Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2016, Page 16

Skessuhorn - 11.05.2016, Page 16
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 201616 Fornbílafjelag Borgarfjarðar og Bifhjólafjélagið Raftarnir héldu sameiginlega stórsýningu í Brákarey á laugardaginn. Þetta er í þriðja skipti sem félögin sameinast um sýningar- haldið, en fimmtán ár eru síðan Raftar héldu fyrstu sýningu sína í Borgarnesi, en eitt ár féll úr á þeim tíma þannig að sýn- ingar þeirra eru nú orðnar fjórtán. Fornbílafjelagið er yngri félagsskapur og á sér því ekki eins langa sögu, en er engu að síður fjölmennur og sífellt vaxandi hópur áhugafólks um eldri bíla. Frítt var á sýninguna og kunnu gestir og gangandi vel að meta það. Að sögn Höllu Magnúsdóttur formanns Raftanna gekk sýn- ingarhaldið og dagurinn í það heila tekið eins vel og kostur var. Ræst hafi úr veðrinu þegar líða tók á morguninn, tekið hafi að lygna á veginum við Hafnarfjall, en hvassviðri er afar óæskilur fylgifiskur svona sýningarhalds. Halla áætlar að á þriðja þúsund gestir hafi mætt á svæðið. „Það gekk vel og all- ir sem ég hef rætt við voru ánægðir. Fjölmargir gestaklúbbar komu með hjól og bíla, sem og einstaklingar sem sýndu öku- tæki sín. Auk þess kynntu umboðs- og söluaðilar ýmsar vörur og Golfklúbbur Borgarness og Skotfélag Vesturlands starf- semi sína, en þessi félög hafa bæði æfingaaðstöðu í gamla slát- urhúsinu eins og við og Fornbílafjelagið. Svo um kvöldið þeg- ar gestir voru farnir grilluðum félagsmenn í báðum félögun- um saman í nýju félagsaðstöðu okkar Raftanna. Dagurinn var því góður og við erum alsæl,“ segir Halla. Sömu sögu höfðu félagar í Fornbílafjélaginu að segja sem blaðamaður ræddi við. Létt var yfir mannskapnum og ánægja með hversu margir gestir lögðu leið sína í Brákarey á laugardaginn. Blaðamaður kýs að láta myndirnar tala sínu máli. Hann er ekki nægjanlega vel að sér í bílategundum og árgerðum til að leggja út í þá vegferð að gefa öllum farartækjum á sýningunni nöfn og kennitölur þannig að hnökralaust yrði. mm Á þriðja þúsund gestir á bíla- og mótorhjólasýningu

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.