi í óþægilega stöðu og
rýrt trúverðugleika framboðs hans.
Í því ljósi þótti ekki koma á óvart sú
ákvörðun Ólafs Ragnars að draga
framboð sitt til baka á mánudag-
inn. Því við bættist að talið var lík-
legt að framboð Davíðs Oddsson-
ar myndi höggva í fylgi sitjandi for-
seta. Athygli hefur hins vegar vakið
það mikla fylgi sem kannanir sýna
að Guðni Th Jóhannesson nýtur,
eða allt upp í 60% á landsvísu. Þeir
þrír sem nefndir hafa verið hér að
framan hafa mælst með langmest
fylgi þeirra 14 einstaklinga sem lýst
hafa yfir framboði. Fjórði í fylgis-
röð, með innan við tíund fylgis, er
Andri Snær Magnason rithöfundur.
Aðrir forsetaframbjóðendur mæl-
ast með afar lítið eða ekkert fylgi
en ætla þó flestir að halda ótrauð-
ir framboðum sínum til streitu. En
vika getur verið löng í stjórnmál-
um, það sýnir sig nú og vafalaust
ekki í síðasta skipti.
mm
Miklar hræringar í
framboðsmálum
til forseta
Davíð Oddsson ritstjóri lýsti um
helgina yfir framboði sínu.
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands
hyggst draga sig til hlés.
Guðni Th Jóhannesson sagnfræðingur
nýtur mikils fylgis ef marka má kann-
anir.
Andri Snær Magnason rithöfundur
nýtur talsverðs fylgis.