Skessuhorn - 15.06.2016, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201614
„Þeim var vísað aftur heim með skott-
ið á milli lappanna, eins og vaninn er
við þessar aðstæður,“ sagði Snorri Jó-
hannesson veiðivörður á Arnarvatns-
heiði í samtali við Skessuhorn. Um
miðja síðustu viku tóku tveir menn
sig til og óku að Úlfsvatni á Arnar-
vatnsheiði, þrátt fyrir að veiði væri
ekki heimiluð þar fyrr en viku síðar.
Þegar til þeirra náðist báru þeir því
við að hafa verið að æfa fluguköst.
„Það voru eiginlega dálítið óvenjuleg
fluguköst. Þeir höfðu nefnilega beitt
ormi og hafa því líklega ætlað að æfa
það að hitta flugur með flotholtinu,“
sagði Snorri sem kunni ekki aðrar
skýringar á háttarlagi mannanna.
Starfsmenn á vegum Veiðifélags
Arnarvatnsheiðar hafa að undan-
förnu verið að standsetja veiðihús
og lagfæra vegaslóða til að undirbúa
veiðitímabilið. Meðal annars var farið
með vinnuvélar og vaðið yfir Norð-
lingafljót áleiðis í Úlfsvatn fært og
lagað. Eins og fyrr segir geta veiði-
menn keypt veiðileyfi á Arnarvatns-
heiði frá og með deginum í dag, 15.
júní. Þá fyrst má æfa fluguköst þar!
Veiðifélag Arnarvatnsheiðar selur
sem fyrr veiðileyfi í Hálsakoti, sölu-
skúr við Hraunfossa. mm
Veitingastaðurinn La Colina var
nýverið opnaður í Borgarnesi,
nánar tiltekið við Hrafnaklett 1b
neðan við vatnstankinn í Bjargs-
landi. Það eru hjónin Jorge Ric-
ardo og Alicia Guerrero sem reka
staðinn. Þau hafa fengið mjög
góðar viðtökur frá því opnað var
fyrir nokkrum dögum síðan. „Við-
tökurnar hafa verið vonum fram-
ar, við bjuggumst ekki við þessu.
Það hafa verið um 150 gestir hjá
okkur á dag og margir komið oft-
ar en einu sinni og oftar en tvisvar
á þessari rúmu viku sem við höfum
verið starfandi,“ segir Ricardo.
„Það eru alltaf einhverjir sem
eru ósáttir og þeir tjá sig vanalega
á netinu. Mér þætti betra ef fólk
myndi bara koma og tala við mig.
Okkur hefur skort starfsfólk síð-
an við byrjuðum og við erum með
nokkra starfsmenn sem eru byrj-
endur. Það hafa því komið upp at-
vik þar sem seinagangur hefur ver-
ið í afgreiðslu fyrstu vikuna en ég
vona að fólk taki tillit til þess að
við vorum að byrja. Við áttum ein-
faldlega ekki von á þessum góðu
viðtökum og því urðu smávægileg-
ir byrjunarörðugleikar. Við erum
meðvituð um þetta og lærum því af
reynslunni og munum bæta okkur
í því sem þarf að bæta,“ segir Ric-
ardo.
Ricardo segir að fljótlega muni
staðurinn verða stækkaður aðeins.
„Við erum með pláss fyrir annan
sal í húsnæðinu og ætlum að reyna
að opna hann sem fyrst. Okkur
vantar fleiri borð á staðinn. Ef ég
ætla að stækka staðinn þarf ég fyrst
að bæta við mig starfsfólki og ég
vil helst fá fólk til starfa sem býr
hér á svæðinu því það er gaman að
geta boðið upp á aðeins öðruvísi
störf hér í Borgarnesi. Á næstunni
kemur nýr starfsmaður í eldhúsið
sem ætlar að hjálpa okkur að verða
með venjulegan íslenskan hádegis-
mat, heimilislegan og góðan.“
Síðan staðurinn var opnaður
hefur verið lokað á mánudögum.
„Við ákváðum að vera með lokað
einn dag í viku. Hann er samt ekki
frídagur fyrir okkur, við notum
mánudaginn til þess að undirbúa
vikuna og kaupa inn. Það er lítið
frí þessa dagana. Ég kem hingað
snemma og fer heim á nóttunni en
svona er sumarið í þessum rekstri.
Þetta er bara vertíð,“ útskýrir Ric-
ardo.
Heillaðist af húsinu
Ricardo segir að húsið hafi kall-
að á sig. „Ég átti oft leið í gegn-
um Borgarnes og þetta hús heill-
aði mig. Ég sá að húsið þarfnaðist
viðhalds en samt sem áður heillað-
ist ég af því. Ég bjó ekki í Borgar-
nesi þegar ég tók ákvörðun um að
opna þennan stað heldur var það í
raun húsið sem varð til þess að ég
ákvað að opna staðinn hérna. Hús-
ið stendur á hæð og þaðan kemur
nafnið á staðnum, La Colina, en
það þýðir „hæðin“ á spænsku. Mér
fannst viðeigandi að nafnið yrði á
móðurmálinu mínu.“
Ricardo og fjölskylda eru nú
flutt í Borgarnes og líður vel. „Mér
finnst alveg frábært að búa hérna,
bæjarbúarnir hafa tekið svo vel á
móti okkur og staðnum. Við erum
mjög þakklát fyrir það,“ segir Ric-
ardo að lokum.
bþb
La Colina fær góðar viðtökur í Borgarnesi
Jorge Ricardo ásamt dóttur sinni Freyju við pizzaofninn á La Colina.
Hollvinasamtök Borgarness og
Borgarbyggð hafa ákveðið að ráð-
ast í að endurheimta gróðurfar á
Búðarkletti fyrir ofan Landnáms-
setur. Endurheimt gróðurs felur
m.a. í sér eyðingu lúpínu sem þek-
ur nú nær allt holtið. Er þetta verk-
efni hugsað sem tilraunaverkefni til
5-7 ára. Í dag, miðvikudaginn 15.
júní, er fyrirhugað að blása til fyrstu
sóknar með sameiginlegu átaki.
„Eins og kunnugt er eru hollvina-
samtökin ekki mjög formleg sam-
tök, en framlag þeirra væri í formi
sjálfboðavinnu fólks sem mögulega
gæti gefið sér tíma til að mæta við
Búðarklett kl. 15.00 þennan dag til
að reita lúpínu. Verkið er ekki erfitt
og verður unnið með aðstoð starfs-
manna bæjarvinnunnar, en gott
væri ef fólk tæki með sér vinnu-
hanska. Unnið verður með hlé-
um frá kl. 15.00 til 19.00 og verður
hægt að mæta hvenær sem á þeim
tíma og leggja málinu lið. Um kl.
17 verður boðið uppá hressingu.
Hlökkum til að sjá sem flesta,“ seg-
ir í tilkynningu. mm
Ætla að reyna að uppræta
lúpínu á Búðarkletti
Húlladúllan mætti í Skallagríms-
garð í Borgarnesi á föstudaginn og
á Akratorg á Akranesi á laugardag-
inn með heila hrúgu af húllahringj-
um, lék listir sínar og leyfði öllum
að prófa. Húlladúllan er brottfluttur
Borgnesingur; Unnur María Berg-
sveinsdóttir, sem gerði m.a. garð-
inn frægan í frjálsum á sínum yngri
árum. Hljóp meðal annars 800 og
1500 metra hlaup fyrir UMSB.
Unnur María nam sagnfræði en eft-
ir bankahrun yfirgaf hún Ísland í leit
að ævintýrum og fór til Mexíkó þar
sem hún kynntist sirkusnum. Hún
starfar nú sem sirkuslistakona. Unn-
ur hefur á nokkurra ára sirkusferli
sérhæft sig í húllahringjum og er nú
sjálfstætt starfandi húlladansari eftir
að hafa unnið síðastliðin þrjú ár með
Sirkus Íslandi. mm
Unnur María sérhæfir sig í húllahringjum
Veiði hefst á
Arnarvatnsheiði í dag
Laxveiðin byrjar svo sannarlega með
látum. Laxar hafa jafnvel sést í lax-
veiðiám þar sem þeir koma venju-
lega ekki fyrr en í lok þessa mánaðar.
„Þetta er meiriháttar byrjun í Þverá
og Kjarará enda fiskur kominn víða
um ána og mikið af honum á nokkr-
um stöðum,“ sagði Aðalsteinn Pét-
ursson sem hefur verið á bökkum ár-
innar fyrstu dagana eftir að opnað
var á sunnudaginn. Opnunarhollið í
ánni fékk hvorki meira né minna en
146 laxa. „Það voru grálúsugir laxar
að ganga á flóðinu í morgun. Siggi
Raflax sá stóra torfu koma upp ána
þar sem hann var að veiða neðarlega
í Þverá,“ sagði Aðalsteinn. Á með-
fylgjandi mynd er hann með Andrési
Eyjólfssyni leiðsögumanni í Þverá
og Kjarará. gb
Frábær byrjun í
Þverá og Kjarará