Skessuhorn - 18.05.2016, Page 8
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 20168
Tilboð í gatna-
gerð í Melahverfi
HVALFJ.SV: Hvalfjarðarsveit,
Veitur, Míla og Rarik hafa ósk-
að eftir tilboðum í gatnagerð í
Melahverfi í Hvalfjarðarsveit.
Um er að ræða tvær götur; Háa-
mel og Brekkumel, en þær eru
hluti af deiliskipulögðu svæði
fyrir íbúabyggð í Melahverf-
inu. Verkið felur í sér gatna-
gerð, lagningu fráveitu-, vatns-,
hitaveitu- og fjarskiptalagn-
ar, jarðvinnu fyrir raflagnir og
uppsetningu ljósastaura án ljós-
búnaðar við Háamel og hluta
Brekkumels. Háimelur er um
215 metrar að lengd og Brekk-
umelur er um 65 metrar, sam-
tals um 280 m. Tilboð verða
opnuð mánudaginn 30. maí. Að
sögn Skúla Þórðarsonar sveit-
arstjóra Hvalfjarðarsveitar hef-
ur verið unnið að undirbúningi
og hönnun verksins um nokk-
urt skeið og því ánægjulegt að
verkið skuli komið í útboðsferli.
„Það er ekki síður ánægjulegt að
byggingaverktakar hafa verið í
sambandi við okkur og hafa lýst
áhuga sínum á byggingu íbúð-
arhúsnæðis í Melahverfi. Það
verður svo að koma í ljós hvort
af því verður eða ekki.“ Gert
er ráð fyrir byggingu lítils fjöl-
býlishúss, parhúsa og einbýlis-
húsa á svæðinu sem um ræðir.
-arg
Lektor í hagfræði
BIFRÖST:
Francesco
M a c h e d a
tók í byrj-
un maí við
stöðu lekt-
ors í hag-
fræði við
H á s k ó l -
ann á Bifröst. Starfið felur í sér
skyldur á sviði kennslu og rann-
sókna, einkum á sviði alþjóða-
hagfræði, þróunarhagfræði og
stjórnmálahagfræði með sér-
stakri áherslu á fjármálastofn-
anir og vinnumarkaðsmál.
Francesco lauk doktorsgráðu í
stjórnmálahagfræði frá Marche
Polytechnic University á Ítalíu
árið 2014. Hann fluttist sama ár
til Íslands og tók þá við stöðu
aðjúnkts á félagsvísindasviði
Háskólans á Bifröst.
-fréttatilk.
Bláa lónið kostar
meðferðarúrræði
við psoriasis
LANDIÐ: Sjúkratryggingar
Íslands (SÍ) og Bláa Lónið hf.
hafa gert með sér samning sem
felur í sér að hér eftir mun Bláa
lónið veita íslenskum psori-
asissjúklingum meðferð þeim
að kostnaðarlausu og án opin-
berrar greiðsluþátttöku. Heil-
brigðisráðherra staðfesti samn-
inginn í vikunni. Bláa Lón-
ið hefur frá árinu 1994 veitt
meðferð við psoriasis. Með-
ferðin er viðurkennd af íslensk-
um heilbrigðisyfirvöldum sem
meðferðarvalkostur og hafa
Sjúkratryggingar greitt með-
ferðina fyrir þá sem eru sjúkra-
tryggðir hér á landi. Eigend-
ur og stjórnendur Bláa Lóns-
ins hafa nú tekið þá ákvörð-
un að kosta meðferðina alfarið
án opinberrar greiðsluþátttöku
eða innheimtu gjalds af sjúk-
lingunum.
-mm
Stofnfundur
Viðreisnar
LANDIÐ: Stofnfund-
ur stjórnmálaflokksins Við-
reisnar hefur verið boðaður
þriðjudaginn 24. maí, frá kl.
17:00 til 18:00, í Silfurbergi í
Hörpu. Kosin verður stjórn
og stefnuyfirlýsing sam-
þykkt. „Viðreisn er flokkur
allra þeirra sem vilja að unn-
ið sé að almannahagsmunum
og gagnsæi í pólitísku starfi.
Markmiðin eru réttlátt sam-
félag, stöðugt efnahagslíf og
fjölbreytt tækifæri. Áhersla er
lögð á markaðslausnir, vest-
ræna samvinnu, frelsi, jafn-
rétti og jafnan atkvæðisrétt
fyrir alla. Viðreisn vill einn-
ig að þjóðin fái svo fljótt sem
auðið er að greiða atkvæði
um hvort ljúka skuli viðræð-
um um aðild að Evrópusam-
bandinu,“ segir í tilkynn-
ingu. Þá segir að allir sem
vilja styðja Viðreisn til þess
að gera grundvallarbreyting-
ar á íslenskum stjórnmálum
eru hvattir til þess að mæta á
stofnfundinn og sýna þann-
ig í verki vilja til þess að Ís-
lendingar stigi ákveðin skref
til betra samfélags.“
-fréttatilk.
Aflatölur fyrir
Vesturland
7. maí - 13. maí
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 20 bátar.
Heildarlöndun: 60.185 kg.
Mestur afli: Leifi AK: 8.748
kg í sex löndunum.
Arnarstapi 31 bátur.
Heildarlöndun: 152.555 kg.
Mestur afli: Bárður SH:
61.723 kg í sex löndunum.
Grundarfjörður 36 bátar.
Heildarlöndun: 345.469 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
67.808 kg í einum róðri.
Ólafsvík 53 bátar.
Heildarlöndun: 584.260 kg.
Mestur afli: Steinunn SH:
89.318 kg í þremur löndun-
um.
Rif 49 bátar.
Heildarlöndun: 631.035 kg.
Mestur afli: Örvar SH:
69.629 kg í tveimur löndun-
um.
Stykkishólmur 14 bátar.
Heildarlöndun: 71.729 kg.
Mestur afli: Bíldsey SH:
32.017 kg í fimm löndunum.
Topp fimm landanir
á tímabilinu:
1. Tjaldur SH - RIF:
67.931 kg. 11. maí.
2. Hringur SH - GRU:
67.808 kg. 10. maí.
3. Grundfirðingur SH -
GRU: 57.176 kg. 7. maí.
4. Helgi SH - GRU:
46.872 kg. 9. maí.
5. Örvar SH - RIF:
40.915 kg. 8. maí.
Fyrstu plöntur vorsins voru af-
hentar á dreifingarstöðvar Vest-
urlandsskóga á Lágafelli og Erps-
stöðum síðastliðinn fimmtudag. Að
sögn Sigríðar Júlíu Brynleifsdóttur
hjá Vesturlandsskógum voru fyrstu
plöntur óvenju snemma á ferðinni
í ár og þykir það jákvætt. „Yfirleitt
erum við að fá fyrstu plönturnar í
lok maí og alveg fram í miðjan júní.
Þá eru oft komnir þurrkar og erfið-
ara að gróðursetja þegar jörðin er
mjög þurr. Nú þegar klakinn er að
losna úr jörð þá nýtist rakinn það-
an plöntunum strax, þannig að það
er æskilegt að byrja að gróðursetja
eins snemma og hægt er,“ segir Sig-
ríður í samtali við Skessuhorn. „Við
hvetjum fólk því til að hefja gróður-
setningu strax, svo að sumarið nýt-
ist plöntunum sem mest og best til
vaxtar.“
Plönturnar sem Vesturlandsskóg-
ar dreifa í ár koma frá þremur fram-
leiðendum; Gróðrarstöðinni Sól-
skógum í Kjarnaskógi á Akureyri,
Barra á Egilstöðum og frá gróðr-
arstöðinni Álmi í Biskupstungum.
Sigríður segir að mest sé gróður-
sett af stafafuru en einnig sitka-
greni, birki og rússalerki. Hún segir
fleiri plöntur væntanlegar á morg-
un, fimmtudag á dreifingarstöð-
ina í Reit á Kleppjárnsreykjum og
vonast til þess að allar plöntur verði
komnar á svæðið fyrripartinn í júní.
Sigríður segir sumarið því fara vel
af stað og á von á góðu gróðursetn-
ingarsumri. „Við náðum ákveðnum
botni eftir hrunið en erum að sigla
upp úr því og bætum í ár frá ári. Við
erum því frekar bjartsýn og svo er
margt annað spennandi í deiglunni
hjá okkur, svo sem sameining Skóg-
ræktar ríkisins og landshlutaverk-
efnanna í skógrækt í eina stofnun.
Það er því nóg að gera,“ segir Sig-
ríður. grþ
Skógræktarsumarið hafið á Vesturlandi
Fyrstu plöntur vorsins eru komnar á Lágafell og Erpsstaði. Þessi mynd er tekin
fyrir norðan á Sólskógum í Kjarnaskógi þegar verið var að ferma bílinn fyrir
Vesturlandsferðina. Ljósm. Katrín Ásgrímsdóttir.
Sigríður Júlía Brynleifsdóttir hjá
Vesturlandsskógum.
Ljósm. Áslaug Þorvaldsdóttir.
Ársreikningur Eyja- og Miklaholts-
hrepps fyrir árið 2015 var sam-
þykktur til seinni umræðu á fundi
hreppsnefndar 5. maí síðastliðinn.
Rekstrarniðurstaða sveitarfélags-
ins, samkvæmt ársreikningi A og
B hluta, var jákvæð um 7,5 millj-
ónir króna, en þar af var rekstrar-
niðurstaða A hluta jákvæð um 8,3
milljónir. Eigið fé sveitarfélagsins
í lok árs 2015 var 198,4 milljónir
samkvæmt efnahagsreikningi A og
B hluta, en eigið fé A hluta nam
199,2 milljónum króna.
Rekstrartekjur Eyja- og Mikla-
holtshrepps námu á síðasta ári
127,5 milljónum króna í A og B
hluta. Þar af 61,6 milljónir útsvar
og fasteignaskattur, 39,8 millj-
óna framlag Jöfnunarsjóðs og 26,1
milljón aðrar tekjur. Ekki er um að
ræða tekjur af Gagnaveitu á árinu
2015.
Rekstargjöld sveitarfélagsins
voru rúmar 123 milljónir. Laun og
launatengd gjöld námu 65,6 millj-
ónum en annar rekstrarkostnaður
tæpum 57,8 milljónum. Afskriftir
voru 819 þúsund krónur. Rekstr-
arniðurstaða án fjármunatekna
og fjármagnsgjalda var rúm 3,5
milljón en fjármunatekjur og fjár-
magnsgjöld rétt tæpar fjórar millj-
ónir. Rekstrarniðurstaða var því
sem fyrr segir 7,5 milljónir króna.
kgk
Jákvæður rekstur Eyja- og Miklaholtshrepps
Börn við Laugargerðisskóla í Eyja- og Miklaholtshreppi. Ljósm. úr safni.
Það var mikið um að vera í útibúi
Landsbankans í Snæfellsbæ á síð-
asta föstudag. Þá var íbúum boð-
ið að fagna með starfsfólki bank-
ans þeim áfanga að 40 ár voru liðin
frá því bankinn opnaði fyrst útibú í
Snæfellsbæ. Gestum var boðið upp
á veitingar og tónlistarveislu en
nemendur Tónlistarskóla Snæfells-
bæjar fluttu tónlistaratriði. Einnig
sungu þær Olga Guðrún Gunnars-
dóttir og Guðríður Sirrý Gunnars-
dóttir fyrir gesti en þær hafa báð-
ar starfað hjá bankanum í mörg ár.
Ljósmyndasýning frá sögu útibús-
ins var á staðnum og þar kenndi
ýmissa grasa og mjög gaman að
skoða hana.
Alls hafa tíu útibússtjórar starf-
að í Ólafsvík og á Hellissandi. Nú-
verandi útibússtjóri í Snæfellsbæ er
Þórhalla H. Baldursdóttir. Þess má
einnig geta að til sýnis í bankanum
var fyrsta bankabókin sem stofnuð
var í útibúinu og er hún að sjálf-
sögðu númer eitt. Eigandi hennar
Jens Brynjólfsson, sem var þá níu
ára gamall, stofnaði bókina. Var
hann fyrstur í röðinni og fyrsti við-
skiptavinur útibús Landsbankans í
Ólafsvík.
þa
Landsbankinn í fjörutíu ár í Snæfellsbæ