Skessuhorn - 21.09.2016, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 201620
Þrjú félög sauðfjárbænda á Vest-
urlandi stóðu saman að bænda-
fundi í félagsheimilinu Þinghamri
í Borgarfirði síðastliðið fimmtu-
dagskvöld. Þetta voru félög sauð-
fjárbænda í Dölum, Snæfellsnesi
og Borgarfirði. Tilefni fundarins
var afurðaverð sem sláturleyfishaf-
ar hafa gefið út, en bændur þurfa
nú að mæta 5-10% verðlækkun á
dilkakjöti frá síðasta ári og fast að
40% verðlækkun fyrir ærkjöt. Fram
kom á fundinum að þar sem bænd-
ur hafa lagt út fyrir öllum þeim
kostnaði sem felst í framleiðslunni
hafa þeir ekki önnur úrræði en að
skerða eigin kauplið. Til fundarins
var boðið forsvarsmönnum stærstu
sláturleyfishafanna sem kaupa slát-
urfé af vestlenskum bændum, þ.e.
Sláturfélags Suðurlands og slátur-
húsa í eigu Kaupfélags Skagfirð-
inga; á Hvammstanga og Sauðár-
króki. Auk þess mætti Svavar Hall-
dórsson, framkvæmdastjóri Lands-
sambands sauðfjárbænda, og fór
yfir stöðuna. Þessir þrír héldu ít-
arleg framsöguerindi en eftir þau
var opnað fyrir fyrirspurnir úr sal.
Þrátt fyrir að víða standi göngur
og réttir yfir mættu ríflega hundr-
að bændur á fundinn. Það sem
fram kom var fróðlegt, en tæpast
líklegt til að blása bændum von í
brjóst um bætta afkomu á þessu
eða næsta ári. Blaðamaður Skessu-
horns sat fundinn og birtist hér úr-
dráttur úr því sem fram fór.
Kaupendastaða á
heimsmarkaði
Fyrstur á mælendaskrá var Ágúst
Andrésson framkvæmdastjóri slát-
urhúsa KS. Rakti hann ítarlega
sölutregðu og verðfall sem orð-
ið hefur á erlendum mörkuðum.
„Það er sterk staða krónunnar,
veiking gjaldmiðla í löndum sem
við eigum mikil viðskipti við, svo
sem Bretlandi, og verðlækkanir
eða sama verð á erlendum mörkuð-
um, sem eru helstu ástæður erfiðr-
ar stöðu okkar. Á sama tíma erum
við að glíma við fall í sölu hliðar-
afurða, svo sem á gærum, görn-
um og ýmsu fleiru. Hliðarafurðir
af lömbum eru ekki að skila okkur
nema um 8% af verði lambsins en
þær eru nú verðmetnar sem hluti af
kjötverðinu sem bændum er greitt.
Við þetta bætist svo lokun á Rúss-
landsmarkaði sem gerir afsetningu
ærkjöts afar erfiða og þá hafa þeir
verið stærstu kaupendur af gær-
um,“ sagði Ágúst. Hann rakti síðan
lið fyrir lið tekjutap fyrirtækisins af
sölu ýmissa sauðfjárafurða á mark-
aði í Bretlandi, Spáni, Rússlandi
og Noregi. „Við finnum vel fyr-
ir því að það er kaupendamarkað-
ur á heimsvísu um þessar mundir,“
sagði Ágúst. Hann sagði minnk-
andi sölu á frosnu lambakjöti og
tækifærin felist í aukinni vinnslu
á uppþýddu og unnu kjöti. Hann
sagði að uppistaðan í vörubirgð-
um á óseldu lambakjöti frá síðasta
hausti væru læri. Síðar á fundinum
kom reyndar fram að í landinu eru
nú um þúsund tonn til af óseldum
dilkalærum í frysti. Það kjöt þyrfti
helst að selja áður en nýtt kjöt bæt-
ist við birgðirnar.
„Einn daginn önnum
við ekki eftirspurn“
Ágúst dró engan dul á að sauðfjár-
ræktin væri ekki undanskilin öðr-
um útflutningsvörum. Þegar krón-
an væri sterk og markaðir úti fullir
af kjöti, væri erfitt að afsetja vör-
una. Þá sagði hann að pólitísk mis-
tök hafi gert afurðastöðvum lífið
leitt og var þar að vísa í ákvörðun
ríkisstjórnarinnar að setja á við-
skiptabann við Rússland. Engu að
síður hvatti Ágúst bændur til að
missa ekki móðinn og halda trúnni
á gæði framleiðslunnar. „Sá dag-
ur kemur að við munum ekki anna
eftirspurn eftir dilkakjöti. Saman
verðum við því að komast í gegn-
um það ástand sem nú ríkir. Stað-
an er erfið og við höfum skilning
á þröngri stöðu bænda. Þá viður-
kenni ég að við gáfum of seint út
verðskrá, lifðum alltaf í voninni
um að þurfa ekki að lækka afurða-
verð,“ sagði Ágúst og bætti því við
ef úr mörkuðum rættist myndi KS
endurmeta stöðuna og gaf mönn-
um veika von um hugsanlega upp-
bót á afurðaverð í vetur eða vor.
Framboð og eftirspurn
Næst hélt Steinþór Skúlason for-
stjóri Sláturfélags Suðurlands
framsögu. „Staðan er flókin og erf-
ið í sölu lambakjöts. Ég gæti alveg
sagt eitthvað huggulegt við ykkur,
en betra er að segja bara sannleik-
ann. Ég skil vel gagnrýni sauðfjár-
bænda í okkar garð,“ sagði Stein-
þór í upphafi máls. Hann sagði að
það hafi reynst afdrifarík mistök
árið 2007 þegar bændur sömdu frá
sér útflutningsskylduna. Steinþór
sagði stöðuna í sölumálum mjög
erfiða og tók að því leyti undir
orð Ágústar Andréssonar hjá KS.
„Framleiðslan núna er 30% meiri
en salan innanlands sem er ekk-
ert annað en offramboð í ljósi þess
hvernig erlendir markaðir eru nú
óvirkir. Þetta er ástæðan fyrir þeim
ógöngum sem sala á dilkakjöti er
í. Þar sem ekki er hægt að selja
kjöt á erlenda markaði fyrir við-
unandi verð, reyna vinnslustöðv-
ar að fá hæsta verð sem þær geta
á innanlandsmarkaði. Samkeppn-
in er því geisilega hörð og undir-
boð í gangi,“ sagði Steinþór. Tók
hann sem dæmi að ef hann þyrfti
að velja um að selja kíló af lamba-
læri á 600 krónur til Bretlands
veldi hann frekar að fá 900 krón-
ur fyrir það á innanlandsmarkaði
þrátt fyrir að þá væri hann jafnvel
að borga með kjötinu. „Þetta snýst
um framboð og eftirspurn, það er
ekkert flókið,“ sagði Steinþór og
varaði við því sem nú væri í gangi
að saka verslunina um þá stöðu
sem uppi er á innlendum kjöt-
markaði. „Við eigum ekki að egna
kaupmönnum upp á móti bændum
og vinnslustöðvum, það leiðir ekki
til góðs og myndar gjá milli frum-
vinnslunnar og smásölunnar, sem
leiðir til þess að verslunin fær auk-
inn áhuga á innflutningi,“ sagði
Steinþór Skúlason.
„Erum nú á botninum“
Steinþór býst ekki við að íslenska
krónan fari að veikjast gagnvart
erlendum gjaldmiðlum á næst-
unni. Því þurfi menn að búast við
að þröngt verði í búi næsta árið að
minnsta kosti. „Okkar helsta von
er að Rússlandsmarkaður opn-
ist að nýju og útflutningsleyfi fá-
ist inn á Kínamarkað.“ Tók hann
undir með Ágústi að það væri mik-
ið högg fyrir vinnslustöðvarnar
að gærumarkaður væri hruninn
og markaður með aðrar hliðaraf-
urðir væri sömuleiðis afar lélegur.
„Það er slæmt að vera háður ein-
um markaði með kjöt. Ef vel ætti
að vera þyrftum við Íslendingar
að flytja út 3000 tonn af kjöti og
því er framleiðslan of mikil. Út-
flutningsverð er of lágt og pressar
það niður verð hér innanlands. Því
er sauðfjárslátrun og vinnsla rek-
in með verulegu tapi. Það er óvið-
unandi ef við þurfum að færa pen-
inga frá einni búgrein yfir á aðra
til lengri tíma litið,“ sagði hann
og vísaði þar m.a. til góðrar sölu á
hvítu kjöti og þá annaði framleiðsla
á nautakjöti ekki innanlandsmark-
aði. „Við erum núna á botninum í
sölu sauðfjárafurða og það verður
erfið staða áfram ef krónan styrk-
ist eitthvað meira. Í það minnsta er
engin innistæða fyrir þeirri hækk-
un á lambakjöti sem talað er um
í nýjum búvörusamningi,“ sagði
Steinþór.
Þurfum kröfuharða
kaupendur gæðavöru
Svavar Halldórsson, framkvæmda-
stjóri Landssambands sauðfjár-
bænda, talaði síðastur frummæl-
enda. Hann sagði að sauðfjár-
bændur glímdu við margþætt-
an vanda; hrun Rússlandsmark-
aðar, gengismál, hrun á markaði
fyrir gærur og að nú hafi verð til
bænda verið lækkað um 9,8% fyr-
ir lambakjötið og 35,7% fyrir kjöt
af fullorðnu. Sú lækkun þýddi tæp-
lega 600 milljóna króna tekjufall
til bænda. Ekki væri framkvæm-
anlegt að auka útflutningsskyldu
og því yrðu menn að finna nýj-
ar leiðir í markaðssetningu innan-
lands. Svavar sagði það slæmt að
búvörusamningurinn hefði legið
ósamþykktur í 207 daga á þingi en
það hefði gert nær ómögulegt fyrir
bændur að gera raunhæfar áætlan-
ir í rekstri. Þá sagði hann markaðs-
sókn kostnaðarsama, ekki síst þeg-
Þungt hljóð í sláturleyfishöfum og bændum lítil von gefin um batnandi hag
Hundrað sauðfjárbændur mættu á fund um afurðamál
Fé nýkomið af fjalli.
Fundinn í Þinghamri sóttu um hundrað bændur víðsvegar af Vesturlandi. Hér sést hluti þeirra.