Skessuhorn - 18.05.2016, Qupperneq 13
MIÐVIKUDAGUR 18. MAÍ 2016 13
Hótel Húsafell var opnað með
formlegum hætti 15. júlí á síðasta
ári þegar tekið var á móti fyrstu
gestunum. Nú þegar hefur verið
ráðist í stækkun hótelsins úr 36 her-
bergjum í 48. Framkvæmdir hófust
í marsmánuði og ganga vel. „Platan
var steypt í byrjun apríl og verkinu
á að vera að fullu lokið um miðj-
an júlí. Þá tökum við á móti fyrstu
gestunum í nýju herbergin,“ segir
Þórður Kristleifsson á Húsafelli í
samtali við Skessuhorn. Hann segir
stækkunina tilkomna vegna mikill-
ar eftirspurnar. „Viðtökurnar voru
mjög góðar eftir að við opnuðum í
fyrra. Hótelið hefur verið vel bók-
að allt frá opnun og komandi sum-
ar lítur einnig mjög vel út. Eins og
staðan er í dag er hótelið alveg full-
nýtt í sumar og nánast fram í end-
aðan nóvember. Þar með talin þau
tólf herbergi sem verið er að bæta
við núna,“ segir hann.
Tvö stærri herbergi
bætast við
Viðbótin verður að sjálfsögðu öll í
sama stíl og hótelið, bæði að inn-
an sem utan. Með stækkuninni var
þó ákveðið að bæta við tveimur teg-
undum herbergja, stærri en þeim
sem áður hafa verið í boði á Hót-
el Húsafelli. „Munurinn á þessari
viðbót og fyrri hluta hótelsins er
sá að hér í endanum verður 45 fer-
metra svíta með stóru baðherbergi,
aflokuðu svefnherbergi og fataher-
bergi,“ segir Þórður. „Fyrir stækk-
un vorum við með tvær gerðir her-
bergja, Standard og Deluxe. Einnig
ætlum við að bjóða upp á það sem
við köllum Superior deluxe her-
bergi. Stærra og rúmbetra en De-
luxe herbergin en minna en svítan,“
útskýrir hann.
Tengibyggingin er örlítið frá-
brugðin öðrum sem fyrir eru á hót-
elinu. „Hún verður stærri, opin og
rúmgóð með stórum gluggum og
hægt að fara út á verönd þar sem
gestir geta slakað á,“ segir Þórður.
Framkvæmdir á Hótel Húsafelli
eru nú sem fyrr í höndum Eiríks
J Ingólfssonar húsasmíðameistara.
„Hann var með hótelbygginguna í
fyrra og við erum ánægð að halda
áfram okkar góða samstarfi við
hann,“ segir Þórður Kristleifsson
að lokum. kgk
Stækkun stendur yfir á Hótel Húsafelli
Með stækkuninni bætast tólf herbergi við þau 36 sem fyrir eru á hótelinu. Þórður Kristleifsson á Húsafelli.
Þannig var umhorfs innanstokks síðastliðinn miðvikudag. Aðeins mánuði áður
hafði platan verið steypt.
Kristleifur Jónsson var að þétta með gluggum þegar blaðamann bar að garði.