Skessuhorn - 16.11.2016, Síða 28
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 201628
Vörur og þjónusta
Hönnun prentgripa
& alhliða prentþjónusta
Drei bréf - Boðsbréf
Ritgerðir - Skýrslur
Reikningar - Eyðublöð
Umslög - Bréfsefni
Fjölritunar- og
útgáfuþjónustan
Getum við
aðstoðað þig?
sími: 437 2360
olgeirhelgi@islandia.is
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
R E S T A U R A N T
Upplýsingar í síma: 430 6767
LAUSNIN HÖFÐASELI
Opnunartími er frá kl. 8:00-16:00
alla virka daga
Daglegar ferðir milli Reykjavíkur og Borgarness
Tvær ferðir í viku í sveitir Borgarfjarðar
Skrifstofan er opin mánudaga – föstudaga
kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.30
Sími 437-2030 - v.v@simnet.is
DAGLEGAR FERÐIR BORGARNES - REYKJAVÍK
www.skessuhorn.is
Þjónustuauglýsingar
Skessuhorns
Auglýsingasími:
433 5500
www.skessuhorn.is
Garðaþjónustan Sigur-Garðar
Tökum að okkur alla almenna skrúðgarðavinnu
Sindri Arnfjörð garðyrkjumaður - Laufskálum 311 Borgarbyggð
Netfang: sindri@vesturland.is - Vinnusími: 892-7663
Hellulagnir - Hleðsla - Þökulagnir - Jarðvegsskipti
Trjáklippingar - Gróðursetningar - Garðsláttur - Plöntusala
Þjónusta í yfir 25 ár
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
5
Það hefur gengið á ýmsu við upp-
haf byggingaframkvæmda á bygg-
ingareitum Borgarbrautar 57-59.
Skiptar skoðanir hafa verið hjá íbú-
um og fyrirtækjum um ágæti þeirr-
ar framkvæmdar sem um ræðir.
Breyting á deiliskipulagi svæðis-
ins hefur verið kærð og einnig hef-
ur veiting byggingarleyfis út á eldra
deiliskipulag verið kærð. Ferli þess-
ara framkvæmda, þ.e. hvað skipu-
lagsþáttinn varðar, virðist í fljótu
bragði vera hið mesta klúður, en
ekki er allt sem sýnist og því gott að
rifja upp feril skipulagsmála þessara
lóða sem nær meira en 10 ár aftur
í tímann.
Unnið var að deiliskipulagi fyrir
lóðirnar Borgarbraut 55-59 m.a. í
samstarfi við Borgarland ehf. og
var deiliskipulag fyrir lóðirnar sam-
þykkt árið 2007. Skipulagið gerir
ráð fyrir töluverðu byggingamagni
eða nýtingarhlutfalli allt að 1,75 að
meðtöldum bílageymslum. Skipu-
lagið mætti töluverðri andstöðu
meðal næstu nágranna lóðanna
á meðan vinna við það stóð yfir.
Við samþykkt deiliskipulagsins var
lagður grunnur að þeim væntingum
sem gera má til mögulegs bygging-
armagns á lóðunum og verðmæti
lóðanna byggist á þeim vænting-
um sem gera má á hverjum tíma til
þeirra bygginga sem mögulegar eru
samkvæmt gildandi skipulagi.
Lóðirnar á þessu svæði hafa skipt
um eigendur nokkrum sinnum síð-
an deiliskipulagið var samþykkt
og hefur verð í þeim viðskiptum
væntanlega tekið mið af því virði
sem byggingamagnið gaf vænting-
ar um á hverjum tíma. Núverandi
lóðarhafi er þar engin undantekn-
ing, hann hefur væntanleg tekið
ákvörðun um að fjárfesta í lóðunum
og byggt þá ákvörðun sína á gild-
andi deiliskipulagi.
Gildandi deiliskipulag nær yfir
lóðirnar Borgarbraut 55, 57 og 59
með tveimur byggingarreitum, þ.e.
Borgarbraut 55-57 í einum bygg-
ingarreit og Borgarbraut 59 í öðr-
um. Þessi skipting er eðlileg ef
horft er til þess að þegar skipulag-
ið var unnið átti Borgarland lóð-
ina Borgarbraut 59 og óskaði eft-
ir að deiliskipulagið yrði unnið út
frá þeirri lóð sem áformað var að
byggja á. Hinar lóðirnar, Borgar-
braut 55 og 57, voru í eigu annarra
aðila sem voru með starfsemi í fast-
eignunum á lóðunum. Þar sem ekki
er gott að taka einungis eina lóð í
deiliskipulagsvinnu þá var ákveðið
að taka allar þrjár lóðirnar og skipta
þeim í tvo byggingareiti. Þetta hef-
ur nú breyst þar sem allri starfsemi
í húsnæði á Borgarbraut 57 var
hætt og það hús rifið til að mögu-
legt væri að byggja nýtt hús á þeirri
lóð. Atvinnustarfsemi er hins vegar
rekin í húsnæði á Borgarbraut 55.
Því er það augljós kostur að gera
breytingar á gildandi deiliskipulagi
sem felast í því að sameina lóðir
Borgarbraut 57 og 59 í einn bygg-
ingarreit og hafa Borgarbraut 55 í
sér reit. Með þessu vinnst tvennt,
annars vegar fær sú starfsemi sem
er á Borgarbraut 55 frið til að vera
þar eins lengi og vilji er til hjá þeim
aðilum sem reka starfsemina sína
þar. Hins vegar næst þá að ljúka
byggingarframkvæmdum á Borgar-
braut 57 og 59 óháð því hvað gerist
á Borgarbraut 55. Það var því tekið
vel í hugmyndir núverandi lóðar-
hafa þegar hann viðraði hugmynd-
ir um þessar breytingar við sveitar-
stjórn Borgarbyggðar.
Þegar hafin var vinna við breyt-
ingar á deiliskipulaginu kom í ljós
að aðalskipulag Borgarbyggðar
2010-2022 sem samþykkt var árið
2010 kvað á um að nýtingarhlutfall
miðbæjarins væri 0,35-1. Það verð-
ur að teljast undarlegt, því vinnu
við aðalskipulagið lauk ca. þremur
árum eftir að deiliskipulag Borgar-
brautar 55-59 var samþykkt og var
þar með stefnumótandi fyrir þá
nýtingu sem vænta mætti á mið-
bæjarsvæðinu. Við nánari skoðun
var það skilningur sveitarfélagsins
að þetta nýtingarhlutfall ætti við
allt miðbæjarsvæðið en ekki ein-
stakar lóðir. Því var ráðist í að gera
breytingar á deiliskipulagi fyrir
lóðirnar Borgarbraut 55, 57 og 59,
án þess að breyta aðalskipulaginu í
ljósi þessarar túlkunar og spara þar
með vinnu og kostnað við breyt-
ingu á aðalskipulaginu. Þessu var
Borgarland ehf. ekki sammála og
kærði breytt deiliskipulag til úr-
skurðarnefndar skipulagsmála sem
úrskurðaði Borgarlandi í vil þann-
ig að breytt deiliskipulag var fellt
úr gildi sem leiddi af sér að þá tók
eldra deiliskipulag aftur gildi.
Aðalskipulag er stefnumótandi
fyrir nýtingu landssvæða og gilda
þau í allt að 12 ár. Aðalskipulag skal
ná yfir allt landssvæði innan hvers
sveitarfélags og í landmiklu sveitar-
félagi eins og Borgarbyggð þá er að-
alskipulagið mjög stórt og nær yfir
mikið landssvæði. Deiliskipulög ná
yfir minna svæði og eru með ná-
kvæmari upplýsingum um hvað eigi
að vera á tilteknu svæði og þannig
eru deiliskipulög stefnumótandi
um nýtingu þeirra einstöku svæða
sem þau ná yfir. Deiliskipulag skal
byggt á aðalskipulagi sveitarfélags-
ins samkvæmt 3. mgr. 2 gr. skipu-
lags- og byggingarlaga nr.73/1997.
Aðalskipulag sem unnið er og sam-
þykkt á ákveðnum tímapunkti ætti
jafnframt að taka mið af þeim deili-
skipulögum sem í gildi eru á þeim
tíma sem aðalskipulag er unnið
samkvæmt 7. mgr. 9 gr. skipulags-
og byggingarlaga nr.73/1997. Úr-
skurðarnefnd skipulagsmála tekur
þetta ekki til skoðunar í úrskurði
sínum heldur túlkar grein úr aðal-
skipulaginu mjög þröngt í úrskurð-
inum eins og kemur hér fram:
„Í Aðalskipulagi Borgarbyggð-
ar 2010-2022
er umrætt svæði
skilgreint sem
miðsvæði (M) og
er þar heimiluð blönduð landnotk-
un íbúða, þjónustustofnana, versl-
unar og þjónustu. Í töflu aðalskipu-
lagsins um skilgreind svæði innan
Borgarness er tekið fram að umrætt
svæði sé sex hektarar að stærð með
nýtingarhlutfall 0,35-1,0. Segir síð-
an í almennri umfjöllun um mið-
svæðið að þar sem að nokkru leyti
sé um þéttingu í byggðu umhverfi
að ræða, megi reikna með að nýt-
ingarhlutfall geti sumstaðar far-
ið upp undir 1,0. Af greindri um-
fjöllun verður ekki annað ráðið en
að verið sé í nefndri töflu að vísa
til nýtingarhlutfalls fyrir einstakar
lóðir eða götureiti innan hins skil-
greinda miðsvæðis, en skilgreint
nýtingarhlutfall eigi ekki við um
miðsvæðið í heild eins og sveitar-
félagið byggir á.“
Ekki þýðir að deila við dómarann
þó að hægt sé að vera honum ósam-
mála. Dómarinn hefur úrskurðað
og því er ekkert annað að gera fyrir
Borgarbyggð en að gera breytingar
á aðalskipulagi þannig að það sam-
rýmist þeim deiliskipulögum sem
þegar eru til staðar á Borgarbraut
55-59. Þegar það er búið verður
hægt að gera nauðsynlegar breyt-
ingar á deiliskipulaginu. Þannig
verður mögulegt að klára uppbygg-
ingu á 57 og 59, sú starfsemi sem
fyrir er á Borgarbraut 55 fær frið og
íbúar Borgarbyggðar fá fullbyggð-
an byggingareit með íbúðum og at-
vinnutækifærum sem breytir ásýnd
miðbæjarins til hins betra.
Eftir situr hins vegar sú spurning
hvaða hagsmuni Kaupfélag Borg-
firðinga, eigandi Borgarlands ehf.,
telur sig vera að verja með þessari
andstöðu sinni á framkvæmdum sem
byggjast m.a. á þeirra eigin vinnu?
Borgarnesi, 10. nóvember 2016,
Sigurður Guðmundsson.
Höf. er íbúi og skattgreiðandi í
Borgarbyggð.
Sagan endalausa Borgarbraut 55-59
Svæðið sem um ræðir áður en framkvæmdir hófust á lóðunum.
Pennagrein