Skessuhorn - 16.11.2016, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 201616
Líkt og áður var líf og fjör á Ár-
gangamóti ÍA sem haldið var í
Akraneshöllinni á laugardaginn.
Til leiks voru skráð 25 lið, 19 karla-
lið og sex kvennalið og hefur mótið
aldrei verið stærra. Af meðfylgjandi
myndum að dæma höfðu menn
engu gleymt. Góðir taktar sáust
og menn lögðu mikið á sig, jafn-
vel meira en stirðir vöðvar og liðir
þoldu. Hins vegar eru margir sem
hafa þrátt fyrir árin sem hlaðist hafa
upp náð að halda sér í fantaformi.
Þegar allir leikir höfðu verið
leiknir og úrslit mótsins lágu fyrir
var það lið árgangs 1978-80 sem
varð hlutskarpast í kvennaflokki og
nýliðarnir í árgangi 1986 sem báru
sigur úr býtum karlamegin. Að
kvöldi laugardagsins var svo hald-
in uppskeruhátíð Árgangamóts og
Reunion með skemmtidagskrá og
dansleik fram á nótt.
mm
Árgangamót ÍA í knattspyrnu
Lið árgangs 1978-80 sigraði í kvennaflokki á Árgangamóti ÍA. Hér taka
kempurnar á móti sigurlaununum á uppskeruhátíðinni. Ljósm. gbh.
Svipmynd frá Árgangamóti ÍA. Ljósm. jho.
Nýliðar árgangs 1986 stóðu uppi sem sigurvegarar í karlaflokki og fagna hér
innilega eftir að hafa veitt bikarnum viðtöku. Ljósm. gbh.
Félagar sem urðu Íslandsmeistarar karla með ÍA árið 2001. F.v. Kári Steinn
Reynisson, Gunnlaugur Jónsson, Pálmi Haraldsson og Hjörtur Júlíus Hjartarson.
ÍA tryggði sér titilinn á hádramatískan máta með 2-2 jafntefli gegn ÍBV í loka-
leik tímabilsins í Vestmannaeyjum. Eyjamenn sátu eftir með sárt ennið í öðru
sæti deildarinnar, jafnir ÍA að stigum en Skagamenn höfðu betri markatölu.
Allir fjórir léku þann leik og Kári Steinn skoraði fyrra mark ÍA. Þá varð Hjörtur
markakóngur mótsins með 15 mörk. Ljósm. gbh.Svipmynd frá Árgangamóti ÍA. Ljósm. jho.