Skessuhorn - 21.09.2016, Page 19
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2016 19
NORÐURÁLSVÖLLUR
Allir á völlinn
ÍA - Breiðablik
Sunnudaginn 25. september kl. 14:00
Aðalstyrktaraðili leiksins er :
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
6
PEPSI DEILD KARLA:
Mætum öll gul og glöð
Uppskeruhátíð yngri flokka verður haldin í tengslum við
leikinn og verður hún í Akraneshöll kl. 12:30
Eitthvert mildasta sumar í manna
minnum er að baki og eins afar vel
heppnað tónlistarsumar í Hvalfjarð-
arsveit. Haldnir voru fernir tón-
leikar undir yfirskrift tónlistarsum-
arsins, þar sem tónlistarfólk úr sveit-
arfélaginu kom fram á jafn ólíkum
stöðum sem í Skessubrunni, á Bjart-
eyjarsandi og í Hallgrímskirkju í
Saurbæ.
Óhætt er að fullyrða að hæst hafi
borið flutning á hinu fræga kirkju-
tónverki Stabat Mater eftir Ítalann
Giovanni Battista Pergolesi en það
var flutt þann 28. ágúst í Saurbæ í
tengslum við Hvalfjarðardaga og svo
aftur tveimur dögum síðar í Stykkis-
hólmskirkju. Segja má að allan heið-
ur af þessu framtaki eigi Alexandra
Chernyshova, sópransöngkona, sem
er fædd og uppalin í Úkraínu af rúss-
neskum föður og úkraínskri móður
en hefur verið búsett hér á Íslandi
vel á annan áratug og undanfarin ár
í Hvalfjarðarsveit.
Með Alexöndru komu fram þær
Lubov Molina, messó-sópran og
kontra-alt og Valeria Petrova, píanó-
leikari, sem eru rússneskar; fæddar
og uppaldar austur í Moskvu. Báð-
ar eru þær starfandi við Galina Vis-
hnevskaya Óperu-miðstöðina þar
í borg auk þess sem þess má geta
þess að sú fyrrnefnda hlaut fyrstu
verðlaun í Barsova-söngkeppninni í
Sochi við Svarta-hafið árið 2007.
Tónverkið Stabat Mater, eftir ít-
alska tónskáldið Giovanni Battista
Pergolesi, er byggt á latnesku kvæði
sem var ort seint á 13. öld og jafnan
er eignað ítalska munkinum Jaco-
pone da Todi. Heiti verksins er sótt
í fyrstu ljóðlínurnar þar sem segir á
latínu:
Stabat mater dolorosa
juxta crucem lacrimosa.
Presturinn og skáldið, sr. Stefán
Ólafsson í Vallarnesi, sem var sam-
tímamaður sr. Hallgríms Pétursson-
ar á 17. öldinni, þýddi þessi orð með
eftirfarandi hætti:
Tignuð mey og móðir að Kristi
margtáruð við krossinn gisti.
Og sr. Matthías Jochumsson þýddi
sálminn einnig en í hans útleggingu
hljóða fyrstu línurnar svona:
Stóð við krossinn mærin mæra
mændi’ á soninn hjartakæra, -
grátin sá, hvar Guðs son hékk.
Eins og þessar þýðingar bera með
sér þá er Stabat Mater Maríukvæði
sem fjallar um sorgarraunir Maríu
Guðsmóður þar sem hún stendur
við krossinn og horfir á son sinn
saklausan þjást. Efni kvæðisins teng-
ist því föstudeginum langa og tón-
listin við það er iðulega flutt í að-
draganda páska auk þess sem hún
á sér sérstakan stað í því helgihaldi
rómversk-katólskra, þar sem María
Guðsmóðir er tignuð.
Í kvæðinu kemur skýrt fram það
hlutverk Maríu meyjar í rómversk
katólskum sið að vera milligöngu-
maður á milli Guðs og manna og með
því að samsama sig pínu sonar síns og
ganga í gegnum þjáningu krossins
með þolgæði og fórnfýsi má segja að
hún fái nýtt móðurhlutverk, sem er
að verða móðir alls mannkyns.
Fjölmörg tónverk hafa verið sam-
in út frá Stabat Mater og er saman-
lagður fjöldi þeirra nú vel á sjöunda
hundrað talsins. Meðal tónskálda
sem hafa spreytt sig á að semja tón-
list við þetta mjög svo þekkta Maríu-
kvæði eru Vivaldi, Scarlatti, Joseph
Haydn, Rossini, Dvorak og Verdi, og
af nútímatónskáldum má nefna Arvo
Part, frá Eistlandi og hinn breska
Karl Jenkins. Verk Pergolesis er þó
það langþekktasta.
Pergolesi fæddist árið 1710 á Ítalíu
og var einungis 26 ára að aldri þeg-
ar hann árið 1736 lést úr berklum.
Stabat Mater var síðasta verkið sem
hann samdi og ýtti það til hliðar Sta-
bat Mater Scarlattis sem hafði verið
samið einungis 9 árum áður, en tón-
listarsmekkur manna hafði þá breyst
svo mjög á fáum árum að verk Scar-
lattis þótti orðið gamaldags. Verk
Pergolesis, Stabat Mater, hlaut strax
miklar vinsældir en raddsetningu
þess hefur verið lýst sem algjörlega
óaðfinnanlegri og þá er haft eft-
ir franska heimspekingnum Jean-
Jacques Rousseau að fyrsti kaflinn
geymi einvern fullkomnasta og til-
finningaríkasta dúett sem nokkru
sinni hafi streymt úr penna nokkurs
tónskálds. Stabat Mater Pergolesis
er yfirleitt flutt af tveimur söngv-
urum við undirleik strengjasveitar
„Stóð við krossinn mærin mæra“
Stabat Mater eftir Pergolesi flutt á Vesturlandi
en að þessu sinni var það flutt við
píanóundirleik.
Viðtökur áheyrenda, bæði í Saurbæ
og í Stykkishólmi, voru afar góðar
enda flutningur listamannanna fram-
úrskarandi. Þess má geta að Stabat
Mater Pergolesis hefur áður verið
flutt í heild á Vesturlandi en á skírdag
árið 1967 var verkið frumflutt í Akra-
neskirkju af strengjakvartett og kór
kirkjunnar. Stjórnandi var Haukur
Guðlaugsson en einsöngvarar voru
þær Guðrún Tómasdóttir, sópran,
og Sigurveig Hjaltested, alt. Það var
því komin hartnær hálf öld síðan Sta-
bat Mater hljómaði síðast í kirkju á
Vesturlandi og því orðið meira en
tímabært að tónlistarunnendur í hér-
aðinu fengju tækifæri til að hlýða aft-
ur á þetta stórkostlega tónverk og
fyrir það góða og þarfa framtak ber
hjartanlega að þakka.
Kristinn Jens Sigurþórsson,
sóknarprestur í Saurbæ.
Ljósm. Jón Hilmar Rúnarsson.
Alexandra Chernyshova sópransöngkona og Lubov Molina, messó-sópran og kontra-alt við flutning verksins.
Alexandra ásamt Lubov Molina og Valeriu Petrova.
ÞORLÁKSHÖFN STOKKSEYRI
EYRARBAKKI
SANDGERÐI GARÐUR
REYKHOLT FLÚÐIR
LAUGARVATN
LAUGARÁS
BORG Í GRÍMSNESI
SKEIÐA- OG
ÞJÓRSÁRDALSVEGUR
REYKHOLT
KLEPPJÁRNS-
REYKIR
HVANNEYRI
BIFRÖSTBAULA
ÓLAFSVÍK
GRUNDARFJÖRÐURHELLISSANDUR
HELLNAR
RIF
BÚÐARDALUR
KRÓKSFJARÐARNES
HÓLMAVÍK
STAÐARSKÁLI
HVAMMSTANGAVEGUR
HVAMMSTANGI
SKAGASTRÖND HOFSÓS SIGLUFJÖRÐUR
ÓLAFSFJÖRÐUR
DALVÍK
HÓLAR
VARMAHLÍÐ
BLÖNDUÓS
KÓPASKER RAUFARHÖFN
ÞÓRSHÖFN
MÝVATN/
REYKJAHLÍÐ
JÖKULSÁ Á
FJÖLLUM
VOPNAFJÖRÐUR/
VEGAMÓT
FOSSHÓLL-
GOÐAFOSS
LAUGAR-
EINARSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR JÖKULSÁRLÓNSKAFTAFELL
VÍKHVOLSVÖLLUR
LANDEYJARHÖFN
HELLA
VATNALEIÐ
VEGAMÓT
SKÓGAR
ÁSBYRGI
ARNARSTAPI
Ný leið hefur bæst við leiðakerfið og er hún númer 86. Ekið er um
sunnanvert Snæfellsnes milli Hellna og Vegamóta á föstudögum
og sunnudögum í tengslum við leið 58 til og frá Borgarnesi.
Hægt er að skoða leiðina betur á meðfylgjandi korti.
Góða ferð!
Ný leið strætó milli
Hellna og VegamótaÞORLÁKSHÖFN STOKKSEYRIEYRARBAKKI
SANDGERÐI GARÐUR
REYKHOLT FLÚÐIR
LAUGARVATN
LAUGARÁS
BORG Í GRÍMSNESI
SKEIÐA- OG
ÞJÓRSÁRDALSVEGUR
REYKHOLT
KLEPPJÁRNS-
REYKIR
HVANNEYRI
BIFRÖSTBAULA
ÓLAFSVÍK
GRUNDARFJÖRÐURHELLISSANDUR
HELLNAR
RIF
BÚÐARDALUR
KRÓKSFJARÐARNES
HÓLMAVÍK
STAÐARSKÁLI
HVAMMSTANGAVEGUR
HVAMMSTANGI
SKAGASTRÖND HOFSÓS SIGLUFJÖRÐUR
ÓLAFSFJÖRÐUR
DALVÍK
HÓLAR
VARMAHLÍÐ
BLÖNDUÓS
KÓPASKER RAUFARHÖFN
ÞÓRSHÖFN
MÝVATN/
REYKJAHLÍÐ
JÖKULSÁ Á
FJÖLLUM
VOPNAFJÖRÐUR/
VEGAMÓT
FOSSHÓLL-
GOÐAFOSS
LAUGAR-
EINARSSTAÐIR
KIRKJUBÆJARKLAUSTUR JÖKULSÁRLÓNSKAFTAFELL
VÍKHVOLSVÖLLUR
LANDEYJARHÖFN
HELLA
VATNALEIÐ
VEGAMÓT
SKÓGAR
ÁSBYRGI
ARNARSTAPI