Skessuhorn - 21.09.2016, Qupperneq 8
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 20168
Skora á Sigurð Inga
BORGARFJ: Á félagsfundi í
Framsóknarfélagi Borgarfjarð-
ar og Mýra sem haldinn var síð-
astliðinn miðvikudag var sam-
þykkt ályktun til stuðnings Sigurði
Inga Jóhannssyni. „Félagsfundur
Framsóknarfélags Borgarfjarð-
ar og Mýra, haldinn 14. septem-
ber í Borgarnesi, skorar á Sigurð
Inga Jóhannsson forsætisráðherra
að gefa kost á sér til formennsku
í Framsóknarflokknum á kom-
andi flokksþingi.“ Eins og kunn-
ugt er verður flokksþing Fram-
sóknarmanna haldið 1. og 2. októ-
ber næstkomandi í Reykjavík. Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson gef-
ur kost á sér til áframhaldandi for-
mennsku sem og Sveinbjörn Eyj-
ólfsson á Hvanneyri, sem jafnframt
er félagsmaður í Framsóknarfélagi
Borgarfjarðar og Mýra. Hann hef-
ur jafnframt gefið það út að hann
dragi framboð sitt til baka ef Sig-
urður Ingi lýsir yfir mótframboði
gegn sitjandi formanni. -mm
119 þúsund tonn
veidd í ágúst
MIÐIN: Fiskafli íslenska flotans
var rúmlega 119 þúsund tonn í
ágústmánuði síðastliðnum skv. töl-
um á vef Hagstofunnar. Er það fjór-
um prósentum meiri afli en í sama
mánuði í fyrra. Botnfiskaflinn var
rúm 33 þúsund tonn, sem er 28%
aukning frá ágúst 2015 og þorsk-
aflinn var 17 þúsund tonn, jókst
um 41% miðað við sama mánuð
í fyrra. Flatfiskafli jókst um 25%
og skel- og krabbadýraaflinn um
18% miðað við ágúst 2015. Sam-
dráttur varð í uppsjávarafla upp á
fjögur prósentustig. Á tólf mánaða
tímabili hefur heildarafli íslenskra
skipa dregist saman um 294 þús-
und tonn á milli ára, sem er 22%
aflasamdráttur. Vegur uppsjávar-
afli þar þyngst. Afli í ágúst síðast-
liðnum metinn á föstu verðlagi var
2,6% meiri en í ágúst 2015. -kgk
Sigmundur Davíð
hlaut afgerandi
kosningu
NA-KJÖRD: Kjördæmisþing
Framsóknarflokks í Norðaust-
urkjördæmi fór fram í Mývatns-
sveit síðastliðinn laugardag. Kos-
ið var um efstu sæti á lista flokks-
ins í kjördæminu fyrir komandi al-
þingiskosningar. Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, hlaut afgerandi
kosningu í oddvitasæti listans, með
72% greiddra atkvæða. Í fram-
haldinu lýsti Höskuldur Þórhalls-
son þingmaður því yfir að hann
sæktist ekki eftir sæti á listanum,
en andað hefur köldu milli hans og
Sigmundar um langt skeið. Í öðru
sæti á listanum verður Þórunn Eg-
ilsdóttir og Líneik Anna Sævars-
dóttir í þriðja. Beðið hafði ver-
ið eftir niðurstöðu þessarar kosn-
ingar um hríð því hún kann að
hafa þýðingu fyrir pólitíska fram-
tíð Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar sem formanns Fram-
sóknarflokksins. Flokksþing fer
fram í byrjun næsta mánaðar og
mun verða kosið um æðstu emb-
ætti. Auk Sigmundar Davíðs hef-
ur Sveinbjörn Eyjólfsson á Hvann-
eyri lýst því yfir að hann gefi kost
á sér til formennsku, en jafnframt
lýst yfir stuðningi við Sigurð Inga
Jóhannsson forsætisráðherra gefi
hann kost á sér í embættið. Sigurð-
ur Ingi hefur hins vegar ekki lýst
yfir framboði til formanns en gef-
ið í skyn að hann sækist ekki eft-
ir varaformennsku með óbreyttri
forystu. -mm
Engin hálendisvakt
eftir 1. september
HÁLENDIÐ: Nú þegar far-
ið er að hausta má búast við
að færð á hálendinu geti spillst
með stuttum fyrirvara. „Þar
sem ekki er þjónusta á þess-
um leiðum eftir 1 september
og flestir landverðir farnir af
svæðinu eru þeir sem ætla að
ferðast um hálendið beðnir að
fylgjast mjög vel með veðri og
veðurspám,“ segir í tilkynn-
ingu frá Vegagerðinni.
-mm
VG liðar telja á
sunnudagur
NV-KJÖRD: Gert er ráð fyr-
ir að síðdegis næsta sunnu-
dag liggi fyrir úrslit í forvali
Vinstri hreyfingarinnar græns
framboðs í Norðvesturkjör-
dæmi. Fjörir eru í framboði til
efsta sætis, þau Bjarni Jónsson,
Lárus Ástmar Hannesson,
Lilja Rafney Magnúsdóttir og
Rúnar Gíslason.
-mm
Aflatölur fyrir
Vesturland
10. - 16. september
Tölur (í kílóum)
frá Fiskistofu:
Akranes 1 bátur.
Heildarlöndun: 15.062 kg.
Mestur afli: Ebbi AK: 15.062
kg í þremur löndunum.
Arnarstapi 1 bátur.
Heildarlöndun: 2.756 kg.
Mestur afli: Bárður SH: 2.756
kg í einni löndun.
Grundarfjörður 4 bátar.
Heildarlöndun: 189.715 kg.
Mestur afli: Hringur SH:
70.255 kg í einni löndun.
Ólafsvík 13 bátar.
Heildarlöndun: 146.491 kg.
Mestur afli: Ólafur Bjarnason
SH: 32.027 kg í þremur lönd-
unum.
Rif 9 bátar.
Heildarlöndun: 192.363 kg.
Mestur afli: Örvar SH: 50.756
kg í einni löndun.
Stykkishólmur 3 bátar.
Heildarlöndun: 34.956 kg.
Mestur afli: Hannes Andrés-
son SH: 18.387 kg í þremur
löndunum.
Topp fimm landanir á tíma-
bilinu:
1. Hringur SH - GRU:
70.255 kg. 14. september.
2. Vörður EA - GRU:
65.133 kg. 10. september.
3. Örvar SH - RIF:
50.756 kg. 12. september.
4. Helgi SH - GRU:
46.377 kg. 11. september.
5. Saxhamar SH - RIF:
24.956 kg. 14. september.
grþ
Um Gallerí Lunda í Stykkishólmi
hefur mikill straumur ferðamenna
runnið í sumar. Þar eru seld verk
eftir rúmlega 20 Hólmara en utan
um Galleríið halda tólf konur sem
skiptast á um að standa vaktina,
kynna verkin og selja. Ein þessa
kvenna er Ragna Scheving. Hún
segir sumarið hafa verið annasamt
og salan góð en þó hópurinn finni
fyrir mikilli aukningu ferðamanna
hefur salan ekki aukist í samræmi
við það. Til skýringa á því nefnir
Ragna gengi krónunar. „Fólk fékk
meira fyrir peninginn í fyrra. Við
sjáum ferðamenn stanslaust með
símann á lofti að reikna verðið. Það
sáum við ekki í fyrra.“ Ragna seg-
ir ferðamönnum þykja einstakt að
allar vörurnar séu unnar af heima-
mönnum. „Fólk er orðið svolít-
ið brennimerkt af þessu „Made in
China“. En þeir trúa okkur frek-
ar ef við erum að prjóna hérna. Þá
erum við svona trúverðugri,“ segir
Ragna og hlær.
Lopapeysan vinsælust
Í Gallerí Lunda er ýmislegt að sjá
en aðspurð um hvað er vinsæl-
ast þarf Ragna engan umhugsun-
arfrest. „Lopapeysurnar eru alveg
svakalega vinsælar. Mjög vinsælar
núna í sumar.“ Með hverri lopa-
peysu fylgir bæklingur sem hópur-
inn lét útbúa og hefur vakið mikla
lukku. Í honum er að finna þvotta-
leiðbeiningar fyrir lopapeysur á
nokkrum tungumálum. Ragna seg-
ir mikið af fólki koma til þeirra í leit
að lopapeysum og oft til að kaupa
peysur á ættinga sem ekki komu
með til landsins. „Þá taka þau bara
myndir af peysunum, senda út og
bíða eftir svari“.
Vantar húsnæði
Eftir annasamt sumar segir Ragna
aðsóknina nú vera að róast. Þrátt
fyrir það vildi hún gjarnan hafa
Galleríið opið allt árið um kring en
vantar til þess húsnæði. Galleríið er
nú í Lionshúsinu í Stykkishólmi en
þar getur það ekki verið nema yfir
sumarið. Það opnaði í byrjum maí
og lokar 27. september. Ragna sér
fyrir sér að heilsársopnun myndi efla
starfið og telur góðan grundvöll fyr-
ir því. Hér eru ferðmenn yfir vetur-
inn líka og veðrátta sem hentar vel
til lopapeysukaupa. jse
Annasamt sumar í Gallerí Lunda
Ragna Scheving í Gallerí Lunda.
Svipmyndir úr galleríinu.
Ástríður Helga Magnúsdóttir á
Skagaströnd fékk í síðustu viku af-
hentan glæsilegan iPhone 6S Plus
síma fyrir bestu myndina í mynda-
keppni UMFÍ sem fram fór á Ung-
lingalandsmótinu í Borgarnesi um
verslunarmannahelgina. Ástríður
tók myndina á á síðasta degi móts-
ins og sýnir hún tvær vinkonur
horfa saman á flugeldasýninguna að
lokinni síðustu
kvöldvökunni á
Unglingalands-
mótinu. Mynd-
in endurspegl-
aði þá vináttu
sem einkenndi
mótið, að mati
dómnefndar.
Aðrir vinn-
ingshafar voru
þeir Snæþór
Bjarki sem tók
s k e m m t i l e g t
myndband í
S k a l l a g r í m s -
garði í Borgar-
nesi en mynd-
brellur sem
hann notaði
þóttu takast afar
vel. Í verðlaun
hlaut Snæþór
iPad Mini. Allir
sem tóku þátt í
myndakeppn-
inni og deildu
mynd eða myndbandi merktu
#ULM2016 fóru í pott og gátu
unnið Libratone Too hátalara frá
Epli. Mynd sem Jóhannes Oddsson
tók og var merkt #ULM2016 var
dregin úr pottinum. Allar myndirn-
ar í myndaleiknum má sjá á Instag-
ram-síðu UMFÍ undir myllumerk-
inu #ULM2016.
„UMFÍ þakkar öllum sem þátt
tóku í myndaleiknum og Unglinga-
landsmóti UMFÍ í Borgarnesi um
verslunarmannahelgina 2016.“
mm
Áttu bestu myndirnar á Unglingalandsmóti UMFÍ
Ástríður Helga tók við verðlaunum
sínum frá Ómari Braga Stefánssyni,
landsfulltrúa UMFÍ og framkvæmda-
stjóra landsmóta UMFÍ.
Vinningsmynd Ástríðar Helgu þótti sýna þá vináttu sem ein-
kenndi mótið.