Skessuhorn


Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 15

Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2016 15 Íshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100Mynd: Björgunarmiðstöð Hjálparsveitar skáta Kópavogi. Þeir sem gera kröfur velja Héðins hurðir Fáðu tilboð í hurðina Fylltu út helstu upplýsingar á hedinshurdir.is og við sendum þér tilboð um hæl. Síðastliðinn miðvikudag hélt Félag aldraðra í Borgafjarðardölum fagn- að í tilefni af 25 ára afmæli félags- ins. Fjölmenni mætti í félagsheim- ilið Brún í Bæjarsveit, en þar hef- ur félagið haft starfsemi nánast frá upphafi. En ekki var einvörðungu um afmælifagnað að ræða því við sama tilefni afhenti félagið formlega Landmælingum Íslands örnefna- skráningu fyrir allar jarðir á félags- svæðinu. Söfnun og skráning ör- nefna hefur fylgt félaginu nær alla tíð frá stofnun þess, en ákveðið var fyrir 23 árum að félagið tæki það verkefni upp á sína arma að safna og skrá örnefni í sex hreppum í Borgar- firði norðan Skarðsheiðar auk Hvít- ársíðu og Þverárhlíðar í Mýrasýslu. Það var Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands sem veitti gagnasafninu viðtöku, en með táknrænum hætti var honum afhent örnefnaskrá síðustu jarðarinnar sem safnað var upplýsingum um, en það eru Vilmundarstaðir í Reykholtsdal. Nú eru örnefnin á félagssvæðinu, sem nær yfir átta hreppa, aðgengi- leg á vef Landmælinga, bæði á ör- nefnasjá og kortasjá. Byggt á gögnum Ara Gíslasonar Sveinn Hallgrímsson á Hvann- eyri er nú formaður Félags aldr- aðra í Borgarfjarðardölum. Hann stýrði samkomunni í Brún en mest áhersla var í afmælinu lögð á kynn- ingu örnefnaverkefnisins. Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpastöðum var formaður örnefnanefndar nú síð- ustu árin og hefur lagt mikla vinnu í það, ásamt fleirum. Nefndin skil- ar nú af sér verkinu. Auk Þorsteins voru í nefndinni Davíð Péturs- son og Ragnheiður Ásmundardótt- ir. Þorsteinn fór yfir hvernig verk- efnið varð upphaflega til. Fram kom að það var hugmynd Magnúsar Kol- beinssonar í Stóra-Ási að félagið tæki að sér að yfirfara þær örnefna- skrár sem fyrir lágu árið 1993. Jón Þórisson í Reykholti hrinti verk- efninu síðan í gang og starfaði mik- ið við það en eftir að hann féll frá tók Magnús Sigurðsson á Gilsbakka við keflinu. Magnús þykir hafa unn- ið mjög staðgóðar og nákvæmar lýs- ingar á örnefnum og staðháttum sem auðvelt er fyrir þá sem ekki eru staðkunnugir að nota sér til gagns. Allir eru þessir frumkvöðlar að verk- efninu fallnir frá. Þegar félagið hóf þessa vinnu tók það til við að yfir- fara skrár sem Ari Gíslason frá Foss- um hafði unnið. Ari safnaði örnefn- um um allt land, hóf þá vinnu árið 1939 og fór mjög víða um land- ið í þeim tilgangi. Fram kom í máli Þorsteins á Skálpastöðum að aldrei hefði neinn maður hér á landi unn- ið eins mikið við söfnun og skrán- ingu örnefna og Ari Gíslason gerði. Gaman er því að viðstaddar afmæl- issamkomuna á miðvikudaginn voru ekkja Ara og dóttir. Vistað á vef LMÍ Fram kom að örnefnasöfnun Borg- firðinga hefur fengið viðurkenn- ingar og hlotið athygli auk styrkja. Meðal annars hafa komið styrkir frá Menningarráði Vesturlands, Minn- ingarsjóði Guðmundar og Ingi- bjargar frá Kirkjubóli, Þjóðhátíðar- sjóði, Borgarbyggð og Arionbanka. Auk þess hafa Snorrastofa, Árna- stofnun, Landmælingar og síðast en ekki síst íbúar í Borgarfirði lagt verkefninu lið. Félag aldraðra gerði fljótlega samning við Landmælingar Íslands um skráningu og varðveislu örnefn- anna. Ragnhildur Jónsdóttir í Ausu var fengin í vinnu við verkefnið og þannig hefur á síðustu árum tekist að ljúka skráningu allra þekktra ör- nefna á fyrrgreindu starfssvæði. Til marks um umfang örnefnaskrán- ingar nefndi Þorsteinn á Skálpa- stöðum að 13.167 örnefnum hafi verið safnað í þessum átta hrepp- um í Borgarfirði, auk Hvítársíðu og Þverárhlíðar. 146 örnefni hafi ekki verið hægt að staðsetja, en 339 ný nöfn hefðu bæst við örnefnaskrána. Þorsteinn sagði að af einstaka jörð- um hafi flest örnefni verið skráð í Kalmanstungu, eða 487 talsins. Á Gilsakka væru örnefnin 429 og á Húsafelli 253. Allar eiga þess- ar jarðir það sameiginlegt að vera landstórar og að sömu ættir hafi setið þær lengi. Þar byggi auk þess mikið skýrleiksfólk. Landið lítils virði ef það héti ekki neitt Ragnhildur Jónsdóttir í Ausu sagði frá örnefnaskráningunni og ýmsu sem hana snertir. Sagði hún að ör- nefni væri nafn á stað og að þau tengdu fólk við staðhætti og land- ið. Hægt væri að rekja ýmis ör- nefni allt aftur til landnáms. Flest ættu örnefni því norrænan eða kelt- neskan uppruna. Sagði hún að ör- nefni væru flest í nágrenni bústaða fólks eða þar sem mikilvægt væri að geta auðkennt landið. Örnefni sem ættu til dæmis við ræktarlönd þekktu hins vegar færri og þau lifðu skemur. Við mannaskipti á jörðum sagði hún að oft hafi tapast þekk- ing á örnefnum sem gengnar kyn- slóðir þekktu. Ræddi Ragnhild- ur um mikilvægi örnefna til dæm- is á siglingaleiðum og söguteng- ing væri sterkari þegar hægt væri að vísa til örnefna. Þá tengjast ör- nefni oft atvinnusögu, búháttum og nytjum og nefndi hún dæmi um t.d. sel og stekki. Þá hefðu ýmis örnefni horfið vegna nytjaleysis, eins og til dæmis á engjum og örnefni á eykt- armerkjum væru nánast horfin. Ragnhildur sagði að örnefni glat- ist af ýmsum ástæðum, ekki ein- vörðungu að jarðir fari úr ábúð eða nýtt fólk hefði ekki aflað sér þekk- ingar um heiti þeirra. Einnig töp- uðust þau vegna breyttrar landnýt- ingar, samgangna, landslag breytist og fleira getur komið til. Því sagði hún afar dýrmætt að búið væri að skrá svo kerfisbundið örnefni á svo stóru svæði og vissulega væru Borg- firðingar í fararbroddi hvað þetta snertir nú þegar verkefninu er lok- ið og það gert aðgengilegt um Int- ernetið. Loks sagði Ragnhildur að hennar framtíðarsýn væri sú að ör- nefnin myndu nýtast við ótalmargt. Þau opnuðu nýjar víddir, t.d. með að tengja örnefnin við söguna og hjálpa þannig sögutengdri ferða- þjónustu að vaxa og dafna, þau auð- velduðu leiðsögn, miðluðu fróðleik og því mikilvægt tæki til að segja sögu liðinna tíma. mm Félag eldri borgara lýkur við örnefnaskráningu sína Á fjórtánda þúsund örnefnum hefur verið safnað í Borgarfirði, þau skráð og gerð aðgengileg á vef Landmælinga Íslands Félag aldraðra í Borgarfirði hélt upp á 25 ára afmæli sitt í Brún síðastliðinn miðvikudag. Magnús Guðmundsson forstjóri Landmælinga Íslands (t.h.) veitti örnefnaskrá félagsins viðtöku. Í nefnd fyrir verkefnið voru nú síðustu árin þau Davíð Péturs- son, Ragnheiður Ásmundardóttir og Þorsteinn Þorsteinsson á Skálpastöðum, sem jafnramt var formaður.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.