Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 20166 Landmælingar Íslands sextíu ára AKRANES: Í tilefni þess að Landmælinga Íslands eiga 60 ára afmæli á þessu ári býður stofnunin til afmælisráðstefnu föstudaginn 20. maí næstkom- andi. Hún verður haldin í Tón- bergi á Akranesi frá klukkan 9 til 12. Þar verður lögð áherslu á notendur gagna og þjónustu Landmælinga Íslands og fjöl- breytt dagskrá í boði (sjá aug- lýsingu í Skessuhorni í dag). Frá klukkan 14 til 17 verður svo opið hús á Landmæling- um Íslands að Stillholti 16 – 18. Því má við þetta bæta að með Skessuhorni í næstu viku fylgir sérblað sem tileinkað er afmæli LMÍ. -mm Fjögur skráð óhöpp í umferðinni VESTURLAND: Alls urðu fjögur umferðaróhöpp í vik- unni sem leið í umdæmi Lög- reglunnar á Vesturlandi. Ekið var aftan á kyrrstæðan bíl sem ökumaður hugðist beygja af Vesturlandvegi inn afleggjara að Ölveri. Ökumennirnir voru báðir fluttir á heilsugæslustöð- ina í Borgarnesi til nánari skoð- unar en meiðsli þeirra voru tal- in minniháttar. Húsbíll fauk útaf Snæfellsnesvegi við Böðv- arsholt og hafnaði ofan í veg- skurði. Um erlenda ferðamenn var að ræða sem sluppu án telj- andi meiðsla. Tveir ökumenn voru teknir grunaðir um akst- ur undir áhrifum fíkniefna og einn talinn vera undir áhrif- um lyfja. Lögreglumenn tóku um 60 ökumenn fyrir of hrað- an akstur í vikunni og um 500 myndir voru teknar af sjálfvirku hraðamyndavélunum og um 90 af þeim voru teknar við Fiskilæk sunnan Hafnarfjalls. Loks festu erlendir ökumenn bílaleigubíl sinn í snjó á Kaldadal og voru þjónustuaðilar fengnir til að að- stoða ferðafólkið. -mm Vilja lækka komugjöld til geðlækna LANDIÐ: Stjórn Geðhjálpar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem skorað er á heilbrigð- isráðherra að lækka komu- gjöld til geðlækna í fyrirliggj- andi frumvarpi um sjúktra- tryggingar. „Ef frumvarpið verður að lögum hækkar með- alkostnaður öryrkja við geð- læknisþjónustu úr um 20.000 kr. í 63.500 kr. eða um 43.000 kr. á ári. Stjórnin lítur svo á að stefna beri að því að íslensk heilbrigðisþjónusta verði gjaldfrjáls og því eigi ekki að þyngja byrðar öryrkja og al- mennings eins og gert er með frumvarpinu. Öryrki með geð- fötlun leitar að meðaltali sex sinnum til sjálfstætt starfandi geðæknis og nokkrum sinn- um til lækna á heilsugæslu og sjúkrahúsum á hverju ári.“ -mm Árni Páll hætti við formanns- framboð LANDIÐ: Árni Páll Árna- son, formaður Samfylkingar- innar, tilkynnti í síðustu viku að hann væri hættur við að gefa kost á sér til endurkjörs í stöðu formanns. Í bréfi til flokksfélaga sinna sagði for- maðurinn efnislega að ekki væri nægjanlega góð ein- ing um persónu hans á sama tíma og flokkurinn mælist með lítið fylgi í könnunum. Árni Páll segir stöðu Sam- fylkingarinnar óásættanlega og varar flokksmenn við að halda að einföld lausn sé til á henni. „En hugsjónir jafn- aðarmanna þurfa samhentan og skynsaman flokk sem ber þær fram og persónur geta ekki staðið þeim framar. Ég hef því ákveðið að bjóða mig ekki fram til endurkjörs sem formaður flokksins.“ Í frétt á öðrum stað í blaðinu í dag er sagt frá þeim fjórum sem bjóða sig fram til formanns í flokknum. -mm Norðan strekkingsvind gerði um vestanvert landið að morgni upp- stigningardags. Allhvasst varð á nokkrum stöðum, svo sem í Staðar- sveit og Kollafirði. Þrátt fyrir sterkar hviður á Kjalarnesi og Kollafirði fór ökumaður húsbíls akandi um svæðið þennan morgun, en fyrr um morg- uninn hafði vindur í hviðum mælst 45 metrar á sekúndu. Sesselja Anna Óskarsdóttir var farþegi í þarnæsta bíl á eftir húsbílnum. Þar sem hún gerði sér grein fyrir að þetta væri glæfraför tók tók hún upp á mynd- band í símanum hinstu för húsbíls- ins. Náði mynd þegar bíllinn lagðist á hliðina á vegriðið og valt þaðan nið- ur í fjöru og splundraðist. Meðfylgj- andi er skjáskot úr þeirri upptöku. Þótt ótrúlegt megi virðast slapp öku- maður húsbílsins lítið meiddur. Ástæða er til að benda eigend- um húsbíla, hjólhýsa, aftanívagna og annarra tækja, sem taka á sig mikinn vind miðað við þyngt, að tækin eru ótryggð sé hægt að sýna fram á að vindur um viðkomandi veg hafi ver- ið yfir hættumörkum skömmu áður. Líklega fær því eigandi húsbílsins tjón sitt ekki bætt. mm Húsbíll fauk í Kollafirði Húsbíllinn að fjúka og er hér lagstur á vegriðið sunnan við veginn í Kollafirði. Ljósm. saó. Yfirbygging húsbílsins splundraðist. Ljósm. hb.Brakið í fjörunni í Kollafirði og stýrishúsið úti í sjó. Ljósm. áþ. Kirkjuskólar Dala-, Reyk- hóla- og Hólmavíkur- prestakalls sameinuðust með lokahátíð í félags- heimilinu Tjarnarlundi í Dölum sunnudaginn 8. maí. Leiksýningin Haf- dís og Klemmi var sýnd við mikla ánægju unga fólksins og að því loknu var haldið út í grillveislu í sumri og sól. Á með- fylgjandi mynd má sjá þau Hafdísi og Klemma í sólskinsskapi með börn- unum. sm Hafdís og Klemmi í sólskinsskapi

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.