Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 4

Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 20164 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.800 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 2.700 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 2.340. Rafræn áskrift kostar 2.120 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 1.960 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Guðný Ruth Þorfinnsdóttir gudny@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Lísbet Sigurðardóttir lisbet@skessuhorn.is Valdimar Björgvinsson valdimar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is Þórarinn Ingi Tómasson toti@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Maðurinn með ljáinn Einhverra hluta vegna rifjaðist það upp fyrir mér að í hinum spaugsama útvarpsþætti; Útvarpi Matthildi, sem var í spilun á ríkisrásinni í upp- hafi áttunda áratugarins, hafi fréttaritarinn Þórður Breiðfjörð m.a. rætt við Elliða Karlsson formann íslensku ungmennahreyfingarinnar. Þórður spurði Elliða hver helsti vandi ungmennahreyfingarinnar væri? „Nú, það er maðurinn með ljáinn,“ svaraði Elliði hrumri og hálf brostinni röddu. Skemmtileg tilviljun að útvarpsmaðurinn sem þarna átti í hlut og brá sér í gervi Þórðar Breiðfjörð hét Davíð Oddsson. Ungmennafélagshreyfingin á sér meira en aldarlanga sögu hér á landi. Í uppvexti afa okkar og og ömmu og þeirrar kynslóðar sem ólst upp í torfbæjum, en kynntist síðar fyrstu steinsteyptu húsunum, voru ung- mennafélögin allt í öllu. Þau gegndu hlutverki íþrótta- og æskulýðsfé- laga, byggðu félagsheimili og þá voru ekki einu sinni sjálfvirkir símar, tölvur og hvað þá samskiptamiðlar. Þeir sem fæddust og ólust upp á önd- verðri síðustu öld muna gjörla hvað ungmennafélögin voru mikilvæg- ir hlekkir í mannlífinu. Þrátt fyrir það voru spaugarar, strax í upphafi áttunda áratugarins, farnir að gera grín að þessum félagsskap og töldu hann fremur sveitalegt fyrirbrigði. Að helsta ógnin við framtíð þeirra væri einmitt maðurinn með ljáinn og að í sveitunum væri engin nýliðun. Það eina sem breyttist milli ára í stjórnum ungmennafélaganna væri að stjórnarmenn yrðu árinu eldri. Það er því dálítið broslegt í ljósi þessa gríns, tæpum fimmtíu árum síðar, að engu líkara er en spaugarinn Þórður og viðmælandinn Elliði hafi haft hlutverkaskipti. Síðan þetta var hefur Þórður Breiðfjörð náð að verða borgarstjóri, forsætisráðherra, seðlabankastjóri og ritstjóri og á nú einungis einu hlutverki ólokið til að fullkomna starfsævi sína; að verða forseti lýðveldisins. Ekki laust við að þetta kapphlaup snúist um að gera eins mikið og hægt er áður en mannfjandinn með ljáinn rennir í hlað. Sá hinn sami og ógnaði tilvist ungmennafélaganna forðum. En hvað hefði gerst í sveitinni hjá Elliða Karlssyni forkólfi í ungmenna- hreyfingunni ef allt í einu hefði orðið nýliðun í sveitinni? Ef ungt fólk hefði tekið að fylla bæina lífi og jafnvel viljað taka þátt í félagsstörfum í ungmennahreyfingunni. Hefði þá Elliði setið sem fastast í stjórninni og aftrað því með ráðum og dáð að unga fólkið tæki við? Mætti ekki einmitt gera því skóna að Elliði Karlsson hefði tekið því fagnandi og stigið til hliðar og leyft unga fólkinu að skipuleggja sjálft sín íþróttamót, skemmt- anir og aðra viðburði? Vel gæti ég trúað því að Elliði, Þura á Þangbakka og Rútur á Réttarhóli hafi einmitt orðið hæstánægt með þær breytingar og farið áhyggjulaus að spila félagsvist eða sauma klukkustrengi. Enginn er eilífur jafnvel þótt mörgum finnist þeir vera það. Kirkju- garðarnir eru fullir af þessu ómissandi fólki eins og einhver benti svo réttilega á. Sjálfur ber ég mikla virðingu fyrir ungu fólki og getu þess til að takast á við hin fjölbreyttu verkefni. Get nefnt sem dæmi að hjá mér starfa nú sex einstaklingar um og yfir þrítugt. Eru af þeirri kynslóð sem verður á vinnumarkaðinum næstu fjörutíu árin eða svo og leikur sér að flestu því sem eldri telja sig gera best í krafti reynslunnar. Vissulega geri ég ekki lítið úr reynslu og lífsins skóla, en ég fullyrði að þetta unga fólk er að minnsta kosti hæfara en ég og jafnaldrar mínir voru fyrir þrjátíu árum í mörgu sem snertir fjölmiðlun. Þekking hefur nefnilega aukist á þessum tíma og sveigjanleiki til að takast á við ólík viðfangsefni er miklu meiri. Þess vegna er það trú mín að happasælt sé að leyfa unga fólkinu að tak- ast á við fjölbreytt störf snemma á lífsleiðinni, hvort sem það er á þingi eða við þjónustu, nú eða hvort sem þessir vinnustaðir eru á Breiðdalsvík eða Bessastöðum! Magnús Magnússon. Leiðari Bílaumboðið BL og bílasalan Bílás á Akranesi buðu gestum og gang- andi að kíkja við á laugardaginn og skoða það helsta sem í boði er í nýjum bílum. Auk þess var pyls- um skellt á grillið í tilefni dagsins og boðið upp á veitingar í blíðskap- arveðri. Um 500 manns mættu og nokkrir skrifuðu undir kaup á bíl- um, þannig að sölumennirnir voru hæstánægðir með daginn. Á með- fylgjandi mynd eru f.v. Sigurður Sigurðarson sölumaður hjá BL og tengiliður við umboðsaðilana og bræðurnir Ólafur og Magnús Ósk- arssynir á Bílás. mm Fengu hálft þúsund á bílasýningu Í sumar munu bleikar heyrúll- ur prýða tún bænda um allt land í fyrsta sinn. Þetta uppátæki teng- ist átaki bænda, dreifingaraðila og framleiðenda heyrúlluplasts um að minna á árvekni um brjóstakrabba- mein og styrkja Krabbameinsfé- lagið á sama tíma. Framleiðand- inn Trioplast, innlendir dreifing- araðilar og bændur, leggja hver fram andvirði einnar evru hver eða samtals 425 krónur af hverri seldri bleikri plastrúllu sem hver dugar á 26 bleikar heyrúllur á túni ef vaf- ið er sexfalt. Andvirði söfnunarfjár átaksins mun ganga til endurnýj- unar tækja til brjóstamyndatöku í Leitarstöð Krabbameinsfélagsins. Upprunalega hugmyndin er frá viðskiptavini framleiðanda hey- rúlluplastsins, Trioplast, á Nýja- Sjálandi sem bað um bleikt rúllu- plast til að minna á árvekni vegna brjóstakrabbameins. Í framhaldinu voru gerðar tilraunir með bleika lit- inn og tryggt að hann standist ítr- ustu kröfur bænda. Nú þegar hafa bleikar heyrúllur hafið innreið sína í Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi, Nýja-Sjálandi, Sviss, Bretlandi og Írlandi og fjölda annarra landa og vakið mikla athygli. Umboðsaðili Trioplast á Ís- landi, Plastco hf., hefur umsjón með verkefninu. Dreifingaraðil- ar eru Kaupfélag Skagfirðinga, Bú- stólpi, Sláturfélag Suðurlands og Kaupfélag Vestur Húnvetninga, Kaupfélag Borgfirðinga, Kaupfélag Steingrímsfjarðar og KM þjónust- an Búðardal. mm/ Ljósm. sm. Bleikar heyrúllur til stuðnings Krabbameinsfélaginu Hljómur, kór Félags eldri borgara á Akranesi, verður gestgjafi á kóra- móti sem fram fer í Grundaskóla á Akranesi laugardaginn 21. maí nk. Gestir verða Vorboðar í Mosfellsbæ, Hörpukórinn á Selfossi, Gaflarakór- inn í Hafnarfirði og Eldey af Suður- nesjum. Að sögn Ólafs Guðmunds- sonar formanns Hljóms, hefst sam- vera kórfélaga á æfingum sem hefjast eftir hádegið. Klukkan 16:00 verða síðan tónleikar á sal Grundaskóla þangað sem íbúum og gestum verð- ur boðið að mæta þeim að kostnað- arlausu. Röð kóranna verður þessi: Eldey, Vorboðar, Gaflarar, Hörpu- kórinn og Hljómur. Allir kórarnir syngja í lokin saman nokkur lög, alls um 250 manna kór. mm Hljómur er gestgjafi á kóramóti eldri borgara Hljómur syngur á tónleikum á Selfossi á síðasta ári. Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitu Reykjavíkur, eru að hefja vinnu við lagningu fráveitulagna og bygg- ingu dælubrunns við Krókalón á Akranesi í þeim tilgangi að veita frárennslinu áleiðis í nýja hreinsi- stöð við Ægisbraut sem gang- sett verður fyrir árslok. Fram- kvæmdasvæðið er frá Krókatúni 20 að Vesturgötu 105, meðfram grjótgarðinum í fjörunni. Byggður verður staðsteyptur, niðurgrafinn dælubrunnur neðan við Vestur- götu 69 og ný yfirfallsútrás verð- ur lögð frá honum um 100 m út í sjó. Gamla útrásin verður fjarlægð eftir að hreinsistöðin verður kom- in í gang. „Framkvæmdir eru að hefjast og áætlað er að þær standi fram á haust. Óhjákvæmilega fylgir henni rask og biðjum við ykkur íbúa að sýna því skilning,“ segir í tilkynn- ingu frá Veitum. mm Fráveituframkvæmdir að hefjast við Krókalón Á þessari loftmynd sést lega nýrra fráveitulagna við Krókalón en þar verður þungi framkvæmdanna mestur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.