Skessuhorn - 21.09.2016, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 201612
Stofnuð hafa verið „Hagsmuna-
samtök reykhúsa í lagarafurðum“.
Stofnaðilar samtakanna eru Eðal-
fiskur, Egils Sjávarafurðir, Norð-
anfiskur, Opal Sjávarfang og Reyk-
húsið Reykhólar. Megintilgangur
félagsins er að vinna að niðurfell-
ingu tolla á reyktum lagarafurðum
á erlenda markaði. „Mikill ójöfnuð-
ur í samkeppni sambærilegra fram-
leiðenda á EES svæðinu kallar á
stofnun slíkra samtaka hér á Íslandi
en nú er 13% tollur á reyktan lax
sem fluttur er inn til ESB ríkja frá
Íslandi. Hins vegar er enginn tollur
frá ESB til Íslands. Hrópandi ósam-
ræmi í þessum málum er ástæða að
stofnun samtakanna,“ segir í til-
kynningu frá samtökunum.
Allt frá 2007 hafa framleiðendur
reynt að fá þessum málum hreyft
en lítið sem ekkert hefur áunnist í
þessu máli við endurnýjun samn-
inga við Evrópubandalagið. „Við
fylkjum liði, og ætlum að fá þessu
breytt,“ segir Kristján Rafn Sig-
urðsson nýkjörinn formaður. „Mik-
ill vöxtur á næstu árum kallar á að-
gerðir í þessum málum strax. Um
er að ræða háar upphæðir í virðis-
auka fyrir þjóðarbúið þegar hráefn-
ið er fullunnið hér á landi við bestu
skilyrði,“ segir Kristján Rafn.
mm
Stofnuðu Hagsmunasamtök
reykhúsa í lagarafurðum
Á myndinni eru frá hægri: Oddur Vilmundarson (Reykhúsið Reykhólar), Pétur
Þorleifsson (Norðanfiskur), Kristján Rafn Sigurðsson (Eðalfiskur), Gústaf Daní-
elsson (Egils Sjávarafurðir) og Birgir Jóhannsson (Opal Sjávarfang).
Smábátasjómenn á Snæfellsnesi
héldu aðalfund Snæfells í Grund-
arfirði sunnudaginn 11. sept-
ember. Þar átti sér stað umræða
um veiðigjöld, uppboð á veiði-
heimildum og fleira. „Fundurinn
mótmælti harðlega öllum tillög-
um um uppboðsleið aflaheimilda
enda stefna þær útgerð um land
allt í uppnám og óvissu,“ segir í
frétt frá fundinum. „Í umræðu um
veiðigjöld var samþykkt áskorun
til stjórnvalda að lækka þau hjá
útgerðum sem ekki hafa vinnslu á
bakvið sig. Á þann hátt mætti jafna
aðstöðumun sem er á milli stærri
útgerða og þeirra smærri.“ Þá var
fjallað um nærumhverfi smábáta-
eigenda í Snæfelli. „Höfðu menn
áhyggjur vegna áforma um stór-
fellda vinnslu þara og þangs við
Breiðafjörð. Fundurinn sam-
þykkti að beina því til stjórnvalda
að auka rannsóknir um lífríki
Breiðafjarðar og að fyrirhugað-
ar framkvæmdir verði háðar um-
hverfismati.“
Á fundinum var einnig rætt um
byggðakvóta og var hann gagn-
rýndur. „Fram kom að dæmi væru
um að honum [byggðakvóta] væri
úthlutað til byggðarlaga þar sem
ekki væri unninn afli. Þær afla-
heimildir væru betur komnar til
strandveiða. Áhersla var lögð á að
byggðakvóti væri eingöngu nýttur
af dagróðrabátum.“
Í umræðu um makríl komu fram
áhyggjur vegna verðlækkunar og
erfiðleika á mörkuðum. Samþykkt
var að kvika ekki frá kröfu Lands-
sambands smábátasjómanna um
16% hlut smábáta í heimildum til
makrílveiða.
Megn óánægja var með breyt-
ingar sem gerðar voru á fyrir-
komulagi um greiðslu veiðigjalds.
Samþykkt var að óska eftir það
yrði fært í fyrra horf, þ.e. að hand-
hafar veiðiréttar væru greiðendur,
en ekki þeir sem veiða. Breyting-
in var sögð misheppnuð og hefði
leitt til hækkunar á kvótaverði en
ekki lækkunar eins og fyrirhugað
hafði verið.
Stjórn Snæfells skipa: Guðlaug-
ur Gunnarsson formaður, Björg-
vin Lárusson gjaldkeri, Runólfur
Kristjánsson ritari og meðstjór-
nendurnir Ásmundur Guðmunds-
son og Örvar Marteinsson.
mm
Smábátasjómenn í Snæfelli
mótmæla uppboðsleið
Löndun í Grundarfirði. Ljósm. úr safni tfk.
Undirbúningsframkvæmdir í
Djúpafirði vegna lagningar Vest-
fjarðavegar um Gufudalssveit
munu hefjast á fyrri hluta næsta
árs, takist Vegagerðinni að ljúka
umhverfisskýrslu vegna fram-
kvæmdarinnar fyrir áramót eins
og áætlanir gera ráð fyrir. Starfs-
menn Vegagerðarinnar hafa lokið
við endurskoðun frummatsskýrslu,
meðal annars vegna ábendinga
Skipulagsstofnunar, og bíða þess
að fá grænt ljós þaðan til að hægt
verði að kynna skýrsluna og aug-
lýsa eftir athugasemdum.
Umhverfismatið nær til vegar-
ins frá Skálanesi að Bjarkalundi.
Framkvæmdin felur í sér þver-
un Gufufjarðar, Djúpafjarðar og
Þorskafjarðar og vegagerð um
Teigsskóg í Þorskafirði. Sá kafli
hefur lengi verið mjög umdeild-
ur, en Teigsskógur er víðfeðm-
asti landnámsskógur Vestfjarða.
Fengu landeigendur á sínum tíma
hnekkt fyrri áformum um veg um
Teigsskóg og pattstaða var í mál-
inu þar til Vegagerðin fékk heim-
ild til endurupptöku umhverfis-
matsins. Sú vinna stendur enn yfir
og áætlað er að henni ljúki í des-
ember. Fyrr en henni lýkur er ekki
hægt að sækja um framkvæmda-
leyfi til sveitarfélagsins Reykhóla-
hrepps og ganga til samninga við
landeigendur.
Meiningin er að þvera Þorska-
fjörð frá Krossnesi, fara þaðan yfir
og síðan út frá bænum Gröf um
Teigsskóg og yfir á Hallsteinsnes.
Þar kemur þverun og brú á Djúpa-
fjörð yfir í Grónes, þaðan þverun
yfir Gufufjörð yfir að Melanesi við
mynni Gufufjarðar.
Ingvi Árnason, svæðisstjóri
Vegagerðarinnar í Vesturlands-
umdæmi, segir að byrjað verði að
leggja veg fram Djúpafjörð og út
á Hallsteinsnes. „Þar verður reynt
að koma fjarðaþverunum sem
fyrst af stað. Það verður að vinna
allt frá Hallsteinsnesi þar sem
meirihluti grjóts í rofvörn kem-
ur af því svæði, það er að segja af
Hallsteinsnesi,“ segir Ingvi í sam-
tali við Skessuhorn. Takist Vega-
gerðinni að ljúka áðurnefndri um-
hverfisskýrslu gætu þær undir-
búningsframkvæmdir hafist á fyrri
hluta næsta árs, eins og segir í
upphafi.
Hagkvæmasti
valkosturinn
Fjölmargar hugmyndir að út-
færslu á Vestfjarðavegi hafa skot-
ið upp kollinum undanfarinn ára-
tug eða og rúmlega það og vega-
gerð um Teigsskóg hefur alla tíð
verið umdeild. Meðal annars
hafa komið fram hugmyndir um
að þvera við mynni Þorskafjarð-
ar frá Reykjanesi yfir að Skálanesi
og koma þannig þorpinu á Reyk-
hólum í vegasamband og koma
fyrir sjávarfallavirkjun í Þorska-
firði í leiðinni. Þá hafa einnig
komið fram hugmyndir um jarð-
göng, á fleiri en einum stað, með-
al annars göng undir Hjallaháls
til að færa veginn frá Teigsskógi
en leggja í staðinn nýjan veg út
Djúpafjörð austanverðan. Ljóst er
að slíkar hugmyndir hafa endan-
lega verið slegnar út af borðinu nú.
„Þessi leið sem stendur til að fara
var í raun fyrsti valkostur og búin
að vera fyrsti valkostur mjög lengi.
Hún er hagkvæmust, það liggur al-
veg fyrir,“ segir Ingvi. Hann seg-
ir að til skoðunar hafi komið jarð-
gangaleiðir sem og leið um Reyk-
hólasveit út fyrir Reykjanes með
sjávarfallavirkjun. „Slíkt hefði ver-
ið áhugavert en lengdarlega hefði
það verið mun lengri leið. Til að
gera hana ásættanlega í lengd hefði
þurft að þvera Króksfjörð og Beru-
fjörð líka. Slíkt hefði aldrei ver-
ið raunhæfur kostur,“ segir hann.
„Þar að auki er vegastæði í Reyk-
hólasveit mjög gott þó vegurinn sé
orðinn gamall og engin ástæða til
þess að fara annað með veginn,“
bætir hann við. kgk
Undirbúningur vegagerðar í Gufudalssveit gæti hafist á næsta ári
Teigsskógur, umdeildasti kafli leiðarinnar. Ljósm. vegagerdin.is.
Leiðin sem áætlað er að fara er merkt með brúnum strikum. Vegurinn þverar Þorskafjörð frá Krossnesi, fer upp hjá bænum
Gröf og um Teigsskóg og yfir á Hallsteinsnes. Þar kemur þverun og brú á Djúpafjörð yfir í Grónes, þaðan þverun yfir Gufufjörð
yfir að Melanesi við mynni Gufufjarðar. Hugmyndir höfðu verið uppi um að fara þær leiðir sem merkar eru „Leið-A“ á kortinu
en nú hefur verið fallið frá þeim þar sem þær eru ekki taldar raunhæfar. Kort fengið af vb.is.