Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 201624
Á uppstigningardag hélt Tónlistarfélag Borgarfjarðar upp á
hálfrar aldar afmæli sitt með því að bjóða til tónlistarviðburða
þann dag allan. Áætlað er að um 600 gestir hafi mætt á viðburði
þennan dag. Dagskráin hófst með söng Söngbræðra í Brákar-
hlíð, síðan sat Birgir Þórisson við flygill Barónsins á Hvítárvöll-
um í Safnahúsinu. Þá efndi Tónlistarskóli Borgarfjarðar til tón-
leika þar sem nemendur og kennarar skólans glöddu viðstadda.
Áður færði Tónlistarfélagið skólanum nýútkomna bók um sögu
tónlistar að gjöf. Þar minnist Hjörtur Þórarinsson þeirra Frið-
jóns Sveinbjörnssonar og Jakobs Jónssonar á Varmalæk en þeir
þrír fóstruðu tónlistarfélagið um langt árabil.
Klukkan tvö var komið að þýskri messu Schuberts í Borg-
arneskirkju er kór kirkjunnar og Reykholtskórinn fluttu í
Guðsþjónustu. Í Landnámssetrinu söng Branddís Hauks-
dóttir við undirleik Zsuzsönnu Budai og þá var skundað aft-
ur upp í Brákarhlíð til að taka þátt í fjöldasöng með þeim
Snorra Hjálmarssyni á Fossum og Bjarna Guðmundssyni á
Hvanneyri. Og enn í Borgarneskirkju á þrennu: Fyrst leiddi
Jónína Erna þær systur Sigríði Ástu og Hönnu Ágústu dæt-
ur Theodóru og Olgeirs, Steinunni í Hjarðarholti og Ástu
Marý í Skipanesi í fallegum söng. Eftir það flutti Steinunn
frá Brennistöðum orgeltónlist áður en Gleðigjafarnir og
Freyjukórinn luku þriggja tíma stund. Að endingu var Soffía
frá Einarsnesi mætt með Ingibjörgu Elínu bassaleikara og
Pétri Ben gítarleikara til að tóna Tónlistarfélag Borgarfjarð-
ar inn í nýja hálföld.
Stjórn Tónlistarfélags Borgarfjarðar er skipuð þeim Önnu
Guðmundsdóttur á Borg, Einari G. Pálssyni í Borgarnesi og
Jónínu Eiríksdóttur í Reykholti. Þeim ber að þakka fyrir æv-
intýralega góða afmælishátíð sem ber þeim fagurt vitni um
áræði, víðsýni og áhuga á tónlistarræktun og til að gera okk-
ur liljum vallarins lífið yndislegra.
Guðlaugur Óskarsson skráði og tók meðfylgjandi myndir.
Samfelld tónlistarveisla á afmæli
Tónlistarfélags Borgarfjarðar