Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 13

Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2017 13 vinnu við fjölmörg verkefni og rann- sóknir, bara með því að hleypa fleir- um að en þeim sem geta hlaupið og gert hundrað armbeygjur. Við eig- um að geta verið með sérfræðinga í vinnu innan lögreglunnar til að vinna afmörkuð störf,“ segir hann og bæt- ir því við að þessi hugsun eigi við um margt, bæði innan lögreglunnar og annars staðar. „Okkur finnst oft eins og við séum með einu réttu leiðina til að gera hlutina. Allt í einu vökn- um við síðan upp við það að annars staðar á jarðarkúlunni eru hlutirnir gerðir öðruvísi og á mun hagkvæm- ari máta. Þrátt fyrir allar upplýsing- arnar sem fylgja þessum tímum sem við lifum á þá er líka nokkur íhalds- semi og þröngsýni. Verst þykir mér þegar menn eru að reyna að finna upp hjólið. Þá verður mér oft hugsað til Monty Python, þegar þeir sögðu söguna af manninum sem fann ein- mitt upp nýtt hjól. Hjólið hans var ferkantað og þegar hann var spurður af hverju hann hefði það svona í lag- inu, en ekki hringlaga eins og annars staðar, þá svaraði hann því til að það væri til þess að hestvagninn rynni ekki af stað í brekku. Ekki kæmi til greina að breyta því þó vagninn væri dálítið hastur,“ segir Teddi. Dúfnaveislan eftirminnileg Samhliða starfi sínu sem lögreglu- maður hefur Teddi alla tíð verið áberandi í félagsstarfi hvers kon- ar í sínum heimabæ, ekki síst leik- deild Umf. Skallagríms. „Það hef- ur alltaf verið stutt í leikstarfið. Ég byrjaði að leika í gagnfræðaskóla og hef alltaf verið viðloðandi leikstarf á einn eða annan hátt, hvort sem er á sviðinu eða á bakvið tjöldin,“ segir Teddi en viðurkennir að það hafi hreint ekki farið vel saman með starfi vaktavinnandi lögreglumanns. „Það var oft erfitt en gekk líka oft vel upp, en það átti svo sem líka við um uppsetningarnar,“ segir hann og brosir. „Í svona áhugamennsku er áberandi að allir eru allt í öllu og það tekst misjafnlega til,“ segir hann. „En stundum þá finnur mað- ur bara að „nú er lag“ eins og sagt er og þá gengur allt upp. Eins og til dæmis í Dúfnaveislunni eftir Hall- dór Laxness sem var sett á svið hér 1984. Þá var valinn maður í hverju rúmi. Ég varð þess heiðurs aðnjót- andi að leika þar með ungum og efnilegum leikara, Ingvari E. Sig- urðssyni sem er í dag minn uppá- halds leikari. Hann var þá bara ung- lingur en við sáum strax að þar fór mikill náttúrutalent,“ segir Teddi. „Þetta small allt saman og á end- anum var þetta valin sýning ársins hjá Bandalagi íslenskra leikfélaga og okkur boðið að sýna í Iðnó á listahá- tíð. Okkur var mikill heiður sýnd- ur með því boði, með forsetann og nóbelsskáldið á fremsta bekk,“ bæt- ir hann við. Teddi hefur orð á því að ef til vill sé hluti af ástæðu þess að hann hafi alla tíð verið virkur í félagsstarfi sá að þrátt fyrir allt þá sé Borgarnes ekki fjölmennara en það er. „Mað- ur verður að láta hlutina gerast ef mann langar til þess að gera þá. Það er svoleiðis sem maður hefur, í góðri samvinnu og samstarfi við aðra, lát- ið ýmislegt gerast og haft gaman af,“ segir hann og hefur með það hugar- far að vopni komið einnig að því að endurvekja Smábátafélagið Þor- móð, stofnun Flugáhugaklúbbsins Kára, starfi Stangveiðifélags Borg- arness, Skotfélags Vesturlands og svo mætti lengi telja. Sem stendur situr Teddi í ritnefnd Sögu Borgar- ness, sem gefa á út í mars auk þess að vinna að grein í næstu Borgfirð- ingabók. Spurður hvað framtíðin beri í skauti sér kveðst hann ætla að einbeita sér að ritun greinarinn- ar næstu vikur. Hvað taki við að því loknu verði bara að koma í ljós. Vill fyrirbyggjandi löggæslu En þegar litið er til framtíðar í lög- gæslumálum er Teddi þeirrar skoð- unar að lögreglan eigi að leggja meiri áherslu á fyrirbyggjandi lög- gæslu. „Ef við stundum fyrirbyggj- andi löggæslu þá verða færri slys. Það er nú bara þannig að ekki eiga allir ökumenn heima í umferðinni en til þess að hægt sé að taka þá úr umferð þarf að fylgjast með. Eftir- litið þarf að efla og það þarf að vera stöðugt,“ segir hann og vill enn fremur að lögreglan taki tæknina í þjónustu sína til þess. „Tæknin er til staðar að hluta til. Það eru til græjur sem eru svipaðar og hraðamynda- vélarnar. Þær greina bílnúmer og lesa sjálfvirt út úr því. Ef það er búið að biðja tækið að leita að ákveðnum upplýsingum þá lætur tækið vita af því. Er ökutækið stolið? Hefur öku- tækið oft sést nálægt vettvangi inn- brota? Ef já, þá sendir tækið boð um það,“ segir Teddi. „Þetta er víða gert en ekki hér. Sé þessari tækni rétt beitt þá er hún eins og hvert annað tæki til að auðvelda starf lög- reglumannsins. Ef við eflum fyrir- byggjandi löggæslu þá má spara til lengri tíma litið. En þá verða menn að þola að borga meira í lögregluna á næstunni til að fá samfélagslegan sparnað til framtíðar,“ segir Teddi. Sameiningin til bóta Hann segir framlög til löggæslu- mála aðeins hafa aukist að undan- förnu frá því sem var þegar þau voru minnst. Enn vanti hins vegar mik- ið upp á til að hlutirnir geti verið í lagi. Spurður hvernig staðan sé inn- an embættis Lögreglunnar á Vestur- landi segir Teddi að þar sé allt kom- ið á rétt ról. Sameiningin hafi ver- ið til bóta, ekki síst vegna þess að þá voru sýslumaður og lögreglustjóri aðskildir. „Hér áður var sýslumaður líka yfirmaður lögreglunnar. Hann var því í tvöföldu starfi og ég held að reynslan hafi kennt mönnum það að sýslumenn voru mun oftar í sýslu- mannsbúningnum en hlutverki lög- reglustjóra og höfðu enga sérstaka þekkingu á löggæslunni. Að aðskilja rekstur embættanna ýtti undir fag- mennsku innan lögreglunnar,“ seg- ir hann. „Þar að auki gaf þessi sam- eining allra lögregluembætta á Vest- urlandi undir einn hatt okkur mun meiri slagkraft með mannskap og auðvelt að flytja menn til og kalla eftir liðsauka frá einum stað ef eitt- hvað kemur upp á annars staðar,“ segir Teddi. Vantar heildstæða framtíðarsýn En lengi má gera betur. Aðspurður hvað hann telji þurfa til að löggæslan geti orðið með þeim hætti sem hann vildi helst rifjar Teddi upp fund sem hann átti ásamt öðrum þáverandi stjórnarmönnum í stjórn Félags yfirlögregluþjóna með Birni Bjarna- syni, þáverandi dómsmálaráðherra. „Félagið var nú lengi kallað „Elsku- vinafélagið“, en það er önnur saga. Við lentum sem sagt fjórir úr Elsku- vinafélaginu á fundi með Birni, þar sem var verið að ræða löggæslumál á Íslandi. Hann var þarna að kalla eftir okkar sjónarmiðum en kvaðst ekki vongóður um að hugmynd- irnar hlytu brautargengi í þinginu. Á endanum sagði hann bara hreint út: „Þið verðið að átta ykkur á því að enginn áhugi er á löggæslumál- um á Alþingi Íslendinga.“ Þetta var sem blaut tuska framan í okkur og þessum raunveruleika er einhvern veginn aldrei lýst,“ segir Teddi og segir að meira og minna allan hans feril sem lögregluþjónn, þar af sem stjórnandi frá árinu 2004, hafi aldrei verið mikill áhugi á löggæslu í þinginu. „Löggjafinn þarf að vera meðvitaður um ástandið og mynda sér einhverja heildstæða sýn á það hvernig löggæslumál eiga að þró- ast í landinu. Mynda stefnu til lengri tíma en eins kjörtímabils og haga málunum þannig að það verði sæmi- leg sátt um stefnuna og það sé síðan ekkert verið að krukka í henni. Al- veg eins og löndin í kringum okkur hafa gert í ákveðnum málum. Þar er bara í gildi stefna sem allir flokkar geta sætt sig við og eru tilbúnir að halda sig við,“ segir hann. „Hér hef- ur mér oft þótt löggæslumálin vera hálfgerð afgangsstærð hjá ráðuneyt- inu og skort á vilja til að skoða þessi mál til framtíðar. Það þarf að breyt- ast,“ segir Teddi lögga að lokum. kgk/ Ljósm. úr einkasafni Theodórs Kr. Þórðarsonar. Helstu stjórnendur Lögreglunnar í Borgarfirði og Dölum í hátíðarbúningi fyrir utan lögreglustöðina í Borgarnesi árið 2012. F.v. Teddi yfirlögregluþjónn, Stefán Skarphéðinsson þáverandi sýslumaður og lögreglustjóri ásamt Ómari Jónssyni. Í umferðarfræðslu og reiðhjólaskoðun í Heiðarskóla síðasta vor. „Það var einn af ánægjuþáttum lögreglustarfsins að fá að vera um langt skeið löggan sem heimsótti skólabörnin, ræddi um umferðarreglurnar og skoðaði reiðhjólin,“ segir Teddi. Teddi og María Erla Geirsdóttir, eiginkona hans, ásamt sonunum. F.v. María Erla, Eiríkur Þór, Geir Konráð, Árni Ívar, Björn og loks Teddi. Teddi í hlutverki Gvendó í Dúfnaveislunni eftir Halldór Laxness sem leikdeild Umf. Skallagríms færði á fjalirnar árið 1984. Á flugi með föður sínum, Dodda í Dal. Með Hreggviði Hreggviðssyni til sjós.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.