Skessuhorn - 11.05.2016, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 201620
Skagakonan Hallbera Guðný Gísla-
dóttir, landsliðskona í knattspyrnu
og leikmaður Breiðabliks, birti á
dögunum pistil sem vakið hefur
mikla athygli og farið víða. Þykir
henni knattspyrnu kvenna og karla
alls ekki gert jafn hátt undir höfði
hérlendis. Pistilinn ritaði hún fyr-
ir ári síðan, en birti 3. maí síðastlið-
inn.
Hallbera hefur náð lengra en
margir í boltanum. Hún er marg-
faldur Íslands- og bikarmeistari, hef-
ur leikið sem atvinnumaður og verið
fastamaður í landsliði Íslands undan-
farin ár. Lék hún meðal annars fyrir
Íslands hönd á EM 2013. Hún seg-
ir í upphafi pistilsins að henni hafi
runnið blóðið til skyldunnar. „Ég
ber ábyrgð sem afrekskona í íþrótt-
inni að láta heyra í mér. Það er ekki
alltaf hægt að treysta á að aðrir vinni
verkið fyrir mann,“ skrifar hún.
Hallbera er alin upp á Akranesi og
byrjaði ung að mæta á völlinn. Hún
segist hafa verið heppin að fá að
fylgjast með ÍA fagna hverjum titl-
inum á fætur öðrum. Fyrirmyndir
hennar úr boltanum voru allar karl-
menn. „Mínar hetjur í fótboltan-
um voru Óli Þórðar, Haddi Ingólfs,
Steini Gísla og allir þessir ótrúlega
flottu fótboltamenn sem spiluðu
fyrir ÍA. Þeir voru stjörnur í mín-
um augum. Á Akranesi var líka fullt
af flottum fótboltakonum, eitthvað
sem ég hafði ekki hugmynd um,“
skrifar hún.
Fékk nýja sýn í Svíþjóð
Hún kveðst í gegnum árin hafa
þurft að bíta í það súra epli að henn-
ar íþrótt skipti ekki jafn miklu máli
og sú sem bræður hennar og frænd-
ur spiluðu. Engu hafi skipt þó hún
hafi lagt jafn mikið á sig og þeir og
hugsanlega meira. „Foreldrar mín-
ir og fjölskylda hvöttu mig að sjálf-
sögðu áfram en umhverfið sýndi
mér að mín vinna var einfaldlega
ekki jafn mikilvæg. Kvennaknatt-
spyrna á Íslandi fær sorglega litla
umfjöllun í fjölmiðlum og þá mæta
einnig sárafáir áhorfendur á deildar-
leiki. Áhuginn er einfaldlega ekki til
staðar,“ ritar Hallbera. Smám sam-
an lærðist henni að þetta væri eðli-
legur hlutur sem hún á endanum var
farin að sætta sig við. Eða allt þar til
árið 2012 að Hallbera hélt til Sví-
þjóðar í atvinnumennsku og gekk til
liðs við Piteå IF. „Það sem kom mér
mest á óvart við þennan bæ var að
kvennaknattspyrna var vinsælli held-
ur en karlaknattspyrna. Við feng-
um besta æfingatímann, við fengum
mun meiri umfjöllun í blöðunum og
það allra ótrúlegasta var að við feng-
um fleiri áhorfendur á leiki,“ skrifar
Hallbera. Í Piteå voru oftast í kring-
um þúsund áhorfendur en mest 2500
talsins. „Tilfinningin að spila fyrir
framan fullan völl, þó hann sé lítill,
er ólýsanleg. En það er líka tilfinn-
ing sem ég hef eiginlega aldrei upp-
lifað á mínum knattspyrnuferli.“
Hægt að auka
vinsældirnar
Hallbera segir með því að markaðs-
setja kvennaknattspyrnuna betur sé
hægt að auka vinsældirnar. Í þessu
samhengi nefnir hún Svíþjóð til sam-
anburðar. Hún segist vel vita að eins
og staðan er í dag sé áhugi á Pepsi
deild karla mun meiri. Áhugann á
kvennaknattspyrnu megi hins veg-
ar auka og nefnir Svíþjóð til saman-
burðar. „Nú í vor var verið að ganga
frá sjónvarpssamningi í Svíþjóð sem
gerir það að verkum að allir leik-
ir í efstu deild kvenna verða sýndir
í sjónvarpi. Á Íslandi er oftast ekki
sýnt frá kvennaleikjum í sjónvarpi.
Stundum eru einhver mörk sýnd ef
það er hægt að hafa upptökuvél á
vellinum, en oftast er því einfaldlega
sleppt.“ Hún sagði síðan í viðtali við
Morgunútvarp Rásar 2 síðasta mið-
vikudag að einnig hefðu allir úrvals-
deildarleikir kvenna verið sýndir í
Svíþjóð í fyrra. Sjónvarpssamning-
urinn sem skrifað var undir á dög-
unum ytra væri því ekki tilkominn til
að fylla upp í einhvern kynjakvóta.
Svíar hefðu raunverulegan áhuga á
kvennaknattspyrnu og ástæðan væri
sú að „það er verið að sinna þessu
almennilega,“ eins og hún orðaði
það. Hún bætti því við að hún ætl-
aðist ekki til að hlutirnir breyttust
á einni nóttu en ritaði í pistli sínum
að viðhorf til kvennaknattspyrnu hér
heima þyrfti að breytast. „Hugsan-
lega með breyttu viðhorfi og betri
markaðssetningu er hægt að auka
vinsældir kvennaknattspyrnunnar á
Íslandi og þar með veita ungum fót-
boltastelpum og strákum fleiri kven-
kynsfyrirmyndir,“ skrifar hún. „En
það þarf einhver að taka af skarið og
gera þetta almennilega.“ kgk
„Áhuginn er einfaldlega ekki til staðar“
- segir Hallbera og kallar eftir breyttu viðhorfi gagnvart kvennaknattspyrnunni
Hallbera Guðný Gísladóttir. Mynd úr safni.
Boltinn rúllar af stað í Pepsi deild
kvenna í knattspyrnu í dag, miðviku-
daginn 11. maí, með fjórum leikjum.
ÍA leikur sinn fyrsta leik í deild þeirra
bestu laugardaginn 14. maí næstkom-
andi gegn FH á Akranesvelli. ÍA lið
kvenna tryggði sér sem kunnugt er
sæti í deild þeirra bestu á nýjan leik
síðasta sumar. Liðinu óx ásmegin eft-
ir því sem leið á síðasta tímabil. Lyfti
það á endanum deildarmeistaratitli
1. deildar eftir sigur á FH í úrslita-
leiknum. En síðan þá hefur ýmis-
legt breyst. Margir þeirra leikmanna
sem lyftu bikarnum síðasta haust eru
horfnir á braut og ljóst að framundan
er erfitt verkefni. Skessuhorn ræddi
við Þórð Þórðarson, þjálfara liðs-
ins. „Mér líst vel á komandi sumar.
Þetta verður erfitt en jafnframt mjög
skemmtilegt,“ segir Þórður í sam-
tali við Skessuhorn. Hann segir lið-
ið stefna að því að halda sæti sínu í
deildinni. „Markmið okkar númer
eitt, tvö og þrjú er að vera áfram með
meistaraflokk kvenna í efstu deild
árið 2017,“ segir hann.
Mikil blóðtaka
Töluvert miklar breytingar hafa orð-
ið á leikmannahópnum sem tryggði
sér sæti í Pepsi deildinni síðasta haust.
„Við vorum að vona eftir síðasta
sumar að við mundum halda flest-
um stelpunum og þyrftum að bæta
svo við okkur þremur til fjórum leik-
mönnum til að vera vel samkeppnis-
hæf í deildinni í sumar. En annað hef-
ur komið á daginn, því miður,“ seg-
ir Þórður og upplýsir blaðamann um
stöðuna. „Við erum búin að missa tíu
leikmenn frá því í fyrra, þar af sjö sem
spiluðu mikið síðasta sumar. Hulda
og Unnur eru farnar í barneignarfrí
og Dúna, Birta, Valdís, Emilía, El-
ínborg, Morgan, Alexandra og Ey-
rún eru hættar,“ útskýrir Þórður.
„Það er mikil blóðtaka að missa all-
ar þessar stelpur,“ bætir hann við en
lítur á björtu hliðarnar. „En það losn-
ar þá bara meira pláss fyrir ungar og
efnilegar Skagastelpur,“ segir hann. Í
því samhengi bætir hann við að þær
sem enn eru gjaldgengar í öðrum og
þriðja flokki hafi staðið sig vel þegar
þær hafi fengið tækifæri.
Bætist mögulega
við hópinn
Þær sem gengið hafa til liðs við ÍA nú
þegar eru markvörðurinn Ásta Vigdís
Guðlaugsdóttir, á láni frá Breiðabliki,
og varnarmaðurinn Jaclyn Pourcel
og miðjumaðurinn Rachel Owens
frá Bandaríkjunum. Segir Þórður að
þær muni allar styrkja hópinn. Þar
að auki snýr Megan Dunnigan aft-
ur, en hún lék afar vel með liðinu síð-
asta sumar. „Hún var án efa ein af
bestu leikmönnum liðsins. Ég lagði
mikla áherslu á að fá hana aftur og
það tókst,“ segir Þórður ánægður.
„Megan er frábær stelpa og mikil fyr-
irmynd þar á ferð, jafnt innan vallar
sem utan,“ bætir hann við.
Þjálfarinn hefði þó gjarnan vilj-
að vera búinn að fá fleiri leikmenn
til liðsins á þessum tímapunkti því
margir sterkir leikmenn hafi horfið á
braut í vetur. Hann segir að þessa síð-
ustu daga fyrir mót sé enn leitast við
að styrkja hópinn. Hvað gerist verði
hins vegar að koma í ljós. „Við erum
að leita að varnarmanni og sóknar-
manni eins og staðan er í dag. Við
sjáum svo til hvað gerist á næstu dög-
um, mögulega verður einhver viðbót
við hópinn,“ segir hann.
Leikmenn
leggja hart að sér
Þrátt fyrir miklar breytingar og nokk-
uð reynslulítinn hóp telur Þórður ÍA
vel í stakk búið að takast á við átökin í
deild þeirra bestu. Hann kveðst heilt
yfir ánægður með leik liðsins á und-
irbúningstímabilinu, en liðið hafnaði
til að mynda í öðru sæti Lengjubik-
arsins. Mest um vert sé þó að leik-
menn séu tilbúnir að leggja hart að
sér. „Það er gríðarlega mikill munur
milli 1.deildar og Pepsi deildar. Það
sem er gott er að stelpurnar eru dug-
legar að æfa,“ segir hann og kveðst
því bjartsýnn á að liðið nái mark-
miðum sínum í sumar. „Ég vona og
held að við endum í sjötta til áttunda
sæti. Það eru kannski miklar vænt-
ingar hjá mér miðað við hvað liðið er
ungt og hve miklar breytingar hafa
orðið,“ segir hann. „Stelpurnar eru
búnar að æfa rosalega vel í vetur og
eiga lof skilið fyrir það. Ég vona að sú
vinna sem stelpurnar eru búnar leggja
á sig í vetur verði til þess að ÍA muni
áfram eiga bæði kvenna- og karlalið í
efstu deild á næsta ári. Það er algjört
lykilatriði fyrir okkar bæjarfélag að
svo verði,“ bætir hann við.
Þórður segir að áhersla verði lögð
á að spila góða vörn í sumar. Það sé
lykilatriði til að liðið geti haldið sæti
sínu í deildinni. „Við munum reyna
að spila góðan varnarleik og fara í alla
leiki til að reyna að vinna, það er ekki
spurning. Svo sjáum við til hvert það
leiðir okkur,“ segir hann.
Þjálfarinn vill að lokum hvetja
stuðningsmenn til að fjölmenna á
völlinn í sumar. „Ég vil óska öllum
Skagamönnum nær og fjær góðs fót-
boltasumars og vona að þeir muni
standa með liðunum okkar í sum-
ar, mæti á völlinn og láti heyra í sér.
Þetta verður erfitt, bæði hjá stelpun-
um og strákunum og þess vegna er
mikilvægt að fólk mæti á völlinn og
styðji liðin,“ segir Þórður Þórðarson.
kgk/ Ljósm. gbh.
„Stelpurnar eru búnar að æfa rosalega vel í vetur og eiga lof skilið“
- segir Þórður Þórðarson þjálfari ÍA
Þórður Þórðarson þjálfari. Ljósm. kgk.
Marki fagnað síðasta sumar. Megan Dunnigan snýr aftur eftir frábært tímabil með ÍA
síðasta sumar.
Miklar breytingar hafa orðið á leikmannahópnum frá því síðasta haust. Tíu leik-
menn sem fögnuðu Íslandsmeistaratitli fyrstu deildar leika ekki með liðinu í sumar.