Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 15
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2017 15 Við útskriftarhátíð í Fjölbrauta- skóla Snæfellinga þriðjudaginn 20. desember síðastliðinn var skól- anum veittur styrkur að upphæð 2,5 milljónir króna frá Þróunar- félagi Snæfellinga. Er hann ætlað- ur til að efla kennslu og þróunar- starf sem stuðlað getur að aukinni menntun og fleiri atvinnutækifær- um í sjávarútvegi á Snæfellsnesi. Það var Sturla Böðvarsson, bæj- arstjóri í Stykkishólmi og fram- kvæmdastjóri Þróunarfélagsins, sem tilkynnti við brautskráningu nemenda FSN að styrkurinn yrði lagður inn á reikning skólans þann sama dag. Óskaði hann forsvars- mönnum skólans til hamingju með styrkinn og skólameistara, kenn- urum og nemendum velfarnaðar í námi og starfi. Aðdragandi styrkveitingarinnar er sá að Þróunarfélag Snæfellinga var á sínum tíma stofnað að frum- kvæði forystumanna úr atvinnulíf- inu til þess að efla þróun og fram- farir í samfélaginu á Snæfellsnesi. Þegar sveitarfélögin tóku ákvörð- un um að stofna Svæðisgarð Snæ- fellsness var ákveðið að gera hlé á starfsemi félagsins, en stjórn þess ákvað að eignir þess skyldu nýtt- ar til að styrkja og styðja við Fjöl- brautaskóla Snæfellinga. Var svo- felld tillaga stjórnar þróunar- félagsins samþykkt á síðasta fundi þess. „Aðalfundur Þróunarfélags Snæfellinga samþykkir að veita Fjölbrautaskóla Snæfellinga styrk að upphæð kr. 2.500.000 og verði styrkurinn ætlaður til þess að efla kennslu og þróunarstarf sem stuðli að aukinni menntun og fjölgun at- vinnutækifæra í sjávarútvegi á Snæ- fellsnesi. Jafnframt verði leitað eft- ir samstarfi við Útvegsmannafélag Snæfellinga um að það félag veiti einnig styrk til FSN í sama til- gangi.“ Fisktæknibraut er draumurinn Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari veitti styrknum við- töku fyrir hönd FSN. Hún var að vonum ánægð með styrkinn þeg- ar blaðamaður Skessuhorns heyrði í henni hljóðið. „Okkur þykir af- skaplega ánægjulegt að fá þenn- an styrk, það segir sig sjálft að þessi styrkur er góð búbót,“ seg- ir Hrafnhildur. Aðspurð segir hún ekki búið að ákveða nákvæmlega hvernig styrknum verður varið. „Ég sé fyrir mér að peningarnir verði nýttir til uppbyggingar ein- hvers konar náms sem tengist sjáv- arútveginum og atvinnugreinun- um á Nesinu, eins og segir til um í þeim tilmælum sem styrknum fylgdu. Þegar skólinn var stofnað- ur á sínum tíma vonaðist fólk ein- mitt til að hann myndi tengjast at- vinnulífinu sterkari böndum en hefur tekist að gera enn sem kom- ið er, af ýmsum ástæðum,“ seg- ir Hrafnhildur en tekur það fram að ákvörðunin sé vitanlega ekki hennar einnar að taka. Hún verði tekin í samráði við aðra stjórnend- ur skólans, skólanefnd og fulltrúa atvinnugreinarinnar. Þegar hafi verið rætt óformlega um hvaða leið skuli farin til að nýta styrkinn. Segir Hrafnhildur að á næstunni verði fundað um málið. Fisktæknibraut er draumurinn „Draumurinn er að koma á fót fisktæknibraut. Sú hugmynd hefur lengi verið í umræðunni en aldrei orðið af henni, af ýmsum ástæðum. En ef það verður ákveðið að búa til nýja námsbraut þá fer þessi styrkur langt með að mæta þeim kostnaði sem fylgir undirbúningnum,“ seg- ir Hrafnhildur. „Það er nefnilega fullt af starfstækifærum í sjávarút- vegi sem ég er ekki viss um að nem- endur geri sér endilega grein fyrir og sjávarútveginn vantar menntað fólk. Hvort sem niðurstaðan verð- ur alveg ný braut eða nokkur nám- skeið þá verðum við ánægð ef við getum komið á einhverju samstarfi við atvinnugreinina til frambúðar, en á fundum mínum með fulltrú- um fyrirtækja í sjávarútvegi hef ég aðeins fundið fyrir velvild í okkar garð,“ bætir hún við. Aðspurð segir hún afar ólíklegt að hægt verði að bjóða upp á ný námskeið tengd sjávarútvegi á vor- önn, hvað þá innrita nemendur á nýja námsbraut þar sem styrkur- inn er svo nýtilkominn og enn sé eftir að ákveða nákvæmlega hvern- ig honum verður varið. „En ég á von á því að hægt verði að bjóða nemendum upp á ný námskeið eða nám á nýrri fisktæknibraut næsta haust,“ segir Hrafnhildur Hall- varðsdóttir að lokum. kgk Þróunarfélag Snæfellinga veitti FSN veglegan styrk Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi, gefur út dagatal fyrir árið 2017 með mynd- um af leiðsöguhundum. Tilgang- urinn með útgáfu þess er að fjár- magna kaup og þjálfun leiðasögu- hunda fyrir blint fólk. „Blindra- félagið telur mikilvægt að tryggja stöðugt framboð leiðsöguhunda fyrir blinda hér á landi, eins og raunin er í nágrannalöndum okk- ar, enda hafa þeir margsannað mik- ilvægi sitt. Dagatalið er sent heim til allra velunnara félagsins auk þess er hægt að fá það keypt hjá Blindra- félaginu,“ segir í tilkynningu. Á Íslandi eru einungis starfandi fimm leiðsöguhundar fyrir blinda fyrir tilstuðlan Blindrafélagsins og er þörf fyrir mun fleiri. Þjálfun leiðsöguhunds fyrir blindan ein- stakling er mjög sérhæfð og tíma- frek. Hver leiðsöguhundur getur unnið á bilinu 8-10 ár og allan þann tíma, á hverjum einasta degi, bæt- ir hundurinn lífsgæði notanda síns umtalsvert. Dagatalið er með myndum af leiðsöguhundunum Oliver og Se- bastian. Sebastian er fyrsti leið- söguhundurinn sem er fæddur og þjálfaður að öllu leiti á Íslandi þar til hann tók til starfa á Patreks- firði sem fullgildur leiðsöguhund- ur. Oliver er hinsvegar fæddur og þjálfaður í Svíþjóð. Hann hóf störf í Reykjavík á síðasta ári. Hægt er að kaupa dagatalið í vefverslun Blindrafélagsins (www. blind.is) og í síma 525 0000. Daga- talið kostar 2.400 krónur. mm Hrafnhildur Hallvarðsdóttir, skólameistari FSN, tekur við styrknum úr hendi Sturlu Böðvarssonar, framkvæmdastjóra Þróunarfélags Snæfellinga og bæjarstjóra í Stykkishólmi. Ljósm. tfk. Leiðsöguhundadagatal Blindrafélagsins komið út Bæjarstjórn Akraneskaupstað- ar samþykkti á fundi sínum í des- ember að hefja gjaldtöku af gestum í Akranesvita, en fram til þessa hef- ur ekki verið innheimtur aðgangs- eyrir. Áfram verður þó ókeypis fyr- ir börn, ellilífeyrisþega og öryrkja, sem og skólahópa í fylgd með kenn- urum. Aðgangseyri verður þó stillt í hóf en almennt gjald verður 300 krónur og byrjaði innheimta um áramótin. 5.000 krónur kostar nú fyrir móttöku hópa með leiðsögn á opnunartíma og 15 þúsund krón- ur fyrir móttöku hópa og leiðsögn utan opnunartíma. Mikill og vaxandi straumur ferðafólks er í Akranesvita og þar var í haust byrjað með fasta viðveru vitavarðar og jafnframt er þetta í fyrsta skipti sem vitinn er opinn yfir vetrartímann. Síðan 1. október hafa gestir verið um fjögur þúsund. Allt árið í fyrra voru gestir í vitann 12-13 þúsund. Fjölgunin á þessu ári er veruleg að sögn Hilmars Sig- valdasonar vitavarðar. Blaðamaður Skessuhorns átti viðkomu í vitan- um síðastliðinn miðvikudag, en þá var suðvestan hávaðarok á Breið- inni. Þrátt fyrir það komu fjórir að- skildir hópar ferðafólks í vitann á hálftíma. Voru það erlendir ferða- menn frá Asíu, Austurríki og Amer- íku, flestir á bílaleigubílum en einn hópurinn með íslenskan fararstjóra. Áður en deginum lauk höfðu gest- ir frá átta þjóðlöndum haft þar við- komu. mm Hefja gjaldtöku í Akranesvita Mikið brim var út af Breiðinni síðastliðinn miðvikudag og steytti á skerinu utan við gamla vitann. Ferðafólki þótti stórbrotið að fylgjast með hvernig brimið skall á landi. Hilmar Sigvaldason er vitavörður í Akranesvita.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.