Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 28
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
Bifreiðaþjónusta Harðar ehf.
Smur og dekkjaþjónusta
Sala á dekkjum og olíuvörum
Borgarbraut 55 - 310 Borgarnesi
437 1192 / 847 8698 - midgardur@vesturland.is
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Vélabær ehf.
Bæ í Bæjarsveit
Alhliða viðgerðarþjónusta
á bílum, dráttarvélum
og vélum tengdum
landbúnaði
Smur og hjólbarðaþjónusta
velabaer@vesturland.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
3
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
ÖLL ALMENN GARÐVINNA
• Fjarlægjum tré og kurlum
• Útvegum sand, mold og möl
• Sláum garða
PISTILL
Ég sit heima í skrifherberginu mínu
á 1000 króna skrifborðsstólnum mín-
um sem ég fékk frá Nytjamarkaði
Skallagríms við skrifborðið sem Keli
tengdapabbi smíðaði þegar hann var
í grunnskóla. Ég stari á fyrirsögnina:
„Davíð Oddsson býður sig fram til
forseta“. Eins og góður skets þá las
ég hana tvisvar til að ná innihaldinu
alveg. Ég reyndar var búinn að fatta
það nokkurn veginn að Davíð ætlaði
að tilkynna framboð sitt því Hann-
es Hólmsteinn hafði nokkrum dög-
um áður skrifað einskonar lofgjörð
um herra sinn sem var einmitt birt í
viðhafnarútgáfu Morgunblaðsins. Því
átti reyndar að vera dreift frítt í öll
hús en ég hef ekki séð blaðið enn, ég
renni kannski við á bókasafninu við
tækifæri og kynni mér málið. Óbragð-
ið var ekki búið að ná að skolast úr
munni mínum þegar, eins og Hann-
es orðaði það svo fallega, upplitsdjarfi
alþýðupilturinn hann Davíð Odds-
son ákvað að hreinsa til í dagskránni
hjá Páli Magnússyni, sem nú stýrir
Sprengisandi á Bylgjunni, og tilkynna
framboð sitt. Holy shit!
Ætla að spara gífuryrðin sem leika
nú lausum hala í heilabúi mínu því ég
ætla að reyna að sleppa við óumbeðn-
ar bréfsendingar heim til mín sem
gætu mögulega innihaldið mótbár-
ur og pólitískar hótanir í minn garð.
Mig langar kannski einhvern tímann
að starfa fyrir flokkinn og þá er ekki
gott að vera búinn að gera grín að
„foringjanum“.
Ég segi bréfsendingar því að ég
býst nefnilega fastlega við því að þeir
sem eru í fótgönguliði Davíðs hafi
aldrei auðnast það að líta tölvuskjá
og lyklaborð með berum augum. Þeir
haldi frekar að það séu hlutir sem Ju-
les Verne skrifaði eitt sinn um í vís-
indafantasíum sínum, hvað þá síð-
ur að þeir hafi heyrt um fyrirbærið
tölvupóst því ekki
les Davíð þá.
En hvaða mann
erum við fá á
Bessastaði ef við
kjósum ritstjórann í Hádegismóum?
Ég veit það ekki sjálfur lengur, eina
sem ég hef heyrt og séð af Oddssyni
eru veruleikafirrt Reykjavíkurbréfin
sem ég skemmti mér við að lesa endr-
um og sinnum. En mig dettur í hug
dæmi samt sem áður og ætla að deila
því með ykkur.
Í raun og veru erum við að kjósa yfir
okkur Mr. Burns, svo ég vísi í popp-
menninguna. Davíð Oddsson býr að
óhugnalega miklum líkindum með
helstu andhetjunni í teiknimynda-
seríunni um Simpson-fjölskylduna.
Mr. Burns er forríkur heldri borgari
sem efast ekki eina sekúndu um eig-
ið ágæti, rétt eins og Davíð gerir svo
listavel. Mr. Burns er með fellihlera á
skrifstofunni sem hann notar óspart
á fólk sem hann finnst pirrandi, ok
Davíð er örugglega ekki með svoleið-
is á skrifstofu sinni en eflaust dreymir
um slíkan útbúnað.
Mr. Burns gat aldrei haft nafn-
ið hans Homer Simpsons rétt, alveg
eins og þegar Davíð skrifaði um Jón
Gnarr. Hann skrifaði hann alltaf Jón
Gunnar, gerði það eflaust viljandi,
gæti verið verra en þetta er bara óþarfa
bögg. Að lokum hefur Mr. Burns að-
stoðarmann sem dýrkar jörðina sem
hann gengur á og býr yfir óskyggðri
tryggð í hans garð hvað sem gengur
á, nú Davíð Oddsson hefur Hannes
Hólmstein, hann er hans Mr. Smit-
hers með öllu því sem fylgir. Ég gæti
haldið áfram en ég vona bara að þú,
kæri lesandi, hafir fylgst eitthvað með
ævintýrum Simpsons-fjölskyldunnar
síðastliðna tvo áratugi.
Góðar stundir
Axel Freyr Eiríksson
Lömbin þagna
Dag ur í lífi...
Nafn: Loftur Árni Björgvinsson.
Fjölskylduhagir/búseta: Ég bý í
Grundarfirði með sambýliskonu
minni Christiane (Kris) Klee og
dóttur minni, henni Mýrúnu
Lottu.
Starfsheiti/fyrirtæki: Ensku-
kennari í Fjölbrautaskóla Snæ-
fellinga.
Hvað felst í þínu starfi? Meira
en ég get auðveldlega þulið upp
– maður er mest að leiðbeina og
aðstoða nemendur í því sem þeir
eru að gera; svo reyni ég að kenna
smá ensku inn á milli.
Hvað er það besta við starfið?
Nemendurnir og samstarfsfólk-
ið – það er fátt betra en að fá að
vinna með jafn víðri flóru af mis-
munandi fólki á hverjum degi.
Áhugamál: Lestur, tungumál,
heimspeki, tölvufikt, hjóla- og
snjóbretti, spila á hljóðfæri, ori-
gami, djöggla og alls kyns meir.
Dagurinn: 4. maí 2016
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði rétt um hálf
átta, tannburstaði mig og fór svo
að hjálpa dóttur minni að gera sig
klára fyrir leikskólann.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Múslí með þurrkuðum
ávöxtum.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég rölti í vinnuna rétt
eftir klukkan átta.
Fyrstu verk í vinnunni: Ná mér
í kaffibolla, kveikja á tölvunni,
skoða póstinn og athuga hvort
að allt sé ekki klárt fyrir fyrstu
kennslustund dagsins.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Ég var að taka texta úr tal-
blöðrum í nokkrum teiknimynda-
sögum fyrir verkefni sem var lagt
fyrir í fyrsta tíma eftir hádegi.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Borðaði steiktan fisk í mötuneyti
skólans.
Hvað varstu að gera klukkan
14? Þjálfa MORFÍS lið skólans; í
dag vorum við að skoða og ræða
mælskubrögð og rökvillur.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
svaraði tölvupósti, gekk frá kaffi-
bollanum mínum og yfirgaf FSN
kl. 15:50.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Ég
fór að vinna í garðinum í nokkra
tíma. Eftir það tók við Legó og
þykjustuleikur með dóttur minni
þangað til um sexleytið, en þá fór
hún að horfa á teiknimyndir og
ég að lesa fréttir.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Hún Kris eldaði trölla-
pylsur með kartöflum, hvítkáli,
baunum og braune-Butter (rasp-
ur í bráðnu smjöri).
Hvernig var kvöldið? Mjög fínt
bara. Ég spilaði smá á Ukulele
heimavið og fór svo að horfða á
leik í meistaradeildinni. Eftir leik
spilaði ég spil með vinafólki fram
eftir kvöldi.
Hvenær fórstu að sofa? Aðeins
seinna en ég hefði átt að gera. Þar
sem morgundagurinn var frídag-
ur þá kom ég ekki heim fyrr en
upp úr eitt.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Ég tannburstaði mig og
gerði lesbrettið klárt fyrir svefn-
inn – þessa nóttina sofnaði ég eft-
ir smá lestur í Bond bókinni Dr.
No.
Hvað stendur upp úr eftir dag-
inn? Í dag komu 10.bekking-
ar frá Stykkishólmi og Grund-
arfirði í framhaldsskólahermi og
tóku þátt í skólastarfinu. Þegar
kom að enskunni þá sömdu þau
öll nokkurs konar málfræði-bull-
ljóð sem voru svo lesin upp. Það
var ansi skemmtilegur gjörningur
sem heppnaðist vel.
Enskukennara við FSN