Skessuhorn - 07.09.2016, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2016 21
sjóða í hver.
Fundarmenn voru minntir á kynn-
ingarfund um sameiginlegt svæð-
isskipulag Dalabyggðar, Reykhóla-
hrepps og Strandabyggðar, sem fram
fór í gær, þriðjudaginn 6. september.
Þar gafst íbúum kostur á að kynna
sér vinnu við sameiginlega svæðis-
skipulagsáætlun og hafa áhrif á mót-
un hennar með því að koma hug-
myndum sínum á framfæri.
kgk
• Tryggja þarf endurheimt öruggrar heilbrigðisþjónustu á
landsbyggðinni
• Almannatryggingar verði endurskoðaðar með róttækum hætti.
Afnám skerðinga og tekjutenginga
• Eum framhaldsskóla og háskóla í kjördæminu. Stöndum vörð
um símenntun
• Flýtum brýnum samgöngu- og fjarskipataverkefnum á
NV-landi
• Hlúum að nýbúum, vöndum aðlögun. Þjálfum og menntum
heimamenn á þessu sviði
• Arður af auðlindum þjóðarinnar verði nýttur til uppbyggilegra
verkefna í þágu almennings
• Búum stórum og smáum fyrirtækjum lífvænlegt
rekstrarumhver
• Bætum í stuðning við ungar barnafjölskyldur og
einstæða foreldra
Fleiri áhersluatriði má nna á www.facebook.com/Gudjonbrjansson/
GUÐJÓN S. BRJÁNSSON SÆKIST EFTIR 1. SÆTI
í prófkjöri jafnaðarmanna í NV-kjördæmi 8. – 10. sept.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Íbúafundur um ferðamál var hald-
inn á Reykhólum mánudaginn 29.
ágúst. Um 20 manns mættu, þar af
16 sem bjóða hvers konar þjónustu
við ferðamenn. Markmiðið var að
safna hugmyndum um hvað mætti
betur fara í ferðaþjónustu á svæðinu,
samhæfa upplýsingar til ferðamanna
og undirbúa framhaldið. Sveitarfé-
lagið ver árlega 8,5 milljónum króna
til reksturs upplýsingamiðstöðv-
ar, sundlaugar og tjaldsvæðis. Sam-
kvæmt teljurum Vegagerðarinnar
fóru 13.616 bílar um Reykhólahrepp
í júlí síðastliðnum, eða fimm þúsund
fleiri en í sama mánuði árið 2014.
Í júlímánuði komu 1.931 í upplýs-
ingamiðstöðina á Reykhólum, eða
563 fleiri en í júlí 2014. Gestir sund-
laugarinnar voru 2.371, þar af 255
erlendir. Fundurinn var haldinn að
frumkvæði Maríu Maack, verkefna-
stjóra hjá AtVest og íbúa á Reykhól-
um. Þetta kemur fram á Reykhólav-
efnum, þar sem samantekt Maríu frá
fundinum var birt.
Í umræðum fundargesta kom fram
að ferðamönnum þætti sveitin fögur
og væru því fegnir að svæðið væri
ekki umsetið. Þeir væru hrifnir af
öllu sem tengdist svæðinu, ekki síst
ef hægt var að sjá lifandi sýningu sem
tengist til dæmis hlunnindum svæð-
isins, en einnig vakti heimafengið
handverk áhuga, sem og almennur
búskapur og jarðhiti.
Reynsla heimamanna af ferða-
mönnum var almennt góð og þeir
vilja gjarnan fá fleiri ferðamenn. En
jafnframt betri afkomu af þjónustu
sem veitt er og varast skal að veita
þjónustu án þess að taka greiðslu
fyrir. Þótti fundargestum vanta betri
merkingar um nánasta umhverfi,
fólk og staði og afþreyingu. Merkja
mætti staðsetningu tjaldstæðisins
betur innan þéttbýlisins og einni
var stungið upp á stórri mynd sem
sýndi hvar þjónustu er að finna við
aðal þjónustukjarnann. Einnig þótti
fundargestum æskilegt ef útbúið yrði
yfirlitskort um allan hreppinn með
gönguleiðum, áhugaverðum stöð-
um, þjónustu og jafnvel stuttum frá-
sögnum.
Þá kom fram á fundinum að opn-
unartímar upplýsingamiðstöðvarinn-
ar hentuðu ekki nægilega vel. Betra
væri að hafa opið fyrr á morgnana,
að sögn ferðaþjóna, en upplýsinga-
miðstöðin hefur verið opin frá 11 til
17 í sumar. Þá myndi lengdur opn-
unartími verslunarinnar einnig koma
sér vel þó sumir heimamenn myndu
ef til vill alltaf kaupa inn korteri fyrir
lokun, óháð opnunartíma.
Óleyst mál,
úrbætur og nýjungar
Vilji er til að bjóða út tjaldsvæði
hreppsins og færa þar með gjaldtöku
og umhirðu á leigutaka, en það mál
er óleyst. Ekki er einhugur um þró-
un bátasafns og hlunnindasýningar,
en til stendur að móta stefnu Báta-
og hlunnindasafnsins til framtíðar.
Þá eru salernismál einnig óleyst, en
allir fundarmenn voru sammála um
að þörf væri á að koma fyrir salern-
um á fleiri stöðum í hreppnum.
Varðandi úrbætur og nýjungar
kom fram á fundinum að verið væri
að hanna stíga og merkingar um
hverasvæðið á Reykhólum. Er það
mál í farvegi frá hendi sveitarstjórn-
ar. Þá eru uppi hugmyndir um nokk-
urs konar leitartæki sem leiðir fólk
á göngu um áhugaverða staði, auk
þess sem hugmyndabræðingur er í
gangi um sögugöngur sem tengjast
Gufudal.
Veitingastað þykir vanta í þorp-
inu, en uppi eru hugmyndir um veit-
ingastað í tengslum við verslunina.
Að lokum var lagt til að seld verði
stök egg og ferðamönnum leyft að
Ferðamál voru rædd á íbúafundi á Reykhólum
Gestir voru líklega aldrei fleiri yfir eina helgi í sumar en á Reykhóladögum.
Gestum hefur hins vegar fjölgað mikið í Reykhólahreppi síðustu tvö ár. Ríflega
500 fleiri komu í upplýsingamiðstöðina á Reykhólum í júlí síðastliðnum en í júlí
2014 og bílaumferð um hreppinn hefur aukist um fimm þúsund bíla miðað við
sömu mánuði.
Á fundinum kom fram að ferðamenn væru sérstaklega áhugasamir um að sjá
lifandi sýningar. Hér má sjá Jóhannes Gíslason frá Skáleyjum ríða net á Báta- og
hlunnindasýningunni.