Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 201616
Fornbílafjelag Borgarfjarðar og Bifhjólafjélagið Raftarnir
héldu sameiginlega stórsýningu í Brákarey á laugardaginn.
Þetta er í þriðja skipti sem félögin sameinast um sýningar-
haldið, en fimmtán ár eru síðan Raftar héldu fyrstu sýningu
sína í Borgarnesi, en eitt ár féll úr á þeim tíma þannig að sýn-
ingar þeirra eru nú orðnar fjórtán. Fornbílafjelagið er yngri
félagsskapur og á sér því ekki eins langa sögu, en er engu að
síður fjölmennur og sífellt vaxandi hópur áhugafólks um eldri
bíla. Frítt var á sýninguna og kunnu gestir og gangandi vel að
meta það.
Að sögn Höllu Magnúsdóttur formanns Raftanna gekk sýn-
ingarhaldið og dagurinn í það heila tekið eins vel og kostur
var. Ræst hafi úr veðrinu þegar líða tók á morguninn, tekið
hafi að lygna á veginum við Hafnarfjall, en hvassviðri er afar
óæskilur fylgifiskur svona sýningarhalds. Halla áætlar að á
þriðja þúsund gestir hafi mætt á svæðið. „Það gekk vel og all-
ir sem ég hef rætt við voru ánægðir. Fjölmargir gestaklúbbar
komu með hjól og bíla, sem og einstaklingar sem sýndu öku-
tæki sín. Auk þess kynntu umboðs- og söluaðilar ýmsar vörur
og Golfklúbbur Borgarness og Skotfélag Vesturlands starf-
semi sína, en þessi félög hafa bæði æfingaaðstöðu í gamla slát-
urhúsinu eins og við og Fornbílafjelagið. Svo um kvöldið þeg-
ar gestir voru farnir grilluðum félagsmenn í báðum félögun-
um saman í nýju félagsaðstöðu okkar Raftanna. Dagurinn var
því góður og við erum alsæl,“ segir Halla. Sömu sögu höfðu
félagar í Fornbílafjélaginu að segja sem blaðamaður ræddi
við. Létt var yfir mannskapnum og ánægja með hversu margir
gestir lögðu leið sína í Brákarey á laugardaginn.
Blaðamaður kýs að láta myndirnar tala sínu máli. Hann er
ekki nægjanlega vel að sér í bílategundum og árgerðum til að
leggja út í þá vegferð að gefa öllum farartækjum á sýningunni
nöfn og kennitölur þannig að hnökralaust yrði.
mm
Á þriðja þúsund gestir á bíla- og mótorhjólasýningu