Skessuhorn - 21.09.2016, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 2016 23
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Um er að ræða 100% stöðu og 70% stöðu.
Einnig auglýsum við eftir leikskólakennara í 100% stöðu
til að leysa af tímabundið starf deildarstjóra.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir til
að taka þátt og leiða áfram gott faglegt starf í leikskólanum.
Meginverkefni: Vinnur samkvæmt starfslýsingu leikskóla-
kennara og deildarstjóra að uppeldi og menntun leikskóla-
barna. Tekur þátt í skipulagningu faglegs starfs og foreldra-
samstarfs undir stjórn leikskólastjóra.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Launanefndar
sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum. Miðað er við
ráðningar í störfin í október 2016 eftir samkomulagi viðkom-
andi starfsmanns og leikskólastjóra.
Umsóknarfrestur er til 30. september 2016.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Sigurjónsson leikskólastjóri
eða Áslaug Ella Gísladóttir aðstoðarleikskólastjóri í
síma 433-7170.
Umsóknir með upplýsingum um menntun, starfsreynslu og
umsagnaraðila berist skriflega til leikskólastjóra á netfangið
sigurdurs@borgarbyggd.is.
Heilsuleikskólinn Andabær,
Hvanneyri auglýsir eftir
leikskólakennurum
Heyrðu umskiptin -fáðu heyrnartæki til reynslu.
Erum með margar gerðir og verðflokka ReSound heyrnartækja.
ReSound er í fremstu röð í framleiðslu heyrnartækja í heiminum
í dag. Miklar vinsældir ReSound má rekja til frábærra gæða
tækjanna og einnig til þess að Apple valdi ReSound sem
samstarfsaðila í samþættingu á heyrnartækjum við iPhone-
snjallsíma. Í samkeppni á heyrnartækjamarkaðinum
hefur ReSound náð verulegu forskoti.
Heyrnarþjónustan Heyrn • Hlíðasmára 11, 201 Kópavogur • s:534-9600 • www.heyrn.is •
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
6
Undanfarnar tvær vikur hef ég far-
ið um og hitt margt fólk á öllum
aldri, dugmikið fólk, ýmist í starfi,
á eftirlaunum eða einstaklinga með
skerta starfsorku.
Svigrúm stjórnenda
Ég er stjórnandi á allstórri heil-
brigðisstofnun og fylgist með lífi
og viðgangi minna starfsmanna eft-
ir föngum og ekki síst launakjör-
um. Mér hefur lengi verið ljóst að
kjör almenns starfsfólks samkvæmt
samningum eru ósanngjörn. Svig-
rúm sem stofnunum er búið til að
bæta hér úr er nákvæmlega ekkert.
Margar þeirra eru starfræktar með
verulegu rekstrartapi um þessar
mundir og eiga fullt í fangi með að
tryggja nauðsynleg aðföng.
Viðmót samfélagsins
Ég hef í nokkrum tilvikum hitt ein-
staklinga sem reiða sig á almanna-
tryggingar sér til framfærslu, bæði
eldri og yngri. Það hefur verið
sérstök raun að hlýða á ungt fólk
greina frá kjörum sínum, að hafa
til ráðstöfunar ríflega 180 þúsund
krónur á mánuði, búa við leigukjör
sem nema e.t.v. um 100 þúsund
krónum, jafnvel með börn á heim-
ili, lyfjakostnað, matarinnkaup og
aðra lágmarks framfærslu.
Dökkur blettur
Ég get ekki annað en fyllst að-
dáun en um leið orðið sorgmædd-
ur yfir þeim úrræðum sem þessir
einstaklingar þurfa
að nota til að ná
endum saman. Í
mörgum tilvikum
verður þrautalendingin aðstoð frá
hjálparstofnunum sem hlaupa und-
ir bagga. Með fullri virðingu fyrir
góðu starfi mannúðarsamtaka, þá
er það svartur blettur í velferðar-
samfélagi, að hundruðum einstak-
linga sé búið þetta hlutskipti. Það
stríðir gegn stjórnmálastefnu jafn-
aðarmanna, og meðal þessa fólks
taka jafnaðarmenn sér stöðu:
Með þeim sem standa höllustum
fæti í samfélaginu.
Með þeim sem lægst hafa launin
á almennum vinnumarkaði og eiga
í miklum erfiðleikum að sjá sér far-
borða.
Með þeim sem lokið hafa starfs-
degi og búa við óréttlátar skerðing-
ar og tekjutengingar á eftirlaunum.
Með þeim sem búa við takmark-
aða starfsorku og njóta ekki sann-
girni til sómasamlegs lífs.
Sanngirni og réttlæti
Sýn jafnaðarmanna þarf að verða
ofan á svo raunverulegar úrbætur
fáist. Að þessum málefnum mun ég
og meðframbjóðendur mínir ein-
beita sér og þessu viljum við jafn-
aðarmenn koma í framkvæmd. Það
þarf að vinna hratt og sýna áræði til
breytinga.
Guðjón S. Brjánsson.
Höf. skipar 1. sæti á lista Samfylk-
ingar í NV kjördæmi.
183 þúsund krónur
Pennagrein
Á fundi bæjarstjórnar Grundarfjarð-
arbæjar í byrjun septembermánaðar
var lagt fram yfirlit yfir kostnað við
framkvæmd forsetakosninga 2016.
Kostnaður sveitarfélagsins við kosn-
ingarnar var hærri en framlag Inn-
anríkisráðuneytisins. Þetta kem-
ur fram í fundargerð bæjarins. Að
sögn Þorsteins Steinssonar, bæjar-
stjóra í Grundarfirði, á ríkið að bera
þennan kostnað og alla jafnan hefur
framlag þess dugað. „En einhverra
hluta vegna hefur þessi kostnaður
hjá okkur orðið meiri en framlagið
sem við fengum. Þetta er ekki stór-
kostlegur munur, tæplega 200 þús-
und krónur. En það er sama, það
munar um allt,“ segir Þorsteinn í
samtali við Skessuhorn. „Við höfum
komið því á framfæri við ráðuneytið
og þurfum að sjá hvernig við tækl-
um þetta við næstu kosningar sem
styttist nú í. Ég held að við höfum
ekki neinar stórar áhyggjur af þessu,
enda eru þetta ekki stórar tölur. En í
raun eigum við að koma slétt út við
framkvæmd kosninga og vonumst
til að þetta sleppi næst, að þetta hafi
verið eitthvað tilfallandi.“
grþ
Kostnaður við kosningar reyndist
hærri en framlag ríkisins
Kostnaður Grundarfjarðarbæjar við forsetakosningarnar í sumar var hærri en
framlag Innanríkisráðuneytisins.
Séra Árni Pálsson, fyrrum sóknar-
prestur, lést 16. september síðast-
liðinn, 89 ára að aldri. Hann var
fæddur á Stóra-Hrauni í Kolbeins-
staðahreppi 9. júní 1927, sonur
Önnu Árnadóttur frá Stóra-Hrauni
og Páls Geirs Þorbergssonar verk-
stjóra frá Syðri-Hraundal. Árni lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólan-
um í Reykjavík 1948 og guðfræði-
prófi árið 1954. Hann sinnti ýms-
um störfum, meðal annars kennslu
við Gagnfræðaskólann við Lind-
argötu fram að því að hann tók
vígslu 1961 og kenndi á Snæfells-
nesi og við Þroskaþjálfaskólann
meðfram prestsstörfum. Hann var
sóknarprestur í Söðulsholti í Eyja-
hreppi 1961-1971 og þjónaði þá
við sóknir á Mýrum og í Hnappa-
dal. Varð sóknarprestur í Kársnes-
prestakalli í Kópavogi 1971-1990
og síðast prestur á Borg á Mýrum
1990-1995.
Jafnhliða preststörfum sinnti sr.
Árni ýmsum félags- og trúnaðar-
störfum meðal annars á sviði æsku-
lýðsmála og á Snæfellsnesi var hann
driffjöður í félagsstarfi hestamanna.
Þá var hann þekktur sem snjall
ræðumaður við ýmis tækifæri og
oft kallaður til sem slíkur á góðum
stundum. Einnig sinnti séra Árni
ýmsum félags- og trúnaðarstörfum
fyrir hönd presta og skrifaði greinar
um guðfræðileg efni og samfélags-
mál í blöð og tímarit. Þá sinnti hann
kennslu meðal annars við Þroska-
þjálfaskóla Íslands sem starfræktur
var í Kópavogi.
Eftirlifandi eiginkona Árna er
Rósa Björk Þorbjarnardóttir, fyrr-
verandi kennari og endurmenntun-
arstjóri. Börn þeirra eru Þorbjörn
Hlynur prófastur á Borg, Þórólfur
verkfræðingur, nú forstjóri Sam-
göngustofu, Anna Katrín ráðgjafi
hjá Advania og Árni Páll alþingis-
maður og fyrrverandi ráðherra.
Útför séra Árna fer fram frá Hall-
grímskirkju í Reykjavík fimmtudag-
inn 22. september klukkan 15.
mm
Andlát - Séra Árni Pálsson
sóknarprestur
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is