Skessuhorn - 15.06.2016, Page 20
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201620
Á vormánuðum tók hagfræðingur-
inn Gunnlaugur A. Júlíusson til starfa
sem nýr sveitarstjóri Borgarbyggð-
ar. Gunnlaugur er Vestfirðingur og
að hálfu Húnvetningur, alinn upp
á Rauðasandi. Hann segist þó eiga
taugar og rætur til Borgarfjarðar.
Foreldrar hans kynntust á Hvanneyri
forðum daga, þar sem móðir hans
starfaði í eldhúsinu en faðir hans var
í námi. „Þar tók ég líka framhalds-
deildina á sínum tíma,“ segir Gunn-
laugur sem í grunninn er menntað-
ur í landbúnaði en lagði einnig stund
á framhaldsnám í landbúnaðarhag-
fræði í Svíþjóð og Kaupmannahöfn.
Síðar tók hann löggildingu í verð-
bréfamiðlun og fór síðar í meistara-
nám í fjármálum í Háskóla Íslands.
„Ég starfaði í nokkur ár hjá Stétta-
samandi bænda en tók smá hliðars-
laufu yfir í landbúnaðarráðuneytið
og var aðstoðarmaður hjá Steingrími
Sigfússyni þáverandi landbúnaðar-
ráðherra. Svo fór ég yfir í sveitar-
stjórnarmálin 1994 þegar ég var ráð-
inn sem sveitarstjóri á Raufarhöfn,“
segir Gunnlaugur. Það var svo rétt
fyrir aldamótin sem hann hóf störf
hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Þar starfaði hann í sautján ár sem
sviðsstjóri hag- og upplýsingasviðs,
allt þar til hann tók við sem sveitar-
stjóri Borgarbyggðar. Blaðamaður
Skessuhorns spjallaði við Gunnlaug
um lífið og tilveruna, nýja starfið og
áhugamálin.
Standa vörð um
árangurinn
Gunnlaugur fluttist á Hvanneyri í
vor. „Ég bý þar einn að vísu. Konan
mín býr enn í bænum og starfar sem
lyfjafræðingur í Árbæjarapóteki,“ seg-
ir hann. Gunnlaugur er kvæntur Sig-
rúnu Sveinsdóttur og eiga þau þrjú
uppkomin börn. Hann segir aldrei
hafa komið til greina annað en að hafa
búsetu í því sveitarfélagi sem hann
stýrir. Honum hefur ávallt líkað vel
við Borgarfjörð og segir svæðið búa
yfir ótal möguleikum. Þá séu spenn-
andi áskoranir framundan í rekstri
sveitarfélagsins. „Borgarbyggð hefur
þá sérstöðu að þetta er eitt af þremur
landstærstu sveitarfélögum landsins,
með mjög fjölþætta starfsemi bæði í
þéttbýli og dreifbýli. Starfsemin mót-
ast af þessum aðstæðum, það er hald-
ið uppi þjónustu um allt héraðið og
þannig er starfsemin bæði víðfeðm
og umfangsmikil.“ Gunnlaugur seg-
ir að verkefni sveitarfélaganna séu að
stærstum hluta hefðbundin verkefni,
svo sem fræðslumál, félagsþjónusta,
æskulýðs- og íþróttamál og umhverf-
ismál. „Sveitarfélögin hafa ákveðna
lögbundna skyldu í því sambandi að
halda uppi þjónustu á þessum svið-
um. Aðaláskorunin er að láta tekj-
urnar duga fyrir þeim rekstri,“ bæt-
ir hann við. Hann segir allar sveita-
stjórnir standa frammi fyrir þess-
ari sömu áskorun og að þörfin fyrir
þjónustu sé nánast óendanleg. „Þörf-
in fyrir þjónustu er alltaf miklu meiri
en möguleikarnir á að uppfylla hana.
Það er þessi sigling sem sveitarstjórn-
arfólk tekur. Hér var reksturinn orð-
inn þungur og lítið afgangs af rekstr-
inum en í fyrra og hitteðfyrra var far-
ið í verulegar hagræðingaraðgerðir
sem skilað hafa töluverðum árangri.
Auðvitað er það alltaf stöðug vakt að
fara vel með og gæta hagkvæmni en
það má segja að okkar hlutverk núna
sé meðal annars að standa vörð um
þann árangur sem náðst hefur í þess-
um miklu hagræðingaraðgerðum.“
Ör þróun næstu árin
Aðspurður um hvað sé framundan
hjá sveitarfélaginu nefnir hann að-
gerðir við Grunnskólann í Borgar-
nesi og leikskóla í Reykholtsdal. Ver-
ið sé í viðhaldsframkvæmdum við
grunnskólann og að nú sé verið að
hanna nýja leikskóladeild á Klepp-
járnsreykjum sem muni taka við af
leikskólanum Hnoðrabóli á Gríms-
stöðum. „Það eru ákveðnar aðgerð-
ir sem við erum í, bæði í grunnskól-
anum og leikskólamálum. Það hef-
ur dregið úr fjárfestingum en það er
alltaf eitthvað á döfinni. Mikið er að
gerast hér í héraðinu, það er mikil
uppbygging og miklar framkvæmdir
í ferðaþjónustumálum.“ Hann segir
því stóru viðbótaráskorunina við öll
hefðbundin verkefni sveitarfélags-
ins sé hvernig það bregst við þeirri
þróun í ferðaþjónustu sem á sér nú
stað í Borgarbyggð. „Ég tel að þessi
þróun verði ör á næstu árum. Það
er mikil uppbygging bæði í gistingu
og afþreyingu. Líklega verður lokið
við að leggja bundið slitlag yfir Ux-
ahryggi á næsta ári. Þá kemur teng-
ing við Suðurlandið og myndast al-
veg nýr hringur. Þetta mun hafa al-
veg gríðarleg áhrif. Þetta allt saman
þýðir bara að það koma nýjar áskor-
anir og það verður breytt staða fyr-
ir héraðið á margan hátt. Þetta eru
spennandi tímar,“ heldur Gunnlaug-
ur áfram. Sjálfur segist hann núna að-
allega vera í því að læra, að setja sig
inn í málin og átta sig á aðstæðum.
„Það hjálpar manni aðeins að ég er
ekkert ókunnugur í Borgarfirði. Hér
þekki ég marga og þekki aðstæður,
maður hefur smá forgjöf þannig.“
Myndaði landsliðið
Gunnlaugur á að eigin sögn mörg
áhugamál og er ljósmyndun þar of-
arlega á blaði. Tekur hann aðal-
lega myndir af fuglum og íþrótta-
myndir. „Krakkarnir mínir hafa ver-
ið í íþróttum og ég á hliðarlínunni.
Ég hef meðal annars byggt upp mik-
ið myndasafn, bæði úr handboltan-
um og frjálsíþróttum.“ Síðustu árin
segist Gunnlaugur þó aðallega hafa
myndað á frjálsíþróttamótum. „Þetta
er bara gaman, þetta er söguskrán-
ing. Eitt leiðir af öðru og síðustu þrjú
árin hef ég farið með landsliðinu út
að taka myndir af liðinu, meðal ann-
ars til Austur - Evrópu þegar keppt
var í Evrópubikarnum. Þetta er svona
skrásetning sem krakkarnir hafa
gaman af. Svo verðum við bara að sjá
hvaða farvegur fæst fyrir þetta hér í
efra. Það er kannski verkefni fyrir
næsta vetur,“ segir hann og brosir.
Byrjaði fyrir
tilviljun að hlaupa
Gunnlaugur er þó þekktari fyrir
annað áhugamál sitt. Hann er einn
mesti langhlaupari Íslands og hef-
ur hlaupið einhverja tugi þúsunda
kílómetra á undanförnum tuttugu
árum. Hann byrjaði seint á hlaup-
unum og er enn að, þó hann segist
ekki hlaupa af sömu ákefð og áður.
„Ég var viss um að hlaup væru ekki
mín deild. Ég hljóp einhvern tímann
400 metra hlaup á héraðsmóti fyrir
vestan og hélt að ég myndi drepast.
Það er ekkert flóknara en það,“ segir
hann og hlær. Hann segist hafa byrj-
að í þessari íþrótt fyrir tilviljun. „Ég
byrjaði að hlaupa 1994. Þá var Sig-
rún konan mín og eldri sonurinn að
fara að taka þátt í skemmtiskokkinu
í maraþoninu. Ég átti að gæta yngri
sonarins og halda á fötunum. Svo fór
sá yngri að tuða um að hlaupa líka.
Við hlupum því með, ég með fötin í
annarri hendi og leiddi strákinn með
hinni. Þá fór maður að hugsa að það
gæti verið gaman að prufa þetta af
alvöru.“ Og það gerði hann. Gunn-
laugur hljóp tíu kílómetra árið á eftir
og hefur verið hlaupandi síðan. Eft-
ir að hafa hlaupið tíu kílómetrana
ansi oft reyndi hann við hálft mara-
þon og síðan maraþon. „Það var mik-
ill sigur að hlaupa fyrsta maraþonið
en það var líka sigur að hlaupa fyrstu
tíu kílómetrana. Ég var 48 ára gam-
all þegar ég hljóp maraþonið og fólki
fannst það galið af svona gömlum
manni, að hlaupa maraþon. Það var
svona almennt viðhorf. Að ég myndi í
besta falli eyðileggja á mér lappirnar,“
segir hann og hlær.
Hljóp til Akureyrar
Það var árið 2000 sem Gunnlaug-
ur hljóp fyrsta maraþonið. Fyrsta al-
vöru ofurmaraþonið hljóp hann síðan
nokkrum árum síðar. Ofurmaraþon
eru hlaup sem eru lengri en maraþon
og Gunnlaugur hefur tekið þátt í fjöl-
mörgum slíkum hlaupum. Hann segir
nokkur slík vera í boði hérlendis, svo
sem Laugavegshlaup, 100 kílómetra
hlaup, Hengilshlaup og Esjuhlaup-
ið þar sem hlaupnar eru tíu til ellefu
ferðir upp Esjuna. „Þarna fyrst byrjar
þetta. Ég hef mest verið í ofurhlaup-
unum. Ég er ekkert voðalega hraður
í maraþoninu og þetta einhvern veg-
inn lá betur fyrir mér, þegar maður er
einn eða tvo sólarhringa á ferðinni.“
Lengsta vegalengdin sem Gunnlaug-
ur hefur hlaupið í einu er um 400
kílómetrar á þremur sólarhringum.
„Ég var búinn að hlaupa tvisvar áður
tveggja sólarhringa hlaup. Það var
bara hringbraut og þá fór ég um 350
kílómetra. Þetta lengsta hlaup kall-
ast Thames Ring og þar er hlaup-
inn hringur fyrir norðan London.
Þarna eru hlaupin tíu maraþon. Ég
hljóp líka til Akureyrar á Landsmót-
ið 2009. Þá var ég að safna pening-
um fyrir Grensásdeildina og stoppaði
til að gista á nóttunni. Það var mjög
þægilegt,“ útskýrir hann.
Fjallahlaupin
skemmtilegust
Gunnlaugur heldur sér í góðu formi
með því að hlaupa flesta daga. Hann
miðar við að hlaupa sex daga í viku
og taka einn frídag. Hér áður hljóp
hann þrisvar á dag. „Ég fann tíma
sem ég nota ekki í annað, það voru
morgnarnir. Að fara út að hlaupa
áður en farið er í vinnu, það er tími
sem ekki er tekinn frá neinum. Á
helgum fór ég út um hálf sex og
er kominn inn hálf tíu. Það hefði
verið ómögulegt að vera að fara út
klukkan níu og koma heim klukk-
an eitt. Þá er dagurinn bara bú-
inn,“ segir hann. Hann segist hafa
kynnst nýjum heimi þegar hann
byrjaði að stunda ofurhlaupin. „Ég
kynntist mikið af fólki og þetta voru
mjög skemmtilegar áskoranir sem
mjög fáir höfðu tekist á við. Árið
2005 stofnuðum við nokkrir félagar
100 kílómetra félagið. Þá vorum
við bara fimm hérna á Íslandi sem
höfðum hlaupið 100 kílómetra eða
lengra. Núna erum við yfir 60 sem
eru komin í þennan hóp, fyrir utan
alla hina sem hafa hlaupið frá 50 km
og upp í 100.“
Aðspurður um hvað sé skemmti-
legast í íþróttinni segir hann fjalla-
hlaupin bera af. „Ég hef hlaup-
ið allar kategóríur af ofurhlaup-
um. Á venjulegri götu, í fjalllendi, á
íþróttavelli, kílómetershring, innan-
húss á 390 metra braut og á hlaupa-
bretti.“ Gunnlaugur hefur hlaup-
ið sólarhringshlaup við allar þess-
ar aðstæður. „Mér finnast fjalla-
hlaupin skemmtilegust. Það er fjöl-
breytileikinn, útsýnið og náttúran.
Þú veist aldrei hvað við tekur og svo
eru fjallahlaupin þannig að veður-
farið er svo margbreytilegt. Áskor-
anirnar eru svo ófyrirsjáanlegar. Það
er allt öðruvísi að hlaupa á hlaupa-
bretti þar sem allt er undir kont-
ról eða inni í íþróttahöll. Þá er bara
áskorunin önnur. Aðstæður úti eru
svo óskaplega misjafnar. Maður hef-
ur lent í hita yfir 30 stigum og kulda,
maður getur bæði verið skjálfandi af
Hljóp tvö maraþon í einu til að æfa sig
Gunnlaugur A Júlíusson sveitarstjóri Borgarbyggðar er liðtækur
langhlaupari og hefur lengst hlaupið 400 kílómetra á þremur dögum
Gunnlaugur A Júlíusson tók við sem sveitarstjóri Borgarbyggðar á vormánuðum.
Gunnlaugur varð fjórði þegar hann tók þátt í Thames Ring hlaupinu 2013. Það
hlaup er 400 kílómetra langt og lauk Gunnlaugur hlaupinu á 77 klukkustundum
og 32 mínútum.