Skessuhorn - 15.06.2016, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 31
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Félagsmenn í Vélhjólaíþróttafélagi
Akraness tóku þátt á fyrsta mótinu í
Íslandsmeistara mótaröðinni í mo-
tocross sem fram fór um síðustu
helgi á Selfossi. Allir stóðu sig með
prýði. Bestum árangri náðu þeir
Sveinbjörn Reyr Hjaltason og Jó-
hann Pétur Hilmarsson sem urðu í
2. og 3. sæti í B-flokki.
VÍFA heldur bikarmót í Akra-
braut í dag, miðvikudaginn 15.
júní. Keppni hefst klukkan 19:00
og er frítt inn á svæðið. Skagamenn
og gestir eru hvattir til að kíkja við,
segir í tilkynningu frá VÍFA.
mm
Íslandsmótið í
motocross hafið
Önnur umferð Íslandsmeistara-
mótsins í torfæru fór fram á Fells-
enda við norðaustanvert Akrafjall
síðastliðinn laugardag. Þetta var í
fyrsta skiptið í 15 ár sem keppt er
á svæðinu. Helga Katrín hjá Tor-
færuklúbbnum sagði í samtali við
Skessuhorn að keppnin hafi geng-
ið að mestu vel fyrir utan slys sem
átti sér stað og greint er frá í ann-
arri frétt í blaðinu. „Keppnin gekk
vel og það var hörð barátta. Ég man
ekki eftir svona harðri og spennandi
baráttu um efstu sætin. Brautin var
mjög krefjandi og mikil drulla setti
strik í reikninginn. Þetta var því
mjög skemmtileg keppni og áhorf-
endur fengu mikið fyrir peninginn,“
segir Helga.
Helga vill þakka öllum sjálfboða-
liðum sem komu að keppninni.
„Þetta væri ekki hægt nema með
allri þeirri hjálp sem við fáum. Ég
vil einnig þakka öllum þeim sem
mættu. Við erum með samning sem
gildir í fimm ár á þessu svæði. Fólk
má því búast við torfærukeppni á
þessu svæði á næstu árum.“
Keppt er í tveimur flokkum ann-
ars vegar í flokki þar sem bílarnir eru
sérútbúnir og hins vegar í götubíla-
flokki. Í fyrrnefndum flokki sigraði
Snorri Þór Árnason á bílnum Kór-
drengnum með 1870 stig, í öðru sæti
varð Guðmundur Ingi Arnarsson á
bílnum Ljóninu með 1817 stig og í
þriðja sæti var Ólafur Bragi Jónsson
á bílnum Ref með 1792 stig. Í götu-
bílaflokki sigraði Skúli Kristjánsson
á bílnum Pjakkinum með 1340 stig,
Ívar Guðmundsson á bílnum Kölska
varð í öðru sæti með 1340 stig og í
þriðja sæti með 1114 stig lenti Kata
G. Magnúsdóttir á bílnum Hulk.
bþb/ Ljósm. Guðný J.
Guðmarsdóttir.
Önnur umferð Íslandsmeistara-
mótsins í torfæru ekin á Fellsenda
Víkingur Ólafsvík fékk Knatt-
spyrnufélagið Hlíðarenda í heim-
sókn síðastliðið miðvikudagskvöld í
A-riðli fyrstu deildar kvenna. Fyr-
ir leikinn hafði Víkingur unnið alla
sína leiki. Það varð engin breyting á
því leikurinn endaði 1 – 0 fyrir Vík-
ingi. Sigurmark Snæfellinga kom á
elleftu mínútu og það skoraði Sam-
ira Suleman sem hefur nú skorað
sex mörk í fjórum leikjum. Víking-
ar sitja nú á toppi riðilsins með fullt
hús stiga eftir fjóra leiki ásamt HK/
Víkingi og ÍR.
Næsti leikur Víkings er 25. júní
gegn liði HK/Víkings á útivelli.
bþb
Víkingur ásamt tveimur öðrum á toppi A riðils
Samira að skora eitt af mörkum sínum. Ljósm. úr safni.
Skagakonur og fyrstu deildar lið
Hauka mættust í 16 liða úrslitum
bikarkeppni KSÍ síðastliðinn laug-
ardag á Ásvöllum í Hafnarfirði.
Leikurinn einkenndist af baráttu og
ljóst að hvorugt liðið ætlaði að gefa
nokkuð eftir. Skagakonur stjórnuðu
leiknum nánast allan tímann og var
boltinn að mestu við fætur þeirra.
Skagakonur voru sterkari aðilinn í
leiknum og sköpuðu sér mörg færi
og hálffæri sem ekki nýttust. Það
var þó Margrét Björg Ástvalds-
dóttir leikmaður Hauka sem skor-
aði eina mark leiksins á 65. mín-
útu þegar hún átti gott skot af 30
metrum sem endaði í netinu. 1 – 0
svekkjandi tap staðreynd og Skaga-
konur úr leik í bikarnum í ár.
Næsti leikur ÍA er föstudaginn
24. júní gegn ÍBV í Vestmannaeyj-
um.
bþb/ Ljósm. Guðmundur Bjarki
Skagakonur úr leik í bikarnum
Skagamenn mættu liði Breiðabliks
í sextán liða úrslitum bikarkeppni
KSÍ síðastliðið fimmtudagskvöld.
Breiðablik sigraði í leiknum með
tveimur mörkum gegn einu. Jafnt
var eftir venjulegan leiktíma og
því réðust úrslitin í framlengingu.
Árið 2013 komust Skagamenn síð-
ast í sextán liða úrslit bikarsins og
var því sagan að endurtaka sig.
Skagamenn léku einmitt einnig
við Breiðablik þá og tapaðist leik-
urinn í framlengingu líkt og nú.
Blikar byrjuðu leikinn af krafti og
náðu forystu strax á fimmtu mín-
útu. Jonathan Ricardo Glenn slapp
þá inn fyrir vörn Skagamanna eftir
góða sendingu Andra Rafns Yeom-
an og Glenn kláraði færið af ör-
yggi. Skagamenn voru heppnir að
fá ekki annað mark á sig í kjölfarið
þegar Atli Sigurjónsson átti hörku-
skot í slána. Skagamenn komust
loksins inn í leikinn um miðbik
fyrri hálfleiks og var jafnræði með
liðunum eftir það.
Á 52. mínútu áttu Blikar mjög
vel uppbyggða sókn sem end-
aði með því að Andri Rafn komst
í opið marktækifæri en Ármann
Smári var búinn að lesa aðstæð-
ur vel og kom sér fyrir á marklínu
og tókst að verða fyrir skoti Andra.
Ármann Smári var besti maður
vallarins í leiknum. Hann skoraði
mark Skagamanna á 60. mínútu.
Iain James Williamson tók auka-
spyrnu frá miðju og sendi góðan
bolta fyrir markið. Ármann komst
fyrstur í boltann og stangaði bolt-
ann inn í markið. Leikurinn var
nokkuð fjörugur eftir markið en
ekkert mark skorað svo gripið var
til framlengingar.
Hetja Breiðabliks í framleng-
ingunni reyndist vera hinn 16 ára
gamli Ágúst Eðvald Hlynsson sem
er einn efnilegasti íslenski knatt-
spyrnumaður Íslands í dag. Bolt-
inn barst á hann á 110. mínútu eft-
ir aukaspyrnu og kláraði hann fær-
ið af mikilli yfirvegun.
Leiknum lauk því með 1 – 2 sigri
Breiðabliks og eru þeir komnir
áfram í átta liða úrslit en Skaga-
menn eru úr leik.
Langt er í næsta leik hjá Skaga-
mönnum vegna EM í fótbolta.
Hann verður fimmtudaginn 23.
júní þegar ÍA mætir erkifjendum
sínum í KR í Frostaskjólinu.
bþbÁrmann Smári var besti leikmaður vallarins. Ljósm. Guðmundur Bjarki.
Skagamenn féllu úr leik í bikarnum