Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2016 23
“Það er þörf fyrir svona skilti,“ seg-
ir Högni Högnason, yfirmaður í
áhaldahúsinu í Stykkishólmi. Ný-
verið setti hann upp sjaldséð bann-
skilti. Það er staðsett við Grens-
ás, skógræktar- og útivistasvæðið,
rétt fyrir utan Stykkishólmsbæ og
gefur til kynna að fólki sé óheim-
ilt að hafa hægðir á svæðinu. Högni
segir mikið hafa verið kvartað yfir
mannasaur á svæðinu. „Túristar
eru að koma hér að tjalda og gera
svo þarfir sínar í skóginum,“ seg-
ir hann. Það var ekki laust við að
starfsmönnum áhaldahússins þætti
skiltið hálf spaugilegt og sagði
Högni manninn á skiltinu nákvæma
eftirmynd af ónefndum vinnufélga
sínum, og hló svo dátt. Skiltið var
ekki það eina sinnar tegundar sem
sett var upp.
jse
Sjaldséð skilti sett
upp í Hólminum
Hjalti, starfsmaður áhaldahússins, við skiltið góða.
Nýlega var úthlutað ríkisstyrkjum
að upphæð 32 milljónir króna til at-
vinnumála kvenna. Alls hlutu 33
verkefni styrk í samræmi við niður-
stöðu ráðgjafarnefndar sem vann fyr-
ir félagsmálaráðuneytið, en nefnd-
in mat umsóknirnar. Alls bárust
219 umsóknir um styrki til verkefna
hvaðanæva af landinu. Í tilkynningu
frá ráðuneytinu kemur fram að verk-
efnin voru fjölbreytt að venju. Má
þar nefna fórnarfóðringu fyrir jarð-
hitaborholur, þróun vistvænna um-
búða í stað plasts og ræktun stofn-
fruma með nýjum aðferðum. Þessi
verkefni hlutu þrjár milljónir króna
hvert. Af fleiri verkefnum má nefna
framleiðslu á lífrænni ánamaðk-
amold, gerð viðskiptaáætlunar fyr-
ir útgáfu á pólsk-íslensku tímariti og
gerð viðskiptaáætlunar fyrir fræðslu-
og fjölskylduspilið Fuglafár.
Tveir styrkir
á Vesturland
Samkvæmt lista ráðuneytisins um
úthlutun styrkja eru tveir styrk-
þegar af Vesturlandi að þessu
sinni. Rósa Björk Halldórsdóttir í
Hvalfjarðarsveit fékk þrjár millj-
ónir króna í vöruþróunarverkefn-
ið „Þróun vistvænna umbúða í stað
umbúða úr plasti.“ Hins vegar fær
fyrirtækið Nónklettur ehf á Jörfi í
Dölum eina milljón króna í styrk
til þróunar og markaðssetningar
byggingartengds keramiks.
„Með styrkjum sem þessum er
stuðlað að aukinni fjölbreytni í at-
vinnulífinu en fjölmörg ný fyr-
irtæki hafa litið dagsins ljós sem
skapa störf, samfélaginu til hags-
bóta. Einnig er styrkveiting sem
þessi mikil hvatning fyrir konur
sem er ekki síður mikilvæg þegar
á hólminn er komið,“ segir í til-
kynningu frá ráðuneytinu. Skilyrði
styrkveitinga eru þau að verkefnin
séu í eigu kvenna, stjórnað af þeim
og feli í sér nýnæmi eða nýsköp-
un. Ekki er nauðsynlegt að vera
með starfandi fyrirtæki til að sækja
um styrk og því er heimilt að sækja
um vegna verkefna á byrjunar-
stigi en einnig geta þær konur sótt
um styrk sem eru að þróa nýjung-
ar í starfandi fyrirtækjum. Unnt er
að sækja um styrki til gerðar við-
skiptaáætlunar, vegna markaðs-
setningar, vöruþróunar, hönnunar
og vegna launakostnaðar en ekki
eru veittir styrkir til framkvæmda
eða vegna stofnkostnaðar.
mm
Styrkjum úthlutað til
atvinnumála kvenna
Styrkþegar ásamt Eygló Harðardóttur félagsmálaráðherra.
Horfur í efnahagslífinu eru bjart-
ar um þessar mundir og gangi spá
hagdeildar Alþýðusambands Ís-
lands eftir verður samfelldur hag-
vöxtur hér á landi í átta ár. Spáð er
kraftmiklum hagvexti á þessu ári,
4,9%, og að jafnaði 3,8% vexti á
árunum 2017–2018. Vöxturinn
hvílir á vaxandi kaupmætti, upp-
gangi í ferðaþjónustu og aukinni
fjármunamyndun atvinnuveganna
og sést bæði í auknum þjóðarút-
gjöldum og áframhaldandi vexti
útflutnings.
„Í slíkum efnahagslegum upp-
gangi finnast stórar áskoranir og
mikilvægt að hagstjórn miði að
því að tryggja efnahagslegan stöð-
ugleika á næstu árum. Skýr merki
um spennu sjást nú á vinnumark-
aði, vöxtur innlendrar eftirspurn-
ar er mikill en hagfelld þróun á
hrávöruverði og gengi krónunn-
ar hafa haldið verðbólgu lágri og
verðstöðugleikinn er því brot-
hættur. Verðbólga helst lág á þessu
ári, 1,9% að jafnaði, en þrýstingur
til hækkunar verðlags mun aukast
eftir því sem líður á árið og verð-
bólga verður um 3,1% á árunum
2017–2018 að mati hagdeildar
ASÍ. Nokkur óvissa ríkir um gengi
krónunnar og myndi frekari styrk-
ing draga úr verðbólguþrýstingi.
Hagdeildin gerir ráð fyrir kraft-
miklum vexti einkaneyslunnar á
spátímanum sem rekja má til já-
kvæðrar þróunar á fjárhagsstöðu
heimilanna. Hagvísar styðja mat
hagdeildar upp á 6% vöxt einka-
neyslunnar á þessu ári og því út-
lit fyrir að vöxturinn verði sá mesti
frá árinu 2007.“
Meðal þess sem fram kem-
ur í hagspá ASÍ er að ótrúlegum
uppgangi er spáð í ferðaþjónustu
en ekkert lát hefur verið á fjölg-
un ferðamanna sem hefur á þessu
ári enn farið fram úr væntingum.
„Ferðaþjónustan mun áfram halda
uppi vexti útflutnings á spátíman-
um og gerir hagdeildin ráð fyr-
ir 6,4% útflutningsvexti á þessu
ári og að jafnaði 4,2% vexti á ár-
unum 2017–2018. Mikill vöxtur
innflutnings dregur úr afgangi af
vöru- og þjónustuviðskiptum milli
ára sem er áætlaður 6,1% á þessu
ári en 4,9% í lok spátímans. Auk-
in þjóðarútgjöld og fjölgun ferða-
manna skýra vaxandi innflutnings-
þörf en samkvæmt spánni verð-
ur árlegur vöxtur innflutnings að
meðaltali 6,8% yfir spátímann.
Skýr merki um spennu sjást
á vinnumarkaði. Atvinnuþátt-
taka mælist tæp 83%, þriðjung-
ur fyrirtækja finnur fyrir skorti á
starfsfólki og útlit er fyrir að eft-
irspurn eftir vinnuafli haldi áfram
að aukast á næstunni. Erfitt mun
reynast að mæta aukinni vinnuafls-
eftirspurn innanlands og því lík-
legt að erlendu starfsfólki fjölgi.
Ofangreind þróun mun draga úr
atvinnuleysi og það kann að verða
á bilinu 2,4–2,6% á spátímanum.“
Nánar má lesa um hagspá ASÍ á
vef sambandsins. mm
Spá hátt í fimm prósenta hagvexti á þessu ári
Erfitt mun reynast að mæta aukinni vinnuaflseftirspurn nema sækja til útlanda
eftir því. Húsnæðisverð verður áfram hátt og mun að líkindum hækka.
Skýr merki eru um spennu á
vinnumarkaði.
Tryggingafélagið VÍS mun tryggja
Þörungaverksmiðjuna á Reykhól-
um til þriggja ára samkvæmt samn-
ingi sem nýverið var skrifað undir.
Fyrirtækin hafa átt í samstarfi um
tryggingar í rúma þrjá áratugi. „Við
höfum átt ákaflega farsæla sam-
leið um langt skeið og það er okkur
sönn ánægja að þjónusta Þörunga-
verksmiðjuna áfram,“ segir Þor-
björg Magnúsdóttir þjónustustjóri
VÍS á Vesturlandi. „Til marks um
það hve framúrskarandi viðskipta-
vinurinn er má benda á að þegar
Forvarnaverðlaun VÍS voru afhent
í fyrsta skipti, árið 2010, þá féllu
þau Þörungaverksmiðjunni í skaut.
Þeirri viðurkenningu hefur verið
fylgt vel eftir og er forvarnarstarf
sem fyrr til fyrirmyndar þar á bæ
sem og öll okkar samskipti.“
Finnur Árnason framkvæmda-
stjóri Þörungaverksmiðjunnar tek-
ur undir með Þorbjörgu. „Við höf-
um verið ánægð með þjónustu VÍS
og vorum því tilbúin til að halda
áfram viðskiptunum þegar síð-
asti samningur var að renna sitt
skeið. Við höfum verið blessunar-
lega laus við stóráföll í rekstrinum
og þá sjaldan eitthvað hefur bját-
að á, hafa starfsmenn VÍS brugð-
ist hratt og vel við. Í samræmi við
það og þrýsting á áframhaldandi
góð kjör ákváðum við að endurnýja
samstarfið.“
-fréttatilkynning
VÍS tryggir Þörungaverksmiðjuna
Vorlestin er samstarfsverkefni fimm
fyrirtækja sem ferðast saman um land-
ið á um tveggja vikna tímabili með
það að markmiði að kynna bændum
þá þjónustu og vörur sem fyrirtækin
hafa upp á að bjóða. Fyrirtækin sem
voru í lestinni í ár eru Jötunn, Lífland,
Skeljungur, Mjöll-Frigg og Lands-
bankinn. Lestin kom við á 15 stöð-
um umhverfis landið og var á vest-
urhlutanum 2.-3. maí með viðkomu
á Króksfjarðarnesi, í Búðardal og á
Hvanneyri. Á meðfylgjandi mynd má
sjá yfir yfirlitsmynd yfir KM þjón-
ustuna í Búðardal meðan Vorlestin
stóð fyrir kynningu þar. sm
Vorlestin kom við á Vesturlandi