Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 201624 Á uppstigningardag hélt Tónlistarfélag Borgarfjarðar upp á hálfrar aldar afmæli sitt með því að bjóða til tónlistarviðburða þann dag allan. Áætlað er að um 600 gestir hafi mætt á viðburði þennan dag. Dagskráin hófst með söng Söngbræðra í Brákar- hlíð, síðan sat Birgir Þórisson við flygill Barónsins á Hvítárvöll- um í Safnahúsinu. Þá efndi Tónlistarskóli Borgarfjarðar til tón- leika þar sem nemendur og kennarar skólans glöddu viðstadda. Áður færði Tónlistarfélagið skólanum nýútkomna bók um sögu tónlistar að gjöf. Þar minnist Hjörtur Þórarinsson þeirra Frið- jóns Sveinbjörnssonar og Jakobs Jónssonar á Varmalæk en þeir þrír fóstruðu tónlistarfélagið um langt árabil. Klukkan tvö var komið að þýskri messu Schuberts í Borg- arneskirkju er kór kirkjunnar og Reykholtskórinn fluttu í Guðsþjónustu. Í Landnámssetrinu söng Branddís Hauks- dóttir við undirleik Zsuzsönnu Budai og þá var skundað aft- ur upp í Brákarhlíð til að taka þátt í fjöldasöng með þeim Snorra Hjálmarssyni á Fossum og Bjarna Guðmundssyni á Hvanneyri. Og enn í Borgarneskirkju á þrennu: Fyrst leiddi Jónína Erna þær systur Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu dæt- ur Theodóru og Olgeirs, Steinunni í Hjarðarholti og Ástu Marý í Skipanesi í fallegum söng. Eftir það flutti Steinunn frá Brennistöðum orgeltónlist áður en Gleðigjafarnir og Freyjukórinn luku þriggja tíma stund. Að endingu var Soffía frá Einarsnesi mætt með Ingibjörgu Elínu bassaleikara og Pétri Ben gítarleikara til að tóna Tónlistarfélag Borgarfjarð- ar inn í nýja hálföld. Stjórn Tónlistarfélags Borgarfjarðar er skipuð þeim Önnu Guðmundsdóttur á Borg, Einari G. Pálssyni í Borgarnesi og Jónínu Eiríksdóttur í Reykholti. Þeim ber að þakka fyrir æv- intýralega góða afmælishátíð sem ber þeim fagurt vitni um áræði, víðsýni og áhuga á tónlistarræktun og til að gera okk- ur liljum vallarins lífið yndislegra. Guðlaugur Óskarsson skráði og tók meðfylgjandi myndir. Samfelld tónlistarveisla á afmæli Tónlistarfélags Borgarfjarðar

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.