Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2016 21
Sara Ósk, Sunneva Dís og Sandra
Sól 9 ára héldu tombólu og söfn-
uðu 2.025 kr sem þær færðu Rauða
krossinum. RKÍ á Akranesi þakkar
þeim kærlega fyrir þeirra framlag.
-fréttatilkynning
Seldu á tombólu fyrir RKÍ
Fyrir utan hefðbundið félagsstarf í
Sigurfara - Sjósportsfélagi Akraness
er markmið félagsins að starfrækja
siglingaskóla fyrir börn og ung-
linga á sumrin. „Til þess þarf t.d.
kænur, kajaka, árabáta og gúmmí-
bát með utanborðsmótor. Bátana er
hægt að merkja áberandi með nafni
styrktaraðila, þannig að á ferð-
inni sé lifandi auglýsing fyrir utan
Langasandinn,“ segir í tilkynningu
frá félaginu sem óskar aðstoðar fyr-
irtækja og einstaklinga við að gera
drauminn að veruleika. Þá hefur fé-
lagið óskað eftir því við Faxaflóa-
hafnir að sjósetningaraðstaða verði
lagfærð í Akraneshöfn, með stál-
grind fyrir léttari báta.
mm
Sigurfari leitar styrktaraðila
Núverandi sjósetningarrenna í höfn-
inni.
Laugardaginn 14. maí verður hald-
inn ljúfmetismarkaður í Stykkis-
hólmi. Verður hann staðsettur á
planinu fyrir framan Sjávarpakk-
húsið. Markaðurinn ber nafn-
ið Stykkishólmz Bitter og byggir
á hugtakinu „matarkistan Breiða-
fjörður“. Theódóra Matthíasdótt-
ir, einn skipuleggjenda, segir að
um sé að ræða svokallaðan götu-
matarmarkað sem er frábrugðinn
hefðbundnum sveitamörkuðum
þar sem framleiðendur selji sín-
ar afurðir beint. „Þess í stað munu
veitingamenn og matvælaframleið-
endur koma og kynna sína vöru og
gefa fólki að borða. Fólki býðst því
að bragða ýmsa smárétti og kynn-
ast því hvað er í boði og hve mikil
gróska er í matarmenningu á svæð-
inu,“ segir Theódóra.
Markaður komandi laugardags
er að sögn Theódóru áframhald
af þeim markaði sem haldinn var
í Hólminum um síðustu jól. „Við
erum enn að þróa þetta verkefni.
En stefnan er að halda framveg-
is markað bæði um jól og að vori.
Mögulega verða markaðir oftar
yfir árið í framtíðinni en það kem-
ur bara í ljós,“ segir hún. Theó-
dóra segir að markaðurinn í des-
ember síðastliðnum hafi verið mjög
vel sóttur. Þátttaka og viðbrögð
hafi farið fram úr öllum björtustu
vonum skipuleggjenda. „Núna eru
fleiri þátttakendur búnir að skrá sig
en síðast þannig að markaðurinn
verður enn stærri,“ segir Theódóra
ánægð og vonast til að sem flest-
ir leggi leið sína á markaðinn næst-
komandi laugardag. „Hugmynd-
in er að íbúar og þeir sem starfa í
veitinga- og matvælageiranum hafi
gaman að þessu, sem og aðrir gest-
ir,“ segir hún.
Markaðurinn verður sem áður
segir haldinn laugardaginn 14. maí
næstkomandi á milli klukkan 13 og
15.
kgk
Ljúfmetismarkaður í Stykkishólmi á laugardag
Það var margt um manninn á ljúfmetismarkaði Stykkishólmz Bitter í desember og fjölmargir kynntu vörur sínar. Að sögn
aðstandenda er útlit fyrir enn fleiri þátttakendur næstkomandi laugardag. Ljósm. sá.
Haustið 2015 byrjuðu nokkrar
prjónakonur á Akranesi að hittast
og prjóna saman. Í dag telur hópur-
inn um tuttugu konur og kalla þær
sig Snotrar stelpur. Hópurinn hittist
tvisvar í viku, annars vegar á Bóka-
safni Akraness og hins vegar í hús-
næði Rauða krossins. Í janúar á þessu
ári kviknaði sú hugmynd hjá hópn-
um að prjóna saman sjalið „Explora-
tion Station“ eftir bandaríska prjóna-
hönnuðinn og Íslandsvininn Stephen
West. Síðastliðinn mánudag var opn-
uð sýning á bókasafninu þar sem sjá
má meirihlutann af þeim Explora-
tion Station sjölum sem stelpurn-
ar snotru prjónuðu saman. Sýningin
verður opin út maímánuð. Stelpurn-
ar segjast margar hafa haldið áfram
að prjóna eftir uppskriftum Steph-
en West eftir að hafa lokið við sjölin.
„Það eru sumar okkar búnar að gera
nokkur sjöl síðan þær byrjuðu. Hann
er litaglaður hönnuður, er með alls
konar prjón og úrtökur og er mjög
hugmyndaríkur. Hann er mikið fyrir
göt og klukkuprjón,“ segja þær. „Það
eru fjölmargar konur á Íslandi að
prjóna þessi sjöl og fleira eftir hann.
Hann er mjög vinsæll á Íslandi.“
Nauðsynlegt að hafa
góða verslun
Sjölin sem hanga til sýnis á bóka-
safninu eru þrettán talsins. Þau eru
öll prjónuð eftir sömu uppskriftinni.
Þau eru misstór og vegna mismun-
andi litasamsetninga eru þau mjög
ólík í útliti. „Mitt sjal hefur nokkr-
ar vitleysur. En ég rek ekki upp og
hef þær bara til minningar um hug-
arástand mitt á meðan ég var að
prjóna,“ segir Margrét Bára Jóseps-
dóttir í samtali við blaðamann. Vin-
konurnar hafa haldið áfram að hittast
þrátt fyrir að hafa lokið við verkefnið
og eru í dag að prjóna eitt og annað,
svo sem sjöl, sokka og sitthvað fleira.
Þær segjast hvergi nærri hættar og að
lítil takmörk séu fyrir því hvað þær
taki sér fyrir hendur. Allar eru þær
sammála um að það hafi verið gaman
að prjóna saman eftir sömu uppskrift.
Ein segir þó hafa upplifað sig sem
svolítinn tossa á meðan á verkefninu
stóð, enda hafi hlaupið örlítið kapp
í hópinn. „En það er alltaf einhver
sem kann og getur leiðbeint manni
ef maður lendir í vandræðum. Það
er alltaf hægt að fá hjálp og allir eru
tilbúnir að leiðbeina. Þetta er sam-
heldinn hópur,“ segir önnur. Þegar
blaðamann Skessuhorns bar að garði
við opnun sýningarinnar sátu Snotru
stelpurnar flestar og prjónuðu stykki
sem nota átti í verk sem sett var upp
síðar sama dag. Þær ákváðu að graffa
ljósastaur fyrir utan verslunina Gall-
erý Snotru við Kirkjubraut, í virðing-
ar- og þakklætisvotti. „Lína í Gallerý
Snotru er heiðursfélagi. Við kaupum
garnið hjá henni og höfum fengið
góðan afslátt. Það er lífsnauðsynlegt
að hafa svona góða verslun hérna,“
segja þær. „Við vildum líka draga at-
hyglina að versluninni og garninu
sem þar er selt. Þarna er einnig nær-
fatabúð og það ber lítið á garninu í
glugganum,“ bæta þær hressar við að
endingu. grþ
Snotrar stelpur setja upp sýningu
Hluti hópsins við opnun sýningarinnar. Fyrir ofan má sjá hluta þeirra Exploration Station sjala sem til sýnis eru.
Snotrar stelpur gröffuðu ljósastaur
fyrir utan verslunina Gallerý Snotru á
Akranesi af virðingar- og þakklætis-
votti.
Einbeittar að prjóna.