Skessuhorn


Skessuhorn - 07.09.2016, Síða 10

Skessuhorn - 07.09.2016, Síða 10
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 201610 „Það er allt fullt af fiski á miðun- um. En hann tekur ekki línu vegna mikils ætis, hér er allt fullt af mak- ríl og síld, svo fiskurinn vill ekki sjá línubeituna,“ segir Örvar Mar- teinsson skipstjóri á Sverri SH í samtali við Skessuhorn. Sverrir SH er 15 brúttótonna línu- og hand- færabátur sem róið er frá Ólafs- vík. Örvar segist vera áhyggjufull- ur vegna stöðunnar í sjávarútvegi vegna styrkingar krónunnar. „Auk þess sem það er ekki mikill línu- fiskur á haustin, alveg fram í miðj- an október. Svo þetta lítur ekki vel út í haust en vonandi rætist þó úr þessu,“ segir Örvar. Hann segist vera á skaki þessa viku, til að reyna að minnka kostn- að, en þar sem útgerðin sé með beitningarfólk í vinnu þurfi að fara fljótlega aftur á línu. Þá segist Örvar ekkert skilja í því hvers vegna búið er að skera ýsukvótann svona mik- ið niður. „Það er ekkert vit í því að hafa svona mikið bil á milli fiskteg- unda, við ráðum því ekki hvað bít- ur á krókana. Auk þess var löngu- kvótinn skorinn niður um 43% og við erum ekki með nema fjögur til fimm tonn af löngukvóta. Svo sá kvóti verður fljótt búinn, eins og hjá hinum línubátunum. Það verð- ur þá ekki auðvelt að fá leigukvóta,“ segir Örvar. „Nei, þetta lítur því miður illa út eins og sakir standa,“ bætir hann við að endingu. af Lítur ekki vel út eins og sakir standa Örvar Marteinsson skipstjóri á Sverri SH er ekki bjartsýnn í upphafi kvótaársins. Áramót í útgerðinni Nýtt kvótaár hófst síðastliðinn fimmtudag. Þar af leiðandi hefur Fiskistofa úthlutað aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2016/2017. Að þessu sinni er úthlutað 369.925 tonnum í þorskígildum talið samanborið við um 368.394 þorskígildistonnum á sama tíma fyrir ári. Aukning á milli ára samsvarar því um 1.530 þorskígildistonnum. Skip á Vestur- landi fengu úthlutað rétt rúmlega 53.161 tonnum í þorskígildum eða 14,4% af heildarúthlutun. Úthlut- un í þorski er rúmlega 194 þúsund tonn og hækkar um tæp fjögur þús- und tonn frá fyrra ári. Ýsukvótinn dregst saman um rúm 1.400 tonn og er nú 27.523 tonn. Rúmlega 1.200 tonna samdráttur er í úthlutun á gullkarfa, 5.200 tonna samdráttur í löngu og 6.800 tonna samdráttur í úthlutun á íslenskri sumargotssíld. Úthlutað aflamark er alls 429.363 tonn sem er um 16 þúsund tonnum minna en á fyrra ári. HB Grandi fær mest Alls fá 504 skip úthlutað aflamarki að þessu sinni samanborið við 534 á fyrra fiskveiðiári. Þar af eru 98 skip á Vesturlandi. Það skip sem fær út- hlutað mestu aflamarki á landinu er Guðmundur í Nesi ER 13, en hann fær 8.324 þorskígildistonn eða 2,25% af úthlutuðum þorskígildum. Höfrungur III AK 250 fær úthlutað mestu aflamarki af skipum á Vest- urlandi, eða rúmum 6.476 þorsk- ígildistonnum en það eru um 1,8% af úthlutuðum þorskígildum. Líkt og á undanförnum árum fá fimm- tíu stærstu fyrirtækin úthlutað sem nemur um 86% af því aflamarki sem úthlutað er í landinu. Sé litið til þeirra sem eru með mesta úthlutun fær HB Grandi mestu úthlutað til sinna skipa, eða 10,3% af heildinni. Samherji kemur næstur með 6% og þá Þorbjörn hf. í Grindavík með 5,5%. Þetta er sama röð efstu fyrir- tækja og verið hefur undanfarin ár. grþ Nánast sambærilegu magni kvóta úthlutað á nýju fiskveiðiári Þorski landað úr Bárði SH. Útgerð Bárðar fær um 641 tonni úthlutað. Ljósm. af. Úthlutað aflamark skipa á Vesturlandi kvótaárið 2016/2017 Skip Heimahöfn Þorskígildi Höfrungur III AK-250 Akranes 6.476.761 Helga María AK-16 Akranes 5.489.555 Sturlaugur H Böðvarsson AK-10 Akranes 5.479.371 Tjaldur SH 270 Rif 3.053.217 Grundfirðingur SH-24 Grundarfjörður 2.336.707 Hringur SH-153 Grundarfjörður 2.320.797 Örvar SH-777 Rif 1.907.204 Helgi SH-135 Grundarfjörður 1.632.650 Þórsnes SH-109 Stykkishólmur 1.600.526 Rifsnes SH-44 Rif 1.389.792 Bíldsey SH-65 Stykkishólmur 1.209.341 Steinunn SH-167 Ólafsvík 1.165.386 Saxhamar SH-50 Rif 1.114.547 Farsæll SH-30 Grundarfjörður 973.686 Sigurborg SH-12 Grundarfjörður 936.131 Ólafur Bjarnason SH-137 Ólafsvík 913.323 Magnús SH-205 Hellissandur 908.392 Tryggvi Eðvarðs SH-2 Rif 855.599 Hamar SH-224 Rif 770.212 Guðbjartur SH-45 Hellissandur 687.379 Faxaborg SH-207 Rif 683.665 Kristinn SH-812 Rif 670.506 Gullhólmi SH-201 Stykkishólmur 662.448 Rifsari SH-70 Rif 661.553 Bárður SH-81 Arnarstapi 640.923 Stakkhamar SH-220 Rif 624.311 Esjar SH-75 Rif 600.462 Egill SH-195 Ólafsvík 580.096 Víkingur AK-100 Akranes 545.580 Særif SH-25 Hellissandur 530.361 Matthías SH-21 Rif 493.612 Sverrir SH-126 Ólafsvík 386.854 Guðmundur Jensson SH-717 Ólafsvík 372.885 Arnar SH-157 Stykkishólmur 348.529 Sveinbjörn Jakobsson SH-10 Ólafsvík 343.003 Gunnar Bjarnason SH-122 Ólafsvík 339.544 Kvika SH-23 Arnarstapi 314.667 Bára SH-27 Hellissandur 226.235 Brynja SH-236 Ólafsvík 213.195 Vísir SH-77 Ólafsvík 210.551 Bjarni Ólafsson AK-70 Akranes 198.146 Katrín SH-575 Ólafsvík 190.330 Álfur SH-414 Arnarstapi 171.169 Kári SH-78 Stykkishólmur 148.147 Ebbi AK-37 Akranes 140.219 Kári III SH-9 Rif 95.528 Stapavík AK-8 Akranes 88.114 Bryndís SH-128 Arnarstapi 86.219 Hafnartindur SH-99 Hellissandur 84.875 Ingibjörg SH-174 Rif 77.041 Rán SH-307 Arnarstapi 73.789 Ísak AK-67 Akranes 72.217 Þerna SH-350 Rif 69.641 Hólmar SH-355 Ólafsvík 57.353 Hólmarinn SH-114 Stykkishólmur 52.458 Vinur SH-34 Grundarfjörður 51.693 Rún AK-125 Akranes 49.821 Birta SH-203 Grundarfjörður 49.333 Emilía AK-57 Akranes 44.543 Þura AK-79 Akranes 43.157 Glaumur SH-260 Rif 41.349 Friðrik Bergmann SH-240 Ólafsvík 37.765 Brimsvala SH-262 Stykkishólmur 36.881 Hanna SH-28 Stykkishólmur 36.243 Þytur MB-10 Borgarnes 36.217 Huld SH-76 Arnarstapi 36.021 Herdís SH-173 Rif 35.239 Gestur SH-187 Arnarstapi 34.340 Margrét SH-330 Grundarfjörður 30.555 Kristján SH-176 Arnarstapi 29.142 Glaður SH-226 Ólafsvík 27.271 Hilmir SH-197 Ólafsvík 25.243 Kristborg SH-108 Stykkishólmur 22.675 Hafrún SH-125 Ólafsvík 21.317 Sædís SH-138 Ólafsvík 18.793 Geysir SH-39 Ólafsvík 18.265 Frú Emilía SH-60 Arnarstapi 17.949 Hafdís SH-309 Arnarstapi 16.197 Ríkey MB-20 Borgarnes 16.144 Erla AK-62 Akranes 15.045 Karl Þór SH-110 Stykkishólmur 14.468 Jóa II SH-275 Rif 14.000 Sælaug MB-12 Borgarnes 12.532 Hansi MB-1 Borgarnes 10.398 Jói á Nesi SH-159 Ólafsvík 9.815 Mundi AK-34 Akranes 9.711 Þröstur SH-19 Grundarfjörður 7.343 Sæfari II SH-43 Grundarfjörður 7.209 Selfell SH-36 Stykkishólmur 4.878 Björgvin SH-500 Ólafsvík 2.024 Leifi AK-2 Akranes 1.594 Rakel SH-700 Ólafsvík 1.437 Bessa SH-175 Rif 289 Mangi á Búðum SH-85 Ólafsvík 163 Fákur SH-8 Stykkishólmur 58 Kvika SH-292 Stykkishólmur 1 Borgar Sig AK-66 Akranes 1 grþ

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.