Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 1. tbl. 20. árg. 4. janúar 2017 - kr. 750 í lausasölu
Gjaldeyrir.is er
tímasparnaður fyrir alla
Viðskiptavinir allra banka geta gripið með sér
ferðagjaldeyrinn á Keflavíkurflugvelli
Fluconazol
ratiopharm
Fæst án lyfseðils
Eru bólgur og
verkir að hrjá þig?
Verkir í liðum?
Rafræn áskrift
Ný áskriftarleið
Pantaðu núna
Svunta
www.smaprent.is
Frá upphafi útgáfu hefur Skessu-
horn staðið fyrir útnefningu á Vest-
lendingi ársins. Valið fer þannig
fram að kallað er eftir tilnefning-
um íbúa um þá sem þykja verðug-
ir þess að hljóta þetta sæmdarheiti
fyrir árangur í starfi eða leik. Að
þessu sinni bárust tilnefningar um
22 einstaklinga. Vestlendingur árs-
ins 2016 er Andrea Þ. Björnsdótt-
ir á Eystri-Leirárgörðum í Hval-
fjarðarsveit. Hún er tilnefnd fyr-
ir einstaka ósérhlífni við að koma
til aðstoðar þeim sem þess þurfa.
Hún hefur m.a. stutt við söfnun
til handa Englaforeldrum og fyr-
ir sjúka. Yfirleitt fjármagnar hún
söfnun sína með því að kaupa
lakkrís og önnur sætindi í heild-
sölu og selja á mörkuðum og eft-
ir pöntunum. Þannig hefur hún nú
stutt við fjölda fólks með beinum
og óbeinum hætti. Kjörorð hennar
eru: „Það er ljúft að hjálpa.“
Þeir sem urðu í tíu efstu sætum
í kjöri á Vestlendingi ársins eru í
stafrófsröð: Andrea Þ. Björns-
dóttir, Bjarki Freyr Örvarsson í
Ólafsvík, Bjarni Guðmundsson á
Hvanneyri, Bryndís og Sigurð-
ur á Miðhrauni í Eyja- og Mikla-
holtshreppi, Hanna Jónsdóttir
þroskaþjálfi í Stykkishólmi, Hlédís
Sveinsdóttir frumkvöðull á Akra-
nesi, Guðrún Jónsdóttir safn-
stjóri í Borgarnesi, Ingólfur Árna-
son forstjóri Skagans á Akranesi,
Sigursteinn Sigurðsson arkitekt í
Borgarnesi og forsvarsmaður Vit-
brigða Vesturlands og Unnsteinn
Þorsteinsson sjúkraflutningamað-
ur í Borgarnesi.
Skessuhorn óskar öllu þessu fólki
til hamingju. Rætt er við Andreu Þ
Björnsdóttur á bls. 10.
mm
Andrea Björnsdóttir er Vestlendingur ársins 2016
Andrea á Eystri-Leirárgörðum í Hvalfjarðarsveit er Vestlendingur ársins 2016.
Hlaupahópurinn Skagaskokk var meðal þátttakenda í hinu árlega Gamlárshlaupi ÍA sem hlaupið var á gamlársdag.
Hópurinn skemmti sér vel í hlaupinu og að venju var hlaupið í búningum. Mátti því sjá býflugu, Bangsímon, Super Mario og
bróður hans Luigi á hlaupum um bæinn, ásamt fleiri furðuklæddum Akurnesingum. Ljósm. Lilja Kristófersdóttir.
Fyrsta barn
ársins á Heil-
brigðisstofn-
un Vestur-
lands á Akra-
nesi kom í
heiminn 2. janúar klukkan 18:18. Það
er myndar stúlka, vóg 3.508 grömm
og er 51 sentímetri að lengd. Þessi
fyrsti Vestlendingur ársins er Ak-
urnesingur en foreldrar stúlkunn-
ar eru María Sigríður Kjartansdótt-
ir og Gunnar Þóroddsson. Stúlkan
er þeirra fjórða barn, en fyrsta stúlk-
an í hópnum. Að sögn móðurinnar lét
litla daman bíða örlítið eftir sér. „Ég
ætlaði að vera búin að eiga hana fyr-
ir jól. Ég átti að fara í gangsetningu
22. desember en það gekk ekki eftir
og ég var sett í það að bíða - og beið
svona lengi,“ segir móðirin en sett-
ur fæðingardagur var 28. desemb-
er. Hún segir fæðinguna hafa gengið
lygilega vel. „Ég var komin á deildina
um korter yfir fjögur og tveimur tím-
um síðar var hún fædd,“ segir María
Sigríður. Bæði móður og barni heils-
ast vel og gengur allt eins og í sögu.
„Hún er vær og góð, gerir ekkert ann-
að en að sofa og drekka,“ segir móðir-
in nýbakaða í samtali við Skessuhorn.
Á síðasta ári fæddist 291 barn á
fæðingadeildinni á Akranesi. Lengi
stefndi í að börnin yrðu yfir 300 á
árinu, en fæðingar voru óvenjulega
fáar í árslok. Í hittiðfyrra fæddust 259
börn á Akranesi. Metárið var hinsveg-
ar 2010 þegar 358 börn komu í heim-
inn á Akranesi. grþ
Skagastúlka
fyrsta barn ársins
Theodór Kr. Þórð-
arson, Teddi lögga,
hóf störf sem hér-
aðslögregluþjónn
í Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu fyr-
ir tæpum fjör-
tíu árum. Nú er hins vegar að nálg-
ast starfslok. Hann yfirgaf skrifstofuna
á stöðinni í Borgarnesi síðastliðinn
fimmtudag, en hann er á leið í frí þar
til hann mun formlega láta af störf-
um í marsmánuði. Skessuhorn ræddi
við Tedda um starfsferilinn, framtíð-
ina og löggæslumál almennt auk þess
sem hann leyfði nokkrum sögum frá
liðinni tíð að fljóta með. Sjá bls. 12-13.
kgk
Teddi kveður
lögguna