Skessuhorn


Skessuhorn - 18.05.2016, Qupperneq 12

Skessuhorn - 18.05.2016, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 201612 Eins og Skessuhorn hefur áður greint frá standa yfir framkvæmd- ir við náttúrulaugar Krauma við Deildartunguhver. Fyrsta skóflu- stungan var tekin 26. apríl 2015, eða fyrir rétt rúmlega einu ári. Síð- an hafa eigendur Krauma, hjónin Dagur Andrésson og Bára Einars- dóttir, og Sveinn Andrésson og Jóna Ester Kristjánsdóttir, haft í nógu að snúast. Blaðamaður rak inn nefið í Krauma að morgni síðasta miðviku- dags og ræddi við Dag og Jónu Est- er. Framkvæmdir stóðu sem hæst þegar Skessuhorn bar að garði. Smiðir voru að slá upp mótum á laugasvæðinu, múrarar og málarar að störfum innandyra og gröfumað- ur vann í lóðinni. Hellulagninga- meistarinn var mættur á svæðið að taka stöðu mála og síðar sama dag var von á fimm mönnum sem ætl- uðu að ljúka við að einangra og tyrfa þakið. Þá eru ekki öll verk talin sem unnin voru þann daginn. „Eins og þú sérð er allt á fullu núna og hlutirnir gerast hratt,“ sagði Dagur þar sem hann leiddi blaðamann um svæðið. -En hve- nær stendur til að opna Krauma? „Við stefnum að því að opna í byrj- un júlí,“ segir Dagur, en þá verða aðeins rúmir 14 mánuðir liðnir síð- an stunguskófla rauf yfirborð lóðar- innar fyrsta sinni. „Þetta hefur allt gengið mjög vel,“ segir Jóna Est- er. Þau segja að auðvitað hefði verið óskandi að opna fyrr um sumarið en það skipti samt ekki öllu máli í stóra samhenginu. „Við ætlum að vera með heilsársopnun og leggjum upp með að hafa langan opnunartíma alla daga vikunnar,“ segir Jóna. Þau eiga ekki von á að slíkt verði neinum vandkvæðum bundið. „Hér er mik- il umferð allt árið og stöðugt vax- andi yfir vetrarmánuðina. Við erum svo heppin að það er mikill áhugi hjá fólki í héraðinu að vinna hjá okkur og við eigendur og fjölskyldur okk- ar munum að sjálfsögðu standa vakt- ina,“ segja þau. Hámarka gæði hvers og eins Samtals verða byggingarnar um 640 fermetrar, að minni húsun- um meðtöldum, og gert er ráð fyr- ir að á laugasvæðinu rúmist allt að 140 manns í senn. „Krauma er ekki markaðssett til að taka á móti mikl- um fjölda fólks í einu, heldur verð- ur kappkostað að hámarka þægindi hvers og eins gests,“ segir Dagur. Laugarnar eru hugsaðar sem lúxus- böð og það mun kosta 4.900 krón- ur inn. Lagt upp úr hönnun Heitar laugar verða fimm talsins og munu innihalda vatn úr Deild- artunguhver sem verður kælt með vatni úr Rauðsgili. Engum klór eða sótthreinsiefnum verður bætt í vatn- ið en þess í stað verður tryggð næg endurnýjun vatnsins í pottunum. Á laugasvæðinu verða tvö aðskilin gufuböð, kaldur pottur og slökun- arherbergi með legubekkjum, ró- andi tónlist og arineldi. Arkitekt bygginga, laugasvæðis og lands- lags er Brynhildur Sólveigardóttir. Hönnun hennar miðar að því að allt svæðið myndi eina heildstæða mynd sem fellur vel að umhverfinu, en er á sama tíma vel sýnileg. Gluggar verða stórir á þeirri hlið hússins sem snýr að hvernum og fyrir utan verður hellulögð stétt. Þakið verð- ur tyrft, eins og áður sagði, einnig víða tyrft upp að útveggjum, viðar- klæðning að utan í svörtum lit, sem og pottar og hellur á laugasvæði. Allt innanstokks verður í bjart- ari stíl. Ljósir veggir og loft, hlý- leg leðurhúsgögn, viðarklæðning- ar úr aski verða ríkjandi en til mót- vægis verða margar borðplötur úr svartri steypu og innihurðir dökk- ar. Til að ná fullu samræmi verða til dæmis á salernum og í sturtuklefum sérsmíðuð svört blöndunartæki frá Hans Grohe. „Allt mun þetta verða til þess að setja staðinn í ákveðinn klassa,“ segir Dagur. Gert ráð fyrir að geta stækkað Í Krauma verður veitingastaður, bar og setustofa með arni. Veit- ingasalurinn mun taka 60 manns í sæti og útisvæði annað eins. Farin var sú leið við hönnun hússins að hafa eldhúsið mjög rúmt og gæti það auðveldlega annað fleiri gest- um en sætafjöldi segir til um. „Við ákváðum að hafa eldhúsið stórt svo ekki þyrfti að breyta því þegar við þurfum að stækka. Ég segi þeg- ar, ekki ef, því við gerum fastlega ráð fyrir því að þurfa að bæta við í framtíðinni,“ segir Dagur. Nú þeg- ar er búið að ráða kokk til starfa og eru þau Dagur og Jóna afar ánægð með það. „Einhverjir höfðu varað okkur við því að erfitt gæti orðið eða nær ómögulegt að fá kokk út á land en svo reyndist ekki vera,“ seg- ir Dagur. „Það kom því skemmti- lega á óvart hve margir sýndu þessu áhuga. Við vorum í það minnsta svo heppin að geta valið úr umsókn- um frá matreiðslumeisturum sem finnst þetta spennandi verkefni og vildu vera með frá upphafi,“ bætir Jóna við. Barinn verður steyptur og beint inn af móttökunni. Þar geta gestir pantað sér drykk og tyllt sér í setu- stofuna og slakað á. Hönnun bars- ins og setustofunnar mun kallast á við hönnun hússins alls. Í verslun- inni verður meðal annars hægt að kaupa lífrænar sápur og snyrtivörur frá Sóley Organics. Boðið verður upp á sápur í sturtuklefum frá Sól- eyju og einnig mun hún búa til ilm- olíur fyrir gufuböðin. Hægt verður að ganga að Krauma frá Deildartunguhver eftir upphit- uðum göngustíg meðfram volgum læk sem gufa stígur upp af. „Það mun sveipa staðinn ákveðinni dul- úð frá fyrstu mínútu,“ segir Jóna. „Í sunnanátt leggur gufuna frá hvern- um yfir staðinn og með rétt út- færðri lýsingu í myrkri verður þetta áreiðanlega mjög dulmagnaður staður að vera á,“ segja Dagur og Jóna að lokum. kgk Stefnt að opnun Krauma í byrjun júlí Eigendur Krauma. F.v. Hjónin Dagur Andrésson og Bára Einarsdóttir, og Jóna Ester Kristjánsdóttir og Sveinn Andrésson. Ljósm. Krauma. Dagur á framkvæmdasvæðinu. Hluti laugasvæðisins. Í byggingunni fyrir miðju verður slökunarherbergi með legubekkjum, róandi tónlist og arineldi. Þar til vinstri verða tvö aðskilin gufuböð. Hægra megin við slökunarherbergið er grunn laug og næst í mynd er kuðungur. Verið að slá upp mótum til að geta steypt einn af stærri pottunum. Svona mun laugasvæðið líta út að framkvæmdum loknum. Ljósm. Krauma. Horft að Krauma frá væntanlegu bílastæði að ofanverðu. Á þaki hússins má sjá bretti með einangrun og torfur, en síðar þennan dag stóð til að ljúka við að einangra og tyrfa þakið. Sú hlið hússins sem snýr að Deildartunguhver. Stórir gluggar eru í veitingasalnum og setustofunni. Viðarklæðningin verður síðan í svörtum lit.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.