Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 6

Skessuhorn - 14.09.2016, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 20166 Punktar fuku og sektir greiddar VESTURLAND: Lögreglu- menn á Vesturlandi tóku 27 ökumenn fyrir of hraðan akst- ur í umdæmi sínu í vikunni sem leið. Sá sem hraðast ók var tekinn á 142 km hraða og er sektarupphæðin 90 þúsund krónur auk fjögurra punkta í ökuferilsskrá. Sá sem ók hrað- ast þar sem 50 km/klst hraði er leyfður, var tekinn á 81 km hraða. Í hans tilfelli er sekt- arupphæðin 25 þúsund krón- ur auk þriggja punkta í öku- ferilsskrá. Hraðamyndavél- in við Fiskilæk sunnan Hafn- arfjalls tók samtals 216 öku- menn fyrir of hraðan akstur í vikunni. Sláturleyfishafar þurfa að gæta hagsmuna dreifbýlis BORGARBYGGÐ: Ýms- ir hafa mótmælt lækkun af- urðaverðs til sauðfjárbænda, en það lá fyrir í upphafi þessa mánaðar. Meðal annars bændur sjálfir, stjórn Búnað- arsamtaka Vesturlands og á síðasta fundi umhverfis-, skipulags- og landbúnaðar- nefndar Borgarbyggðar var harðlega mótmælt. Samþykkt var bókun þar sem mótmælt er harðlega þeirri lækkun sem boðuð hefur verið á af- urðaverði til sauðfjárbænda vegna haustslátrunar 2016. „Hvetur nefndin sláturleyf- ishafa til að hækka framkom- in verð til þess að mæta kröf- um sauðfjárbænda um hærra afurðaverð. Nefndin hvetur enn fremur sláturleyfishafa til þess að standa þétt sam- an um hagsmuni dreifbýlisins og þeirra byggða sem byggja á landbúnaði. Sú starfsemi er mikilvæg fyrir Borgarbyggð og landið í heild,“ segir í bók- un nefndarinnar. -mm Samið um potta og laug AKRANES: Á fundi skipulags- og umhverf- isráðs Akraneskaupstað- ar í síðustu viku var far- ið yfir tilboð í endurnýj- un potta á Jaðarsbökkum og byggingu heitrar laug- ar á Langasandi. Eftir að verðkönnun hafði verið gerð var niðurstaða nefnd- arinnar að ganga til samn- inga við Pípulagningaþjón- ustuna um lagnir að pott- um á Jaðarsbökkum og að laug á Langasandi. Sá verk- hluti kostar 24,9 milljón- ir króna. Þá verður samið við GS Import ehf. í verk- ið utan lagnaþáttarins og er kostnaður við það 89,3 milljónir króna. -mm Endurtekið forval VG hafið NV-KJÖRD: Endurtek- ið forval Vinstri hreyfing- arinnar græns framboðs í Norvesturkjördæmi stend- ur nú yfir. Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns ákvað kjörstjórn í NV kjör- dæmi að endurtaka kosn- inguna þar sem skort hafði upp á upplýsingagjöf og leiðbeiningar í fyrri til- rauninni. Nýir kjörseðlar með öðrum lit voru póst- lagðir síðastliðinn föstudag til 1.102 félagsmanna og er gert ráð fyrir að kosningin standi yfir frá 12. -20 sept- ember. Atkvæði verða tal- in sunnudaginn 25. sept- ember. Halli á rekstri dvalar- heimilisins STYKKISH: Stjórn Dval- arheimilis Stykkishólms fundaði 6. september síð- astliðinn. Þar var til um- ræðu rekstur dvalarheim- ilisins, mönnun og önn- ur mál. Í fundargerð kem- ur fram að halli er á rekstri dvalarheimilisins upp á 8,9 milljónir króna en einn- ig er gert grein fyrir því að reksturinn horfi í rétta átt. Fullmannað er í allar stöður á dvalarheimilinu; 3,3 stöðugildi sjúkraliða og 8,2 stöðugildi starfs- fólks í aðhlynningu. Auk þess hefur iðjuþjálfi ver- ið ráðinn til reynslu í þrjá mánuði í hálfu stöðugildi. Hóf hann störf 1. septem- ber. Mánudaginn 3. októ- ber næstkomandi er síðan áætlað að hefja störf í eld- húsi sjúkrahússins en rekst- ur þess verður á vegum dvalarheimilisins. Þar á að elda mat fyrir sjúkrahúsið, dvalarheimilið, grunnskól- ann og eldri borgara sem hafa keypt mat frá dvalar- heimilinu. Verður matnum ekið frá sjúkrahúsinu. Ein umsókn hefur borist vegna starfs í eldhúsi sjúkrahúss- ins og þá vantar að manna 0,8 stöðugildi. -kgk Félög sauðfjárbænda á Snæfells- nesi, Dalasýslu og í Borgarfirði hafa boðað til opins sameiginlegs fund- ar með sláturleyfishöfum og fram- kvæmdastjóra Landsamtaka sauð- fjárbænda. Fundurinn verður hald- inn að Þinghamri á Varmalandi á morgun, fimmtudaginn 15 sept- ember og hefst klukkan kl 20:30. „Félögin skora á sauðfjárbænd- ur að sýna samstöðu og fjölmenna á fundinn því það er mikilvægt að við látum raddir okkar heyrast,“ segir í tilkyninngu. Tímasetning fundarins kemur e.t.v. á óvart í ljósi þess annatíma sem nú er hjá sauð- fjárbændum, en sláturleyfishafar hafa boðað afurðaverð sem bænd- ur sætta sig ekki við. „Við vitum að þetta er mjög erfið tímasetning fyr- ir bændur sem eru að undirbúa sig fyrir leitir eða lagðir af stað, en því hvetjum við þá sem eftir eru heima og alla þá sem mögulega geta kom- ið, að fjölmenna á fundinn,“ seg- ir stjórnarfólk í félögum sauðfjár- bænda á Vesturlandi. mm Sauðfjárbændur á Vesturlandi boða til fundar Foreldrafélag leikskólans Kríu- bóls á Hellissandi gaf leikskólanum nýjan kastala í sumar. Starfsmenn bæjarins komu honum fyrir á leik- skólalóðinni í sumar og var hann kominn í notkun áður en leikskól- inn opnaði að nýju eftir sumarfrí. Undanfarna daga hafa starfsmenn Áhaldahúss Snæfellsbæjar verið að setja gúmmíhellur umhverfis kast- alann og ganga frá lóðinni. Á með- fylgjandi mynd er Anton Ingólfs- son, starfsmaður Áhaldahússins, við kastalann. grþ / Ljósm. Snæfellsbær. Foreldrafélagið gaf nýjan kastala „Ég er ekkert að grínast með að stefna á eitt af efstu sætunum,“ skrifar Rúnar Gíslason í Borgarnesi og frambjóðandi í forvali Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs í Norðvesturkjördæmi. Forvalið stendur nú yfir en því lýkur 20. sept- ember nk. Rúnar birti á Facebook síðu sinni athyglisvert myndband sem sýnir hann sjálfan rogast með gamlan og þungan skrifborðsstól alla leið á hæsta tind Hafnarfjalls. Hann stefnir á efsta sætið og sýn- ir það þarna ótvírætt. „Ungt fólk til áhrifa - pólitíkin græðir á fjölbreyti- leikanum,“ segir Rúnar. „Ég er til- búinn til þess að leggja ansi mikið á mig til þess að berjast fyrir mínum málefnum. Forval VG í Norðvest- urkjördæmi stendur yfir. Þitt er val- ið,“ skrifar hann. mm Stefnir á eitt af efstu sætunum Skjáskot úr myndbandi Rúnars. Það má sjá í heild sinni á Facebook.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.