Skessuhorn - 21.09.2016, Side 30
MIÐVIKUDAGUR 21. SEPTEMBER 201630
„Hvað er best
við haustið?“
Spurning
vikunnar
(Spurt í Borgarnesi)
Guðmunda Ólöf Jónasdóttir:
„Náttúran og þá sérstaklega lit-
irnir í náttúrunni. Síðan get-
ur birtan oft verið svo falleg á
haustin.“
Hallgrímur Viðar Árnason:
„Litirnir eru það besta við haust-
ið, alveg klárlega.“
Sjöfn Inga:
„Það er margt, til dæmis smala-
mennskur, sláturtíðin og að
fara í berjamó. Svo þykir mér
skemmtilegt hve veðráttan
breytist oft snögglega stundum
á haustin. Það er rigning eina
stundina en sól þá næstu. Veðrið
er mjög breytilegt og skemmti-
legt.“
Kristján Pétursson:
„Það er svo ótrúlega margt að ég
veit eiginlega ekki hvar ég á að
byrja. En mér dettur strax í hug
litbrigðin og réttir, svo dæmi séu
tekin.“
Honda Classic mót Eimskips-
mótaraðarinnar í golfi var leikið á
Garðavelli um síðustu helgi. Vallar-
aðstæður voru nokkuð breytilegar á
fyrsta hring mótsins þar sem gekk á
með miklum vindi og rigningu. Að-
stæður voru síðan mun betri á öðr-
um keppnisdegi og lokahringnum
en á fyrsta degi mótsins.
Úrslit mótsins urðu þau að Krist-
ján Þór Einarsson úr Golfklúbbi
Mosfellsbæjar og Ragnhildur Krist-
insdóttir úr Golfklúbbi Reykja-
víkur urðu hlutskörpust. Kristján
lék á samtals sjö undir pari. Hann
setti vallarmet á Garðavelli á loka-
hringum, en hann lék Kristján á sjö
höggum undir pari vallarins. Í öðru
sæti á mótinu varð Heiðar Davíð
Bragason úr Golfklúbbnum Hamri
á Dalvík en þrír kylfingar urðu jafn-
ir í 3.-5. sæti.
Ragnhildur tryggði sér öruggan
sigur þrátt fyrir að hafa farið loka-
hringinn á 81 höggi. Er þetta henn-
ar annar sigur á Eimskipsmótaröð-
inni en hún er aðeins 19 ára gömul.
Hafdís Alda Jóhannsdóttir úr Golf-
klúbbnum Keili hafnaði í öðru sæti
og Eva Karen Björnsdóttir úr Golf-
klúbbi Reykjavíkur í þriðja sæti.
kgk
Honda Classic mótið fór
fram á Garðavelli
Kristján Þór Einarsson úr GM og Ragnhildur Kristinsdóttir úr GR sigruðu á Honda
Classic móti Eimskiparaðarinnar sem fram fór á Garðavelli um helgina.
Ljósm. leynir.is.
Pútthópur eldri borgara í Borgar-
byggð endaði sumarið á Haustmóti
að Hamri 13. september. Um 20
eldri púttar hafa æft af kappi í sum-
ar og framfarir hafa verið góðar hjá
mörgum einstaklingum. Haustmót-
ið var þriggja daga keppni og gilti
samanlagður árangur. Leikið var 6.,
8., og 13. september. Í kvennaflokki
varð Lilja Ólafsdóttir hlutskörpust
með 203 högg. Í öðru sæti varð
Guðrún Birna Haraldsdóttir með
205 högg og Jytta Juul þriðja með
209 högg. Í karlaflokki varð Þor-
bergur Egisson hlutskarpastur með
194 högg. Annar varð Guðmundur
A. Arasons með 199 högg og þriðji
Guðmundur Bachmann með 205
högg. Sextán kependur tóku þátt í
þessu lokamóti. mm/ii
Haustmót eldri púttara í
Borgarbyggð
Keppendur á Haustmóti í pútti ásamt mótsstjóra. Ingimundi Ingimundarsyni var
færður blómvöndur með þakklæti hópsins fyrir leiðsögn og elju við golfstarfið.
Ljósm. Ragnheiður G. Waage.
Skógræktin hefur ráðið Hlyn Gauta
Sigurðsson í stöðu skógræktarráð-
gjafa á Vesturlandi. Hlynur Gauti
er með BS próf í umhverfisskipu-
lagi frá Landbúnaðarháskóla Ís-
lands, diplómu í borgarskógrækt
frá sænska Landbúnaðarháskól-
anum og danska Landbúnaðarhá-
skólanum sem var. Þá hefur hann
einnig lokið meistaragráðu í lands-
lagsarkitektúr frá Kaupmannahafn-
arháskóla. Hlynur Gauti starfaði
um árabil sem verkefnastjóri við
ráðgjöf og áætlanagerð hjá Héraðs-
og Austurlandsskógum en hefur auk
þess starfað við ýmis garðyrkju- og
skógræktarstörf auk fjölmiðlastarfa
hjá Norðurljósum við myndatöku
og klippingu. Sú reynsla nýtist
honum vel í starfinu hjá Skógrækt-
inni en til stendur að Hlynur Gauti
starfi að hluta að gerð kynningar-
og fræðsluefnis. Hlynur Gauti hef-
ur störf á haustmánuðum að hluta
en verður í fullu starfi frá áramót-
um. Alls sóttu fjórir um stöðu skóg-
ræktarráðgjafa á Vesturlandi auk
Hlyns Gauta. Hinir þrír voru Frið-
rik Aspelund Hvanneyri; Raimund
Brockmeyer Litla - Búrfelli Húna-
vatnshreppi og Rúnar Vífilsson
Ferstiklu Hvalfjarðarsveit.
grþ
Hlynur Gauti ráðinn skóg-
ræktarráðgjafi á Vesturlandi
„Forstjóri Haga ætti að
sjá sóma sinn í að biðja
bændur afsökunar á frá-
leitum ummælum um að
búvörusamningar séu rík-
isstyrkt dýraníð. Honum
er í sjálfsvald sett að gagn-
rýna samningana en um-
mæli af þessu tagi eru út
fyrir öll mörk og bera vott
um einkar fjandsamlegt
viðhorf í garð íslenskra
bænda,“ segir Sigurgeir Sindri Sig-
urgeirsson formaður Bændasamtaka
Íslands í yfirlýsingu sem hann hefur
sent frá sér. „Ítrekað hefur forstjóri
Haga haft uppi neikvæð ummæli um
íslenskan landbúnað en með þessum
tilteknu ummælum tekur steininn úr
og eru því fyrirtæki sem hann starfar
fyrir til háborinnar skammar.“
Sindri segir að íslenskir bændur
vinni að því hörðum höndum allan
ársins hring við að tryggja íslensk-
um almenningi heilnæm matvæli án
sýklalyfja eða annarra aukaefna sem
algeng eru í landbúnaði í öðrum
löndum. „Það er eitt af forgangsmál-
um Bændasamtakanna að íslenskir
bændur standist ítrustu kröfur um
dýravelferð svo að Ísland verði í far-
arbroddi í þeim efnum. Nýir búvöru-
samningar eru viðamiklir og skipta
bændur og almenning á Íslandi veru-
legu máli. Þeir tryggja það að neyt-
endur fá íslenskar búvörur á hag-
stæðu verði í verslunum og að hér sé
hægt að reka blómlegan landbúnað.
Við frábiðjum okkur þann málflutn-
ing sem forstjóri stærstu smásölu-
keðju landsins viðhefur. Menn verða
að sýna lágmarks mannasiði þegar
þeir tjá sig um atvinnugrein sem þús-
undir manns byggja afkomu sína á
um allt land,“ segir Sindri.
mm
Formaður BÍ fordæmir
ummæli forstjóra Haga
Vitavarðar
Dag ur í lífi...
Líkt og fram hefur kom-
ið í Skessuhorni stend-
ur Hilmar Sigvaldason
vaktina í Akranesvita allt
árið um kring og sinnir
nú einnig upplýsingagjöf
til ferðamanna á Akra-
nesi úr vitanum. Sett hef-
ur verið upp aðstaða fyrir
Hilmar á fyrstu hæð vit-
ans en upplýsingamiðlun
til ferðamanna á Akranesi
er nú einungis í Akranes-
vita. Standar með bækl-
ingum verða þó settir upp
á nokkrum stöðum í bænum, auk
þess sem svokallaðir „heitir reit-
ir“ verða settir upp sem gera fólki
kleift að komast á netið endur-
gjaldslaust. Það er þó spurn-
ing hvort skrifstofa Hilmars geti
flokkast sem „heitur reitur“ enda
getur orðið ansi kalt í vitanum
yfir vetrarmánuðina. Hilmar er
gestur í Dagur í lífi þessa vikuna.
Nafn: Hilmar Sigvaldason.
Fjölskylduhagir/búseta: Ein-
hleypur og búsettur á Akranesi.
Starfsheiti/fyrirtæki: Upplýs-
ingafulltrúi í Akranesvita.
Áhugamál: Vitar, ljósmyndun,
smábílasöfnun og fólk. Maður
hlýtur að þurfa að hafa áhuga á
fólki í svona starfi.
Vinnudagurinn: Þriðjudagur
20. september
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan 8 og
það fyrsta sem ég gerði var að fá
mér staðgóðan morgunverð.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Cheerios.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fór til vinnu klukk-
an 9, keyrandi.
Fyrstu verk í vinnunni: Að
opna loftlúguna og gera klárt
fyrir daginn.
Hvað varstu að gera klukkan
10? Þá var ég að vinna í mark-
aðssetningu.
Hvað gerðirðu í hádeginu?
Yfirleitt er ég fastur í vinnu í há-
deginu og þannig var það þenn-
an dag.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Að taka á móti fólki í vitan-
um, segja þeim frá og veita upp-
lýsingar.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Ég
hætti klukkan 17. Það síðasta
sem ég gerði var að loka lofthler-
anum og slökkva ljósin.
Hvað gerðirðu eftir vinnu? Fór
í búð og heimsótti ættingja.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Langsteik, elduð af sjálf-
um mér.
Hvernig var kvöldið? Þá sat ég
yfir sjónvarpinu.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fer
yfirleitt að sofa um ellefu leytið.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Burstaði tennurnar.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Stórtenór sem kom á óvart.
Eitthvað að lokum? Ég vil
hvetja alla til að heimsækja mig í
vinnuna og til að koma og skoða
ljósmyndasýningu Marc Koegels
sem opnuð var í vitanum um síð-
ustu helgi.