Skessuhorn


Skessuhorn - 14.09.2016, Qupperneq 28

Skessuhorn - 14.09.2016, Qupperneq 28
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 201628 Vörur og þjónusta Hönnun prentgripa & alhliða prentþjónusta Drei bréf - Boðsbréf Ritgerðir - Skýrslur Reikningar - Eyðublöð Umslög - Bréfsefni Fjölritunar- og útgáfuþjónustan Getum við aðstoðað þig? sími: 437 2360 olgeirhelgi@islandia.is R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 R E S T A U R A N T Upplýsingar í síma: 430 6767 LAUSNIN HÖFÐASELI Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00 alla virka daga Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30 Sími 437-2030 - v.v@simnet.is DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK www.skessuhorn.is Þjónustuauglýsingar Skessuhorns Auglýsingasími: 433 5500 Í Kvennablaðinu þann 6. septem- ber s.l. birtist grein Andrésar Helga Valgarðssonar „Um prófkjör Pírata í Norðvesturkjördæmi“. Sem fyrr- um meðlimur kjördæmisráðs Pírata í Norðvestur finn ég mig knúna til að leiðrétta ýmsar villur sem fram komu í þessari grein og bæta við örlitlum fróðleik. Undirrituð var skipuð í kjördæm- isráð Norðvestur eftir mikinn vand- ræðagang, þar sem fyrrum meðlim- ir ráðsins voru nánast allir komnir sjálfir í prófkjör. Þegar þar var komið sögu var lögsaga prófkjörsins komin til framkvæmdaráðs Pírata sem hafði tekið prófkjörsreglur og breytt lok- uðu prófkjöri í opið. Það vakti undr- un að undir þær nýju prófkjörsreglur skrifar framkvæmdaráð með Halldóru Sigrúnu Ásgeirsdóttur innanborðs sem þá þegar hafði tilkynnt að hún hyggði á framboð í þessu sama kjör- dæmi. Nú tók við vinna hjá nýju kjör- dæmisráði að snúa þessu við en aðild- arfélögin, Píratar á Vesturlandi og Pí- ratar á Vestfjörðum, náðu ekki sam- an, enda hagsmunir ólíkir. Píratar á Vesturlandi vildu takmarka kosninga- rétt við félagsmenn með kjörgengi í kjördæminu á meðan Vestfirðir vildu opið prófkjör fyrir alla félagsmenn á landsvísu. Meðlimir kjördæmisráðs- ins voru þrír, einn frá hvoru aðildar- félagi og svo oddamaður, kosninga- stjóri flokksins, sem kom með þá yfir- lýsingu strax í upphafi að hann myndi ekki skerast í leikinn og taka af skar- ið, menn yrðu að leita lausna. Þegar enginn gaf eftir og allt stóð fast, stutt í kosningar og pressa komin á mann- skapinn var þrautalendingin sú að hafa lokað prófkjör en opna staðfest- ingarkosningu, þar sem listinn yrði staðfestur eða felldur af skráðum Pí- rötum á landsvísu. Þegar niðurstaða kosningarinn- ar varð ljós fór að bera á óánægju þeirra Vestfirðinga enda þeirra mað- ur frekar svekktur með sinn hlut og vildi ofar. Kæra vegna smölunar fór í gang og símhringingar fóru að ber- ast. Aðilinn í þriðja sæti sem og að- ilinn í fjórða sæti fengu símhringing- ar frá kosningastjóra og meðlimum framkvæmdaráðs þess efnis að Gunn- ar Ingiberg gerði kröfu á að komast ofar á lista og menn voru beðnir um að færa sig til í hans þágu. Rökin sem notuð voru snérust um að koma Vest- fjörðum ofar á blað. Gunnar Ingi- berg er hins vegar ekki Vestfirðing- ur, hann er ættaður úr Stykkishólmi og býr í Kópavogi. Lögheimilið flutti hann reyndar á Ísafjörð „korteri“ fyrir prófkjör en þar er hann til sjós. Haf- steinn Sverrisson, sem fékk kosningu í þriðja sætið eftir endurútreikninga, er hins vegar borinn og barnfæddur Ísfirðingur og bjó þar í tæp fjörtíu ár en það þótti ekki þess virði að skoða þá tengingu nánar. Símhringingar, tölvupóstar og fundir þess efnis um að fólk myndi færa sig neðar á lista til að koma Gunnari Ingiberg ofar báru ekki ár- angur. Þingmaður flokksins, Birg- itta Jónsdóttir, fór hamförum á leyni- legri síðu flokksins þar sem hún sagð- ist þekkja mann og annan í heimabæ Þórðar Péturssonar, efsta manns á lista, sem gættu sagt sér hitt og þetta um manninn.. Framkvæmdaráð flokksins sat á kærunni í nokkra daga þar sem hún gleymdist í tölvupósthólfi ráðsins en Vestfirðir tóku að fjölmenna af list- anum. Kópavogsbúinn, Gunnar Ingi- berg, hélt sig til hlés og símhringing- ar gerðust tíðari. Þegar staðfesting- arkosning hófst, fór að bera á áróðri framámanna í flokknum þess efnis að mönnum bæri að hafna þessum lista. Fór þar fremst í flokki andlit flokks- ins, Birgitta Jónsdóttir og kosninga- stjóri flokksins Jóhann Kristjánsson. Undirrituð átti einmitt samtal við þann síðarnefnda sem fór hamförum í að útlista nákvæmlega hversu mik- ilvægt það væri að Gunnar Ingiberg kæmist ofar á listann., „til að ná sátt- um meðal frambjóðenda“. Áróðurinn var gengdarlaus á fa- cebooksíðum flokksins, bæði opin- berum og óopinberum. Símtöl héldu áfram að berast um allt land. Fólk var beðið um að fella listann og ýmiskonar rökum slengt fram, efstu menn væru ekki þekktir inn- an grasrótarinnar í Reykjavík, það væri ekki nógu margar konur á list- anum og það þyrfti að rétta við hlut Vestfirðinga. En fyrst og fremst var sú ástæða nefnd að smölun væri ekki liðin innan flokksins. Allavega ekki úr þeirri átt sem talin var hafa verið í baráttu efsta manns á listanum. Að lokum fór það svo eftir úrskurð úrskurðarnefndar að listinn var felld- ur. Þess má geta að samkvæmt lögum Pírata þá er úrskurðarnefnd til þess eins að fjalla um mál þar sem brotið er á lögum Pírata á landsvísu. Kær- an snérist ekki um landslög flokks- ins og með ólíkindum að þar réði mestu, ef rýnt er í textann, álit for- ritara flokksins sem áður hafði kom- ið sinni skoðun á þessari kosningu á framfæri. Ólafur B. Davíðsson, töl- fræðingur, sem einnig var fenginn til að meta gögnin komst að annarri niðurstöðu en forritarinn en það var látið liggja á milli hluta. Listinn var felld- ur með með tæp- lega 55% atkvæða. Hefði listinn ver- ið samþykktur með slíkum meiri- hluta hefði sú kosning án efa ekki þótt sannfærandi sigur. Já sögðu 119 en nei sögðu 153. Þarna munaði 34 at- kvæðum. Við tók undirbúningur fyrir seinni lotu kosninga og nú á landsvísu og símtölin héldu áfram að berast, ekki bara frá Birgittu Jónsdóttur held- ur einnig fleirum. Nú skyldi koma Gunnari Ingiberg upp um sæti og hafa í hávegum dreifingu á listanum Vestfjörðum til handa. Gunnar Ingi- berg hlaut 2. sætið í seinni kosning- unni. Og í raun toppsætið þar sem Eva Pandóra, sigurvegari kosningar- innar, dvelur á fæðingadeildinni á Ak- ureyri þegar þetta er skrifað og verð- ur eðlilega fjarri kosningabaráttunni. Þeir sömu og lýstu yfir óánægju sinni með einsleitan lista voru nú hæstánægðir þó fjöldi kvenna væri sá hinn sami og áður. Þeir sem kvört- uðu sáran yfir að vinnumenn grasrót- arinnar hefðu ekki náð árangri voru líka hæstánægðir þó svo að Eva Pan- dóra hefði ekki komið nálægt grasrót- arstarfi flokksins. Og þeir sem kvört- uðu yfir smölun voru alsælir með að þeirra eigin smölun bar tilætlaðan ár- angur og þeirra maður sigurvegari. Nákvæmlega svona er prófkjörs- baráttan í norðvestrinu búin að vera hjá Pírötum og ekki öðruvísi. Bara svona til að taka af allan vafa, þá eru víst líka til flokkseigendur Pí- rata eins og hjá öllum hinum stjórn- málaflokkunum, það vitum við núna sem höfum komið að þessu próf- kjöri í kjördæminu okkar. Þegar upp er staðið er sami rassinn undir þessu öllu saman. Ég óska hér með Evu Pandóru innilega til hamingju með árangur- inn. Þó hún hafi ekki verið virk í gras- rót Pírata í Reykjavík þá er hún vel að þessum sigri komin. Því Píratar eru nefnilega stærri en bara Reykjavík og Birgitta Jónsdóttir. Gunnari Ingi- berg óska ég líka til hamingju með að hafa náð að olnboga sig upp listann. Hann verður vonandi kyndilberi nýrra vinnubragða í stjórnmálum, þar sem lýðræði og gagnsæi verða í fyrir- rúmi… eða hvað? Lilja Magnúsdóttir Höfundur er fyrrum meðlimur kjör- dæmisráðs Pírata í Norðvesturkjördæmi og fyrrum varamaður í stjórn Pírata á Vesturlandi. Pennagrein Aðeins meira um prófkjör Pírata í NV kjördæmi Í haust fer rannsóknarhópur und- ir forystu Sigurðar Yngva Kristins- sonar, prófessors í blóðsjúkdómum, af stað með stóra vísindarannsókn á landsvísu þar sem fyrirhugað er að skima fyrir forstigi mergæxlis hjá öllum sem fæddir eru 1975 og fyrr. Valið var eitt sveitarfélag á landinu til að prufukeyra verkefnið og varð Akranes fyrir valinu. Að sögn Sig- urðar Yngva verkefnisstjóra er hér um mikilvæga vísindarannsókn að ræða. „Það er óhætt að segja að rannsóknin sé einstök á heimsvísu en ætlunin að bjóða öllum Íslend- ingum 40 ára og eldri að taka þátt í henni. Að rannsókninni standa m.a. Háskóli Íslands, Krabbameinsfélag Íslands og Landspítali Háskóla- sjúkrahús, en verndari verkefnis- ins er frú Vigdís Finnbogadóttir. Rannsóknin ber heitið Blóðskimun til bjargar/Þjóðarátak gegn mer- gæxlum. Tilgangur hennar er að rannsaka ávinning af því að skima fyrir forstigi mergæxlis (multiple myeloma),“ segir Sigurður Yngvi í samtali við Skessuhorn. „Í nóvember munum við senda út kynningarpakka á alla lands- menn sem fæddir eru 1975 eða fyrr, sem inniheldur kynningar- bækling, samþykkisyfirlýsingu og sérstakt lykilorð og bjóðum fólki að veita upplýst samþykki ann- að hvort rafrænt á vefsíðu rann- sóknarinnar eða með því að senda undirritaða samþykkisyfirlýsingu gjaldfrjálst til okkar. Næst þeg- ar viðkomandi fer, einhverra hluta vegna, í blóðprufu fáum við hluta af blóðsýninu til skimunar. Grund- völlur fyrir því að rannsóknin verði marktæk og verkefnið heppnist er að við fáum næga þátttöku,“ segir Sigurður Yngvi. Verkefnið prufukeyrt á Akranesi „Við erum því að vanda okkur mik- ið við framsetningu og framkvæmd þessa verkefnis og í því ljósi ætl- um við að prufukeyra ferlið okkar í einu bæjarfélagi og varð Akranes fyrir valinu. Þar sem að fjölmiðla- átak og kynning á landsvísu bíður formlegrar byrjunar rannsóknar- innar (í nóvember) þá ætlum við að reyna að skapa umræðu á Akranesi með því að halda fyrirlestra á stærri vinnustöðum; t.d. sjúkrahúsinu og víðar. Því förum við þá leið að for- kynna verkefnið í Skessuhorni, því það er mikilvægt fyrir framgang verkefnisins á landsvísu að þessi forkönnun meðal íbúa á Akranesi gangi vel,“ segir Sigurður Yngvi. Stefnt er að því að sendur verði út kynningarbæklingur og þátttöku- upplýsingar á alla fædda 1975 eða fyrr sem búsettir eru á Akranesi, í byrjun næstu viku, dagana 20.-23. september. „Við vonumst til að sem flestir kynni sér innihald fjólubláa umslagsins og skrái þátttöku sína á heimasíðunni www.blóðskimun.is svo við getum byggt á niðurstöð- um rannsóknarinnar“ mm Ein viðamesta rannsókn sem ráðist hefur verið í á Íslandi Öflugur hópur heilbrigðisstarfsfólks kemur að rannsókninni.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.