Skessuhorn


Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 11.05.2016, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 20168 Höfundarverk Snorra á málstofu REYKHOLT: Málstofa um höfundarverk Snorra Sturlusonar og viðtökur verka hans (Snorri Sturlu- son‘s Authorship and Af- terlife) verður haldin á vegum Stofnunar Árna Magnússonar og Snorra- stofu í hátíðarsal gamla Héraðsskólans í Reykholti annan dag hvítasunnu – mánudaginn 16. maí 2016, kl. 10-16. Málstofan er öll- um opin og er allt áhuga- fólk um Snorra velkom- ið, en til hagræðis væri einkar hentugt að lá skrá sig – bergur@snorrastofa. is eða með því að hringja í síma 862-2583. Dagskrá málstofunnar má finna á snorrastofa.is. -fréttatilk. Háskólar undir- fjármagnaðir LANDIÐ: „Rektorar allra háskóla á Íslandi lýsa mikl- um vonbrigðum með að háskólar verði skildir eftir í þeirri sókn í íslensku sam- félagi sem fjármálaáætlun ríkisstjórnarninnar fyrir árin 2017–2021 gerir ráð fyrir. Þar er gert ráð fyrir verulegri heildarútgjalda- aukningu sem endurspegl- ast ekki í fjárveitingum til háskóla- og rannsóknar- starfs,“ segir í ályktun sem félag háskólarektora hef- ur sent frá sér. „Skýrslur OECD hafa sýnt fram á með óyggjandi hætti að ís- lenskir háskólar eru veru- lega undirfjármagnaðir og fá til að mynda helm- ingi lægra framlag á hvern nemanda en háskólar á Norðurlöndum. Þrátt fyr- ir að skýrt sé sagt í stefnu og aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs að framlag á hvern háskólanema verði sambærilegt við Norður- löndin árið 2020, er ekk- ert í tillögu til þingsálykt- unar um fjármálaáætlun næstu fimm ára sem bend- ir til þess að nokkur breyt- ing verði á fjármögnun há- skóla hér á landi. Mennt- un er lykill að velsæld þjóða og rannsóknir eru drifkraftur framfara. Þess vegna er núverandi tillaga að fimm ára fjármálaáætl- un ekki einungis vonbrigði heldur mun hún, verði hún samþykkt óbreytt, hafa verulega neikvæð áhrif á háskólanám, vísindastarf, framþróun í atvinnusköp- un og samkeppnisstöðu Ís- lands til framtíðar,“ segja háskólarektorarnir. -mm Áttu stutt stopp GRUNDARFJ: Frystitog- arinn Brimnes RE-27 átti viðkomu í Grundarfirði á uppstigningardag. Skip- ið gerði þó stutt stopp en það var einungis að sækja umbúðir sem biðu á höfn- inni. Skipið sem var smíð- að árið 2002 er gert út af Brimi hf og er með heima- höfn í Reykjavík. Það hefur verið að landa rækju, gull- laxi og grálúðu svo eitthvað sé nefnt. -tfk Aflatölur fyrir Vesturland 30. apríl - 6. maí Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes 25 bátar. Heildarlöndun: 87.609 kg. Mestur afli: Klettur MB: 14.688 kg í einni löndun. Arnarstapi 33 bátar. Heildarlöndun: 193.238 kg. Mestur afli: Bárður SH: 75.206 kg í átta löndunum. Grundarfjörður 32 bátar. Heildarlöndun: 268.798 kg. Mestur afli: Hringur SH: 67.455 kg í einni löndun. Ólafsvík 38 bátar. Heildarlöndun: 379.157 kg. Mestur afli: Steinunn SH: 131.028 kg í fjórum lönd- unum. Rif 29 bátar. Heildarlöndun: 422.590 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 145. 892 kg í tveimur lönd- unum. Stykkishólmur 13 bátar. Heildarlöndun: 26.489 kg. Mestur afli: Bíldsey SH: 18.522 kg í þremur lönd- unum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Tjaldur SH - RIF: 73.627 kg. 2. maí. 2. Tjaldur SH - RIF: 72.265 kg. 6. maí. 3. Hringur SH - GRU: 67.455 kg. 3. maí. 4. Grundfirðingur SH - GRU: 53.749 kg. 30. apríl. 5. Örvar SH - RIF: 48.161 kg. 2. maí. Hótel Bjarkalundur í Reykhóla- sveit var formlega opnað um mán- aðamótin og munu dyr hótels- ins standa gestum opnar út októ- bermánuð. „Við opnuðum form- lega 1. maí en vorum þá reynd- ar búin að taka á móti gestum frá því á sumardaginn fyrsta. Verðum við með opið fyrir almenna gist- ingu og veitingar út október,“ seg- ir Logi Guðjónsson hótelstjóri. Hann segir útlitið gott fyrir sum- arið, bókanir standi vel. „Sumar- ið lítur ljómandi vel út. Mér sýnist bókanir vera allt að 70 prósentum fleiri nú en á sama tíma í fyrra,“ segir hann. „Auk þess stefnir allt í að bókanir nú í maí verði allt að tvöfalt fleiri en á síðasta ári. Maí hefur oft verið lélegur mánuður hjá okkur en lítur mjög vel út núna og við erum því bjartsýn á sumarið,“ bætir hann við. Logi segir að reksturinn verði áfram með sambærilegu sniði og verið hefur. Bjarkalundur er hótel og veitingastaður auk þess sem þar er lítil verslun og tjaldsvæði. Auk þess verða sumarbústaðirnir áfram leigðir út sem hluti af hótelinu. „Yfir hásumarið hefur verið mik- il eftirspurn eftir bústöðunum, þar sem fólk getur verið örlítið meira út af fyrir sig,“ segir hann. Megnið af gestunum verða eins og verið hefur erlendir ferðamenn. „Erlendir ferðamenn eru uppistað- an, ætli það séu ekki um 90 pró- sent bókana enn sem komið er. En það eins og verið hefur að erlendir ferðamenn skipuleggja sínar ferðir með lengri fyrirvara,“ segir Logi. „En við erum alltaf tilbúin að taka vel á móti öllum sem hingað koma, hvort sem er í gistingu eða mat. Hingað eru allir velkomnir,“ bætir hann við að lokum. kgk Útlit fyrir gott sumar í Bjarkalundi Hótel Bjarkalundur í Reykhólasveit. Ljósm. Bjarkalundur. Sauðburður stendur nú víða yfir í fjárhúsum landsins, er hann af mörgum talinn skemmtilegasti tími ársins og hinn sanni vorboði, þótt veðrið láti misjafnlega. Ljósmynd- ari Skessuhorns kíkti við í húsun- um hjá Guðmundi Ólafssyni tóm- stundabónda í Ólafsvík í vikunni sem leið. Guðmundur er með 33 ær á húsi sem hafa heldur betur verið frjósamar í ár. Þegar eingungis þrjár voru óbornar höfðu flestar átt tvö lömb, fimm verið þrílembdar og ein fjórlembd. Flest féð hjá Guð- mundi er mislitt. Aðspurður hvers vegna, finnst Guðmundi það ein- faldlega vera skemmtilegra, enda sé þetta ekki lengur eins og var þeg- ar mislita féð gaf minna kjöt. Guð- mundur er með hrúta frá Mávahlíð, annan hvítan en hinn mislitan. Kom það honum skemmtilega á óvart að báðir gáfu mislit lömb og sá hvíti ekki síður en sá misliti. Guðmund- ur hefur verið með kindur á þess- um stað síðan 2010 en þar áður var hann með 2 til 3 kindur í húsi hjá öðrum. Sjálfur er Guðmund- ur uppalinn í sveit, frá Hundastapa á Mýrum og þekkir því vel til bú- starfanna. þa Fjórlembt hjá Guðmundi Líkt og í boltanum skipta mörkin einnig máli í sauðfjárræktinni. Á sama tíma og Íslandsmótið í knatt- spyrnu hefst byrja bændur til sveita að sinna ánum á sauðburði. Meðal verka sem þessum annatíma fylgir er að marka lömbin áður en þau eru sett út á nýgræðinginn með mæðr- um sínum. Í sérstakri reglugerð sem gildir um fjármörk segir að bú- fjáreiganda sé skylt að hafa glöggt mark á öllu búfé. Lömb skulu t.d. eyrnamörkuð fyrir lok tólftu viku sumars. Í markaskrá skal skýra eyrnamörk með myndum og geta um heiti þeirra, til að líka þeir sem minna þekkja til markvörslu geti áttað sig á mörkunum. Í sauðfjár- rækt, líkt og í boltanum, eru mark- verðir, en heita reyndar „Marka- verðir“ í þeim tilvikum sem búfé á í hlut. Markaverðir skulu hafa eft- irlit með fjármörkum og að reglu- gerðum sé fylgt en leiðbeina jafn- framt bændum um mörk og mark- lag ef þurfa þykir. Meðfylgjandi mynd var tek- in í liðinni viku á Sauðfjárbúinu á Hesti í Borgarfirði þar sem sauð- burður er nú hafinn fyrir nokkru. Hestsbúið notar eins og sjá má að- almarkið stíft og fjöður framan hægra og blaðstýft aftan vinstra. Á báðum eyrum er glöggt yfir- mark sem vel má þekkja úr nokk- urri fjarlægð. Slík greinargóð mörk koma sér vel að vori en ekki síður að hausti þegar fé er dregið í rétt- um. Reyndar hafa einhverjir látið í ljós ótta um að með evrópureglu- gerðum komandi ára verði jafnvel bannað að marka fé og nota þess í stað alfarið plastskilti og örmerki eins og þekkjast m.a. í hrossarækt- inni. Mörk á sauðfé verða þó von- andi jafn lengi við lýði hér á landi og mörkin í boltanum. mm/ Ljósm. Eyjólfur Kristinn Örnólfsson. Mörkin skipta máli

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.