Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2016 11 SK ES SU H O R N 2 01 4 Fréttaveita Vesturlands www.skessuhorn.is Snæfellsbær hefur ákveðið að styrkja foreldra barna, sem ekki hafa náð leikskólaaldri og ekki eiga kost á dagforeldrum, með því að greiða sérstakar heimgreiðslur, eða for- eldragreiðslur. Þetta var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 3. nóvember síðastliðinn. Hægt er að sækja um heimgreiðslur þegar fæðingarorlofi lýkur og þangað til barn fær pláss á leikskóla. „Ef óskað er eftir heim- greiðslum frá og með 1. desember, er foreldrum bent á að sækja um fyr- ir 20. nóvember á sérstökum eyðu- blöðum sem fást í afgreiðslu Ráð- húss Snæfellsbæjar. Umsókn þarf að fylgja afrit af umsókn um leikskóla- pláss, staðfest af leikskólastjóra.“ Í reglum sem bæjarstjórn hefur samþykkt kemur fram að hámarks- upphæð foreldragreiðslna vegna 8 klukkutíma er 36.800 krónur á mán- uði fyrir hvert barn foreldra í sam- búð og 42.600 krónur til einstæðra foreldra, öryrkja eða ef foreldrar eru báðir í námi. Undanfarið hafa ekki verið starfandi dagforeldrar í í Snæ- fellsbæ. Tíminn frá því að fæðingar- orlofi lýkur og þar til börn fá inni á leikskóla getur því orðið foreldrum erfiður fjárhagslega. Snæfellsbær býr þó vel því börn komast oft inn á leikskóla við tólf mánaða aldur. mm Snæfellsbær kemur til móts við foreldra ungra barna Börn í Snæfellsbæ. Ljósm. úr safni. Laust fyrir klukkan 18 síðastliðinn miðvikudagskvöld fékk Lögreglan á Vesturlandi tilkynningu um að ver- ið væri að fremja vopnað ráð í Apó- teki Ólafsvíkur við Ólafsbraut 24. Þar hótaði maður starfsfólki með hnífi. Náði hann að taka með sér talsvert af lyfjum, en hljóp eftir það út og ók á brott á bíl. Kallað var eftir aðstoð lög- reglu víðar úr lögregluumdæminu og náðist að stöðva för bílsins vestan við Haffjarðará á sunnanverðu Snæfells- nesi. Þar var par handtekið og flutt til yfirheyrslu á Akranesi. Þar var fólkið vistað þar til daginn eftir. Fulltrúi rannsóknadeildar LVL fór á vettvang ásamt lögreglumönnum frá tæknideild lögreglunnar á höf- uðborgarsvæðinu. Starfsfólki Apó- teks Ólafsvíkur var að vonum mjög brugðið við þennan atburð og var því boðin áfallahjálp. Í fréttum á mánudaginn kom fram að Lögreglan á Vesturlandi mun óska eftir því að maðurinn sem framdi ránið verði úrskurðaður í farbann, en hann er útlendingur. Hann er auk ránsins í Ólafsvík grunaður um annað rán í lyfjaverslun í Suðurveri í Reykja- vík nokkru áður. mm Vopnað rán framið í Ólafsvík Frá vettvangi ránsins skömmu eftir. Á svipuðum tíma stöðvaði lögregla för fólksins við Haffjarðará.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.