Skessuhorn - 15.06.2016, Side 24
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 201624
Inga María Hjartardóttir er 22 ára
Skagakona sem vinnur nú að útgáfu
sinnar fyrstu plötu. Inga stund-
ar nám í Boston í Bandaríkjun-
um við Berklee College of Music.
Hún hefur verið við nám í Berklee
síðan haustið 2013 en á nú aðeins
eina önn eftir og verður plötuútgáf-
an hennar fyrsta verk eftir útskrift.
„Ég hef lengi ætlað mér að gefa út
þessa plötu; ég byrjaði að semja lög-
in á hana á mínu öðru ári í Banda-
ríkjunum, árið 2014,“ segir Inga
María en hún semur öll lög og texta
á plötunni. „Mér fannst mjög erf-
itt að byrja að semja og fyrst fannst
mér svolítið óþægilegt að spila lög-
in fyrir aðra. Ég hafði aldrei áður
spilað lög eftir sjálfa mig fyrir aðra
og mér leið eins og ég væri að lesa
upp úr dagbókinni minni.“
Platan hennar er unnin bæði á
Íslandi og í Bandaríkjunum. „Það
eru tveir strákar sem eru með mér
í skólanum sem eru að útsetja lög-
in með mér; annar býr í Boston og
hinn í Los Angeles. Svo eru allir
þeir sem spila inn á plötuna strák-
ar sem búa úti. Hérna heima eru
félagar mínir, Viðar og Ingi Björn,
að hjálpa mér að útsetja lögin. Ég
ætla mér að reyna að spila sem mest
og koma mér á framfæri á Íslandi
í sumar svo ég er með aðra hljóm-
sveit með mér hér á landinu. Ég tek
upp alla plötuna úti í Bandaríkjun-
um en það er bara vegna þess að
það er töluvert ódýrara fyrir mig.
Það er mjög dýrt að gefa út plötu
og ég vil helst gefa hana út í föstu
formi en ekki bara á netinu. Það
kostar hins vegar aðeins meira. Ég
hef sótt um styrki bæði hjá Íslands-
banka og Norðuráli og bind vonir
við að fá stuðning við verkefnið.“
Fyrsta lagið á plötunni, Guide
Me Home, kemur út ásamt mynd-
bandi á þjóðhátíðardaginn 17. júní.
„Ég og Kristinn Gauti Gunnars-
son höfum verið að vinna í því að
gera myndbönd fyrir fyrstu tvö lög-
in. Ég ætla mér að gefa út eitt lag
sautjánda hvers mánaðar þangað
til í desember þegar platan kem-
ur út. Það gæti orðið erfitt og all-
ur minn frítími fer í þetta en ég hef
trú á því að þetta náist,“ segir Inga
vongóð en hún mun frumflytja lag-
ið á Akratorgi á 17. júní skemmtun
í bænum ásamt því að flytja önnur
óútkomin lög af plötunni.
Vill vera áfram í
Bandaríkjunum
Inga María var aðeins nítján ára
þegar hún flutti ein til Boston. Í
dag hefur hún komið sér vel fyrir.
„Mér líður alveg frábærlega úti.
Í skólanum hef ég náð að sam-
eina bóklegt nám og tónlistarnám
en ég bjóst ekki við að geta það.
Eftir fyrsta árið velja sér allir eitt-
hvað sérsvið og ég valdi mér tón-
listarviðskiptafræði. Ég væri til í
að vinna við það í Bandaríkjunum
í framtíðinni. Ég er ekkert viss um
hvort það takist hjá mér en það er
draumurinn.Ég verð í það minnsta
í Bandaríkjunum í hálft ár eftir út-
skrift og ætla að reyna að nýta mér
þann tíma til þess að reyna koma
mér fyrir. Á þessum árum í Berk-
lee hef ég byggt upp gott tengsl-
anet og vonandi nýtist það mér
þegar ég reyni að koma mér fyrir.
Ég vil helst vinna ágætlega laun-
aða vinnu með tónlistinni; þá get-
ur maður kannski samið og spilað
áhyggjulaust. Það er mikið hark að
vera tónlistarmaður og því getur
verið erfitt að njóta sín ef maður
er með stanslausar áhyggjur af t.d.
fjármálum. Ég hef fengið að kynn-
ast áhyggjum af fjármálum síðan
ég flutti út. Námið er dýrt í Berk-
lee og því mikið hark. Ég hef reynt
að vinna eins mikið og ég get þeg-
ar ég er á Íslandi auk þess sem ég
setti af stað söfnun í fyrra á netinu
til að hjálpa mér að borga skóla-
gjöldin og hyggst gera það líka í ár.
Á næsta ári fæ ég síðan ekkert frá
LÍN svo ég er að hugsa upp leiðir
til þess að ná að borga skólagjöld-
in. Ég er að vinna innan skólans
úti við það að kenna tónfræði og
tónheyrn og þar fæ ég aur. Ég er
að velta því fyrir mér að setja upp
sýningu í lok sumars. Ég hef ekki
alveg ákveðið hvernig hún verður
en ég ætla reyna blanda tónlistinni
saman við fimleika eða eitthvað
í þeim dúr. Það verður eitthvað
flott en ég hef ekki alveg ákveðið
hvernig hún verður,“ segir Inga.
„Ég væri alveg til í að vera laus við
þessar áhyggjur og einbeitt mér
meira að því sem ég vil gera,“ bæt-
ir hún við að lokum. bþb
Það er hverju bæjarfélagi mikil-
vægt þegar gömul hús með sögu
eru endurbætt og fá nýtt hlutverk.
Eitt þeirra húsa sem hefur nýlega
gengið í gegnum endurnýjun líf-
daga stendur við Ennisbraut 2 í
Ólafsvík, betur þekkt sem „Láru
Bjarnabúð“. Lárubúð er sögufrægt
hús í Ólafsvík og var byggð af þeim
hjónum Láru Bjarnadóttur og Jóni
Gíslasyni í kringum 1932. Var þar
meðal annars fyrsta vatnssalernið
sem sett var í íbúðarhús í Ólafsvík
og var þetta jafnframt fyrsta íbúð-
arhúsið í bænum sem var rafvætt.
Lengst af var þar starfandi versl-
un Jóns Gíslasonar, með póstaf-
greiðslu og fleiru.
Það eru vinirnir Sturla Gunn-
ar Eðvarðsson frá Súgandafirði og
Tryggvi Leifur Óttarsson frá Hell-
issandi, fyrrum herbergis- og skóla-
félagarnir frá Menntaskólanum á
Ísafirði, sem eru núverandi eig-
endur hússins. Lögðu þeir saman
af stað í þetta verkefni að gera upp
húsið og reka þar gistiheimili og
hafa þeir staðið fyrir miklum end-
urbótum á húsinu. Fannst þeim við
hæfi að nefna hlutafélagið sem þeir
stofnuðu um reksturinn „Lárubúð“
eftir frú Láru Bjarnadóttur, enda
hefur húsið alla tíð gengið und-
ir því nafni. Þeir félagar Tryggvi
og Sturla réðust ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur því samkvæmt
faglegri úttekt frá verkfæðistofu átti
ekki að borga sig að gera húsið upp,
enda var það komið í algjöra nið-
urníðslu. Engu að síður keyptu þeir
húsið í ágúst í fyrra og höfðu það að
markmiði að endurbyggja það og
reyna að endurnýta það sem hægt
væri. Fengu þeir smiðina og feðg-
ana Þóri Jónsson og Jóhann Þóris-
son í Rifi til að stýra endurbótum.
Stoltir af verkefninu
Það má segja að húsið hafi að hluta
til verið endurbyggt, en skipt var
um allar lagnir, glugga, einangrun
og ytra byrði hússins. Einnig fóru
fram miklar endurbætur að inn-
an og reynt var að halda í það sem
hægt var á efri hæð hússins, enda
þóttu hjónin Lára og Jón smekk-
vís. Neðri hæð hússins var illa far-
in eftir að lekið hafði inn á hana í
allmörg ár. Þurfti því að endur-
byggja hana að fullu. Tókst þeim
feðgum verkið vel og er allur þeirra
frágangur til fyrirmyndar. Það þarf
aðkomu margra iðnaðarmanna að
verki sem þessu og voru einung-
is heimamenn fengnir til verks-
ins. Að sögn Tryggva Leifs er það
mikil gæfa að hafa aðgang að slík-
um fagmönnum í heimabyggð.
„Þeir á meðal voru Vilberg Krist-
jánsson pípari, Mikki Gluszuk raf-
virki, Eddi málari í Grundarfirði,
Eiríkur Gautsson múrari og Véla-
leiga Tómasar með sögun og jarð-
vinnu, svo ég nefni einhverja,“ segir
Tryggvi Leifur. Gistiheimilið hef-
ur nú tekið til starfa og er leigt út
í skammtímaleigu í gegnum leigu-
síðuna Airbnb. Umsjón með hús-
inu hafa þær mæðgur frá Hellis-
sandi, Júníana Björg Óttarsdóttir
og Guðlaug Íris Jóhannsdóttir. Að
sögn Tryggva eru þeir félagar bjart-
sýnir og bókanir góðar fyrir sumar-
ið. „Við erum stoltir af þessu verk-
efni og það er aldrei að vita nema
að við tökum að okkur annað verk-
efni fljótlega.“
þa
Endurbætur á Lárubúð í Ólafsvík
Lárubúð hefur nú verið endurnýjuð og verður rekin sem gistiheimili.
Verslunin Bjarg við Stillholt á
Akranesi mun flytja tímabund-
ið í annað húsnæði frá og með 17.
júní. „Ástæða þess er að við ætlum
að fara í miklar endurbætur og við-
gerðir á húsnæði verslunarinnar að
Stillholti 14. Stefnum við á að opna
nýja og glæsilega verslun í byrjun
ágúst og fagna þá um leið 50 ára af-
mæli verslunarinnar,“ segir Rakel
Óskarsdóttir í Bjargi. Vegna flutn-
inganna verður verslunin lokuð
laugardaginn 18. júní og mánudag-
inn 20. júní. „Við opnum svo versl-
unina á Kalmansvöllum 1 þar sem
verslun Nettó var (við hlið Olís)
þriðjudaginn 21. júní,“ segir Rakel.
mm
Verslunin Bjarg flutt
tímabundið á Kalmansvelli
Miklar endurbætur verða nú gerðar á húsnæðinu við Stillholt 14.
Verslunin verður tímabundið færð að Kalmansvöllum 1.
Inga María stefnir að plötuútgáfu í desember
Inga María og Marc Malsegna við upptökur plötunnar. Ljósm. Joe Bray.Inga María við upptökur á myndbandi.