Skessuhorn - 07.09.2016, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 201628
Nýlenduarður íbúðaeigenda á höf-
uðborgarsvæðinu frá árinu 1995 er
um 1.000 milljarðar króna. Ný-
lenduarðurinn felst í því að íbúða-
verð á höfuðborgarsvæðinu hefur
hækkað tvöfalt meira en almennt
verðlag á þessum tíma og verð-
mæti íbúða á höfuðborgarsvæðinu
er 1.250 milljörðum hærra en það
væri er það hefði fylgt almennri
verðlagsþróun á þessum tíma.
Verðmæti íbúða á landsbyggðinni
hefur hækkað mun minna á sama
mælikvarða eða um 200 – 250
milljarða.
Nýlendustefnan gagnvart lands-
byggðinni birtist í aðgerðum ríkis-
valdsins á mörgum sviðum og al-
mennri umræðu og andróðri gagn-
vart landsbyggðinni. Umræður um
sjávarútvegsmál og landbúnaðar-
mál eru fyrirferðarmiklar og hafa
sem meginstef að skattleggja sjáv-
arútveg sérstaklega og draga úr
stuðningi við landbúnað sem þó
verður sífellt umfangsminni þátt-
ur í efnahagslífi landsmanna. Mik-
il andstaða er við uppbyggingu
iðnaðar á landsbyggðinni og orku-
vinnslu þótt hvergi í heiminum sé
umhverfisvænni orkuframleiðsla
en á Íslandi. Fjárfesting í margvís-
legum innviðum í ferðaþjónustu
er stórlega vanrækt þótt erlend-
ir ferðamenn standi undir a.m.k.
20% af öllum tekjum af neyslu-
sköttum.
Vöxtur heilbrigðiskerfisins er
fyrst og fremst á höfuðbogarsvæð-
inu en heilbrigðisstofnanir á lands-
byggðinni hafa margar verið látnar
veslast upp. Háskólakerfið er fyrst
og fremst byggt upp í Reykjavík.
Vegakerfinu á landsbyggðinni er
illa haldið við og lítill metnaður er
í vegaframkvæmdum. Reykjavík-
urborg hefur skipulagt Reykjavík-
urflugvöll að stórum hluta í burtu.
Aðgerðir í húsnæðismálum mið-
ast fyrst og fremst við höfðuborg-
arsvæðið.
Og til að fylgja
öllu þessu eft-
ir er mikil bar-
átta í gangi við
að minnka vægi
atkvæða íbúa
landsbyggðar-
innar.
N i ð u r s t a ð a
allra þessara að-
gerða sem efla
h ö f u ð b o r g a r-
svæðið á kostnað
landsbyggðarinnar er sú að íbúða-
verð á höfuðborgarsvæðinu hefur
hækkað í kringum 100% umfram
almennt verðlag frá árinu 1995. Í
hinnu miklu hækkun íbúðaverðs
hafa íbúðaeigendur á höfuðborg-
arsvæðinu fengið arð sinn af þess-
ari stefnumörkun og þróun. Ný-
lenduarðurinn er í öllum aðalat-
riðum skattfrjáls eignamyndun.
Fjölskylda sem keypti sér íbúð-
arhúsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu fyrir 20 árum og er nú að selja
sömu eign getur þannig reiknað
með að um helmingur söluverðs-
ins sé skattfrjáls söluhagnaður
vegna verðhækkunar umfram al-
mennt verðlag.
Það er einnig merkilegt að fylgj-
ast með umræðu nú um stundir
um eignarrétt á landi og auðlind-
um. Eignarréttartilfinningin sem
tengist hugtakinu þjóðareign virð-
ist af einhverjum ástæðum vera
mun sterkari á höfuðborgarsvæð-
inu en á landsbyggðinni þar sem
auðlindirnar eru fyrst og fremst
nýttar. Þetta undirbyggir nýlendu-
stefnuna gagnvart landsbyggðinni.
Ég tel að nýlendustefnuna
gagnvart landsbyggðinni þurfi að
berja til baka. Það verður áhuga-
vert að fylgjast með því á næstu
vikum hvernig stjórnmálaflokk-
arnir munu taka á nýlendustefn-
unni. Munu þeir taka hana upp á
sína arma? Eða munu þeir hafna
henni?
Tími byggðaáætlana og sókn-
aráætlana þar sem varpað er ein-
hverjum milljónatugum sem dús-
um fyrir landsbyggðafólk er liðinn.
Nú þarf að byrja að telja í millj-
örðum og milljarðatugum sem eru
lágar upphæðir þegar nýlenduarð-
ur íbúðareigenda á höfuðborgar-
svæðinu er hafður í huga.
Vilhjálmur Egilsson.
Höf. er rektor Háskólans á Bifröst.
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
Hilmir B ehf
Löggiltur pípulagningameistari
Alhliða pípulagningaþjónusta
hilmirb@simnet.is
facebook.com/hilmirbehf
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
Nýlenduarðurinn
Pennagrein Pennagrein
Pennagrein
Mig langar að tala um kynlíf. Ég held
að flestir hljóti að vera sammála því
að kynlíf er afskaplega mikilvægt fyrir
vöxt og viðhald hvers samfélags. Fæst
okkar væru til nema vegna þess að
foreldrar okkar lögðu á sig að stunda
kynlíf, sem getur vissulega verið tölu-
vert líkamlegt erfiði. Kynlíf er því
grunnurinn að tilveru flestra. Miðað
við mikilvægi þessa málaflokks, þ.e.
kynlífs, er magnað hversu lítið vægi
það hefur í umræðunni og í skólakerf-
inu. Kynfræðslu er illa sinnt í skóla
sem er magnað miðað við hversu
margir hafa bara þó nokkurn áhuga
á kynlífi.
Það er reyndar margt fleira sem
snýr að lífi og tilveru fólks sem er varla
nefnt í skólakerfinu. Meðal annars
það sem gjarnan kemur á eftir kynlífi,
þ.e. barnauppeldi! Það ætti ekki að
þurfa að fjölyrða um mikilvægi kyn-
fræðslu. Góð kynfræðsla getur kom-
ið í veg fyrir ótímabærar þunganir.
Hún getur líka stuðlað að heilbrigð-
ari samskiptum kynjanna, já og fólks
af sama kyni ekki síður, og getur jafn-
vel komið í veg fyrir kynferðisbrot.
Síðast en ekki síst þá er það með þetta
áhugamál, eins og svo mörg önnur, að
þekking og færni eykur ánægjuna!
Stjórnvöld hafa því miður lítinn
áhuga á kynlífi og ef eitthvað er þá
virðist þeim vera í nöp við það. Alla
vega hafa stjórnvöld ákveðið refsa
þeim sem stunda kynlíf með þeim ár-
angri að þeir ná að fjölga mannkyn-
inu, fjölga skattgreiðendum. Refs-
ingin er fæðingarorlof. Það er ekki
hægt að hugsa sér meira ábyrgðar-
hlutverk en foreldrahlutverkið. For-
eldrum er ekki umbunað fyrir þessa
ábyrgð. Stjórnendur fjármálastofn-
ana fá hins vegar góða bónusa fyr-
ir meinta ábyrgð. Fæðingarolofið er
refsing vegna þess hversu stutt það
er. Refsingin felst
í óbrúuðu bili milli
fæðingarorlofs og
dagvistunar á leik-
skólum. Það er
hins vegar mjög mismunandi hversu
breytt það bil er. Ýmist eru börn að
komast að á leikskóla þegar þau eru
aðeins ársgömul eða ekki fyrr en þau
eru komin á Facebook! (eða svona því
sem næst).
Á leikskólum er unnið frábært starf
og það fagfólk sem þar starfar gegn-
ir mikilvægu hlutverki í uppeldi hvers
barns. Ég vil að börn njóti jafnræð-
is hvar sem þau eru á landinu. Fæð-
ingarorlofið á að vera tólf mánuðir og
síðan á leikskólinn að taka við. Það er
kynlíf með farsælan endi!
Rúnar Gíslason.
Höfundur gefur kost á sér í 1.-3. sæti
á lista VG í Norðvesturkjördæmi.
Kynlíf og næstu skref
Það olli mér smá pirringi um daginn,
að alltaf þegar ég opnaði facebook var
Guðlaugur Þór þar með keypta aug-
lýsingu um sjálfan sig. Prófkjör sjálf-
stæðismanna var í gangi. Þar lýsti
hann því að sjálfstæðisstefnan væri
„svona minni reglur og eftirlit og
meira frelsi.“
Það er rétt að sjálfstæðismenn vilja
minni reglur og eftirlit, en þýðir það
endilega meira frelsi? Ef við tökum
dæmi úr fótboltanum: Segjum að það
sé haldið Íslandmót í knattspyrnu, og
það sé ákveðið allt í einu, ekkert aug-
lýst og spilað yfir eina helgi. Þá er
ekkert verið að hugsa um reglur um
góðan fyrirvara. Margir gætu aug-
ljóslega ekki mætt. Væri þetta „frjáls
samkeppni?“
Sjálfstæðisstefnan í reynd
Ástæðan fyrir því að ég tek þetta
bjánalega dæmi, er að þetta hefur
einmitt gerst í tíð ríkisstjórnarinn-
ar sem Guðlaugur Þór styður. Núna
þegar fasteignaverð er á beinni leið
upp, þótti Flokknum gráupplagt fyr-
ir ríkið að losa sig við hlut sinn í fast-
eignafélaginu Reitum. Landsbank-
inn var fenginn til að selja. Þar er
valinn sjálfstæðismaður í hverju rúmi
eftir að bankinn var seldur innvígðum
flokksmönnum hér um árið. Bank-
inn komst að því að best væri að selja
eignirnar á föstu verði, sem er það
sama og er skráð í Kauphöllinni *), og
selja eigurnar yfir eina helgi. Auglýs-
ing um söluna birtist síðdegis á föstu-
degi og það var búið að selja næsta
mánudag, 22. ágúst. Ekki fékkst upp
gefið hverjir keyptu hlutina.
Hvað finnst ykkur? Eru hugsjónir
um frjálsa samkeppni þarna að baki?
Nei, þarna eru menn einfaldlega að
rífa til sín eigur Ríkisins (okkar allra)
og gera það með leynd. Þetta er hin
raunverulega sjálfstæðisstefna.
Annað dæmi er
kvótakerfið:
Færeyingar bjóða nú upp kvóta. Það
hefur verið reiknað út að ef íslenska
þjóðin fengi jafn mikið á kílóið og
fékkst útúr því uppboði, fengjust 83
milljarðar fyrir kvótann **) Útgerð-
armenn borga nú 4,8 milljarða. Í tíð
vinstristjórnarinnar var gjaldið u.þ.b.
10 milljarðar. Núverandi ríkisstjórn
var fljót að lækka gjaldið. Hagnað-
ur Samherja var 14 milljarðar á síð-
asta ári. Það er gott þegar fólki geng-
ur vel, en þau fyrirtæki sem eru raun-
verulega í frjálsri samkeppni geta
ekki sýnt svona mikinn hagnað. Ég
þekki þetta, hef
fylgst með sam-
keppninni á fjar-
skiptamarkaðnum
lengi. Ástæðan fyr-
ir hagnaðinum er að Samherja er þeir
eru búnir að „taka völlinn“, og eng-
inn rekur þá útaf til að leyfa hinum að
spila líka. Þetta er hin raunverulega
sjálfstæðisstefna.
Til að þjóðin fái góða þingmenn
þurfa kjósendur fyrst og fremst að
hugsa um hverjir eru að vinna fyrir
þá. Löglærðir menn og konur eiga
ekki í vandræðum með að segja hlut-
ina þannig að þeir hljómi vel ***). En
ef þeir vinna fyrir hagsmunaaðila en
ekki þjóðina, gera þeir minna en ekk-
ert gagn fyrir okkur á Alþingi.
Kveðja,
Reynir Eyvindsson, Akranesi.
*) Þetta verð á Reitum (61 millj-
arður) er af einhverjum ástæðum
helmingi lægra en skráð gengi allra
eigna Reita sem er 127 milljarðar.
**) http://www.frettatiminn.is/all-
ir-nema-stjornarflokkarnir-vilja-
uppbod/
***) Niðurstaða prófkjörsins var að
7 af 8 efstu frambjóðendum Flokksins
í Reykjavík eru lögfræðingar.
Minni reglur og meira frelsi