Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2017 11
„Hvernig fannst þér
áramótaskaupið?“
Spurning
vikunnar
(spurt á Akranesi)
Auður Sæmundsdóttir:
„Mér fannst það alveg skikkan-
legt, ég held að það sé rétta orð-
ið.“
Ragnheiður Guðmundsdóttir:
„Skaupið var lélegt.“
Jón Hjálmarsson:
„Mér fannst það frekar lélegt.“
Árni Bragason:
„Ég horfði ekki á skaupið vegna
þess ég svaf það af mér. Ég sofn-
aði í sófanum yfir íþróttaþætti
þarna á gamlárskvöld og svo
þegar ég vaknaði var bara allt
búið.“
Klettagörðum 15 | 525 7700 | flytjandi.is
DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ
VÖRUR UM ALLT LAND
Eimskip Flytjandi veitir samræmda flutningaþjónustu
um land allt og eru áfangastaðirnir 80 talsins.
Karlakórinn Söngbræður heldur sína árlegu
þjóðlegu veislu í Þinghamri, Varmalandi,
laugardaginn 14. janúar 2017 kl. 20:00.
Á matseðli verða: Svið frá Fjallalambi, heit og köld.
Saltað hrossakjöt. Meðlæti: rófustappa og kartöflumús.
Til skemmtunar verður söngur
Söngbræðra og hagyrðingar.
Hljómsveit kórsins leikur undir fjöldasöng.
Miðaverð kr. 5000 - posi á staðnum.
Miðapantanir í síma 894-9535 eða 892-8882 fyrir
kl. 22:00 fimmtudaginn 12. janúar 2017.
MATARVEISLA &
SKEMMTIKVÖLD
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Úrskurðarnefnd umhverfis- og
auðlindamála (ÚUA) kvað á Þor-
láksmessu upp úrskurð þar sem
byggingarleyfi er fellt úr gildi fyr-
ir hótelbyggingu á lóðinni Borgar-
braut 59 í Borgarnesi. Framvæmd-
ir hófust fyrr á þessu ári á lóðinni
og er búið að reisa hálfa aðra hæð
úr forsteyptum einingum ofan á
jarðahæð hússins. Framkvæmd-
ir verða því stöðvaðar en í byrjun
þessarar viku var þó unnið við að
bæta tryggingar á lausum eining-
um sem búið var að reisa á annarri
hæð hússins. Meðfylgjandi mynd
var tekin síðastliðinn föstudag og
á henni sést að húseiningar voru
ekki nægjanlega vel tryggðar fyrir
nokkurra vikna eða mánaða stöðv-
un framkvæmda.
Kærendur til ÚUA voru eig-
endur fasteignar í nágrenninu, við
Kveldúlfsgötu 2a. Nefndin kemst
að þeirri niðurstöðu að hið kærða
byggingarleyfi væri ekki í samræmi
við landnotkun gildandi deiliskipu-
lags og verði því ekki hjá því kom-
ist að fella byggingarleyfið úr gildi.
Úrskurðarorð eru: „Felld er úr
gildi ákvörðun byggingarfulltrúa
Borgarbyggðar frá 3. október 2016
um að samþykkja leyfi til að byggja
59 herbergja hótelbyggingu, opinn
bílakjallara og tæknirými í kjallara,
á lóð nr. 59 við Borgarbraut.“
Í úrskurði nefndarinnar er for-
saga málsins rakin stuttlega. Þar
segir m.a: „Sveitarstjórn Borgar-
byggðar samþykkti á fundi hinn 14.
apríl 2016 breytt deiliskipulag fyrir
lóðirnar nr. 55-59 við Borgarbraut.
Hinn 16. september sl. veitti bygg-
inarfulltrúi Borgarbyggðar bygg-
ingarleyfi fyrir framkvæmdum á
lóð nr. 57-59 við Borgarbraut, á
grundvelli nefndrar deiliskipulags-
breytingar. Með úrskurði úrskurð-
arnernefndar umhverfis- og auð-
lindamála, uppkveðnum 23. sept-
ember 2016, var fyrrgreind skipu-
lagsákvörðun felld úr gildi þar sem
hún var ekki talin vera í samræmi
við gildandi aðalskipulag Borgar-
byggðar. Í kjölfar ógildingar skipu-
lagsbreytingarinnar samþykkti
byggingarfulltrúi á fundi sínum 3.
október 2016 að veita byggingar-
leyfi fyrir 59 herbergja hótelbygg-
ingu, á lóðinni Borgarbraut 59 með
opinni bílageymslu og tæknirými í
kjallara. Með bréfi byggingarfull-
trúa, dags. 30. nóvember 2016, var
hið fyrra byggingarleyfi, sem tók
til sameinaðrar lóðar Borgarbraut-
ar 57-59, afturkallað.“
Nýtt skipulag
áður en framkvæmdir
hefjast að nýju
Gunnlaugur A Júlíusson sveitar-
stjóri Borgarbyggðar segir í sam-
tali við Skessuhorn að fram-
kvæmdir hafi nú þegar stöðvast við
hótelbygginguna að öðru leyti en
því að í vikubyrjun var unnið við
að tryggja festingar þeirra ein-
inga sem búið var að reisa. Sam-
þykkt var 22. desember síðastlið-
inn að auglýsa nýtt deiliskipulag og
aðalskipulag fyrir Miðsvæði Borg-
arness. Samkvæmt skipulagslögum
Byggingarleyfi ógilt fyrir
hótelbyggingu í Borgarnesi
tekur auglýsingaferli að lágmarki
sex vikur auk einhvers viðbótar-
tíma og fara framkvæmdir ekki af
stað á nýjan leik fyrr en nýtt skipu-
lag hefur tekið gildi fyrir svæðið.
mm
Svipmynd af húsinu við Borgarbraut 59 frá því síðastliðinn föstudag, en framkvæmdum hefur nú verið hætt. Ljósm. kgk.