Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2016 9
Heyrðu umskiptin. Fáðu heyrnartæki til reynslu.
Erum með margar gerðir og verðflokka á
ReSound heyrnartækjum.
Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is •
Innritun í framhaldsskóla
á haustönn 2016
Innritun eldri nemenda (fæddir 1999 eða fyrr)
sem eru ekki í framhaldsskóla sem stendur eða
ætla að skipta um skóla stendur til 31.maí.
Nemendur í 10. bekk hafa frest til sækja um
nám í framhaldsskóla eða breyta umsóknum
úr forinnritun til miðnættis miðvikudaginn 10. júní.
Innritun fer fram á www.menntagatt.is
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 430-8400
eða með því að senda tölvupóst fsn@fsn.is SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Frekari upplýsingar á heimasíðu skólans www.fsn.is
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Skipulags- og umhverfisfulltrúi
Laust er til umsóknar starf skipulags- og umhverfisfulltrúa
Hvalfjarðarsveitar. Um er að ræða 100% starf. Leitað er að metn-
aðarfullum aðila til að stýra fjölbreyttum verkefnum í skipulags- og
umhverfismálum sveitarfélagsins. Æskilegt er að viðkomandi geti
hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgðarsvið:
Skipulagsgerð og útgáfa framkvæmdaleyfa.•
Gerð starfs- rekstrar, og framkvæmdaáætlana fyrir þá mála-•
flokka sem undir hann heyra.
Umsjón með umhverfis- og hreinlætismálum sveitarfélagsins.•
Umsjón með náttúruverndarmálum í sveitarfélaginu.•
Almennt stjórnunarsvið:
Skipulags- og umhverfisfulltrúi starfar í samræmi við lög og
reglugerðir sem gilda um skipulags- og umhverfismál sveitarfélaga.
Einnig eftir lögum er varða opinbera þjónustu og stjórnsýslu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun og viðeigandi réttindi til að annast skipu-•
lagsgerð skv. 7. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er skilyrði.
Þekking og reynsla af skipulags- og umhverfismálum er •
æskileg.
Reynsla af störfum í opinberri stjórnsýslu er kostur.•
Reynsla af þátttöku í stefnumótandi áætlanagerð og gerð •
rekstrar- og fjárhagsáætlana er æskileg.
Reynsla af stjórnun, rekstri og þróunarstarfi er kostur.•
Færni í mannlegum samskiptum auk forystu- og skipulags-•
hæfileika.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.•
Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.•
Kjör:
Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningum viðkomandi
stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur um starf skipulags- og umhverfisfulltrúa Hval-
fjarðarsveitar er til og með 22. maí nk.
Umsókn skal fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf.
Umsóknir skulu vera skriflegar og skal senda þær til skrifstofu
Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranes eða á netfangið
hvalfjardarsveit@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður
svarað skriflega.
Nánari upplýsingar um starfið veitir
Skúli Þórðarson, sveitarstjóri í síma
433-8500 og á netfanginu
skuli@hvalfjardarsveit.is
Í Landnámssetrinu í
Borgarnesi eru nú hafn-
ar sýningar á nýju ís-
lensku leikverki sem
flutt verður á ensku og
er fyrst og fremst hugs-
að fyrir ferðamenn sem
leið eiga um. Verkið
nefnist Gráskinna og
ber undirtitilinn „The
Saga of Black Magic
in Iceland.“ Höfund-
ur og jafnframt flytj-
andi er Borgnesingur-
inn Geir Konráð Theo-
dórsson sem titlaður er
hugmyndahönnuður í
símaskrá. Leikstjóri er
faðir hans Theódór Kr
Þórðarson lögreglu-
varðstjóri og áhugaleik-
hússmaður til áratuga.
Um lýsingu sér svo Ei-
ríkur Þór Theódórs-
son, bróðir Geirs. „Við
höfum farið af stað með
verkið hægt og hljótt
og erum nú byrjuð að
leyfa gestum að fylgj-
ast með tilraunasýning-
um. Viðbrögð hafa ver-
ið prýðileg. Nú hefur
verið ákveðið að kýla á
þetta og verður sýning-
in í boði daglega á næst-
unni, nema á laugardag-
inn, en þá tökum við frí
út af Eurovisjón keppn-
inni,“ segir Geir í sam-
tali við Skessuhorn.
Gráskinna byggir á
þremur íslenskum þjóðsögum og
er sem slík skírskotun í helsta hlut-
verk Landnámssetursins; að flytja
frásagnir af fornköppum íslenskum
og halda sögunni hátt á lofti. „Sög-
urnar sem ég byggi verkið á eru
Saga Sæmundar Fróða, Galdraloft-
ur og Hellismannasaga sem gerist
í Surtshelli í Hallmundarhrauni.“
Geir Konráð segir það hafa ver-
ið skemmtilegt að starfa með föð-
ur sínum og bróður við uppfærslu
á sýningunni. „Pabbi er líka afar
stoltur af því að eiga hlutdeild í
þessari sýningu, ekki síst í ljósi þess
að Ungmennafélagið Skallagrím-
ur á hundrað ára afmæli um þessar
mundir. Pabbi hefur þannig náð að
fylgja félaginu eftir í leik og starfi
nánast alla tíð,“ segir Geir Konráð í
gamansömum tón.
Hann bætir því við að lokum
að fyrirhugað sé að bjóða íbúum
á Vesturlandi að sjá sýningarnar
sér að kostnaðarlausu gegn fram-
vísun nafnskírteinis eða jafngildra
skilríkja. „Það er svona þakklætis-
vottur Landnámssetursins til sam-
félagsins á Vesturlandi, en setrið er
tíu ára á þessu ári. Íbúar eru jafn-
framt þeir bestu til að breiða hróð-
ur okkar út til gesta og því hagur
okkar að sem flestir viti um hvað
Gráskinna fjallar,“ segir Geir Kon-
ráð Theódórsson, handritshöfund-
ur og leikari.
Nánari upplýsingar um sýning-
artíma er að finna á landnamssetur.
is. mm
Gráskinna á fjalir Sögulofts
Landnámssetursins
Auglýsingaplakat með Gráskinnu.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is