Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2017 21
Krossgáta Skessuhorns
Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að leysa. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið:
krossgata@skessuhorn.is fyrir klukkan 15 á mánudögum. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja
með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkju-
braut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á föstudegi). Dregið verður úr réttum innsend-
um lausnum og fær vinningshafinn bókargjöf frá Skessuhorni; „Pétrísk íslensk orðabók með alfræðiívafi,“
eftir sr. Pétur Þorsteinsson.
Lausn á jólakrossgátunni verður birt í næstu viku ásamt nafni vinningshafa.
Rödd
Tónn
Skyld
Mörk
Reyta
Fræg
Ker
Fámáll
Reiður
50
Svik
Tákn
Titill
Kona
Þung
Læti
Ná-
kvæm
5
Duft
Lesið
Dvelur
Lá-
deyða
Sigti
Tína
saman
Mynd-
un
Veisla
2016
2017
Hólmi
Mjöðm
Ugga
Sæla
Núna
Lummu
Jaðar
Rigsa
Blóma-
rósir
Ofur
Gola
Þáttur
Ekkert
Korn
Mauk
Tvíhlj.
Sóar
Bein
Stúlka
Ung-
dómur
Kvað
Brum
Vær
Hress
Bylgja
Form
Sonur
Meðal
1 9 Dreif
Góður
Dropi
Tölur
Suddi
Ras
Sat
Áta
Loga
Kann
Tónn
Assa
Kvika
For-
faðir
Utan
Ískrar
Önugur
Bardagi
Mjög
Skjól
Klæði
Ráð-
vandur
8 6
Svefn
Örn
Kl. 3
Áa
Kæpan
Mas
Bragur
Brá
Mjöður
Tautar
Kjánar
3
Tíu
Tímabil
Sund
4 Utan
Fag
Eðli
Hætta
Tangi
Alltaf
Toppa
Ógn
Vein
Á fæti
Æfð
Lokkar
7
Óttast
Þófi
Fæða
Ókunn
Gort
Óregla
2
1 2 3 4 5 6 7 8 9
Nú um áramótin hófst að nýju lestr-
arátak Ævars vísindamanns. Átakið
hefur verið haldið tvisvar sinnum
áður með þeim árangri að yfir 114
þúsund bækur voru lesnar. Því þótti
Ævari Þór, leikara og rithöfundi,
ærin ástæða til að halda áfram.
Átakið stendur til 1. mars 2017 og
er fyrir alla krakka í 1.-7. bekk. Í lok
átaksins verða dregin út nöfn fimm
barna og fá þau í verðlaun að verða
persónur í stórhættulegri ævintýra-
bók eftir Ævar (Bernskubrek Æv-
ars vísindamanns 3: Gestir utan úr
geimnum) sem kemur út með vor-
inu hjá Forlaginu. „Þetta er lestr-
arátak gert af bókaormi, til að búa
til nýja bókaorma - en það er dýra-
tegund sem má alls ekki deyja út,“
segir Ævar.
Lestrarátakið virkar þannig að
fyrir hverjar þrjár bækur sem nem-
endur í 1. - 7. bekk lesa fylla þeir
út miða á www.visindamadur.is.
Foreldri eða kennari kvitta á hvern
miða og svo verður miðinn settur
í lestrarkassa sem er staðsettur á
skólasafninu í hverjum skóla. Því
fleiri bækur sem börnin lesa því
fleiri miða eiga þau í pottinum. Þá
er það nýlunda í ár að hljóðbækur,
eða ef einhver les fyrir barnið, telj-
ast með sem lesin bók. „Það skiptir
engu máli hvort bókin sem er les-
in sé löng eða stutt, teiknimynda-
saga, Myndasögusyrpa eða skáld-
saga - bara svo lengi sem börnin
lesa. Sömuleiðis skiptir tungumál-
ið sem bókin er á ekki máli. Bæk-
urnar mega vera á íslensku, dönsku,
frönsku, pólsku, japönsku, ensku
o.s.fv. - bara svo lengi sem börnin
lesa,“ segir Ævar.
mm
Lestrarátak til að búa
til nýja bókaorma
Hin söngelska fjölskylda úr Borg-
arnesi; Theodóra Þorsteinsdóttir
og Olgeir Helgi Ragnarsson ásamt
dætrum sínum þeim Sigríði Ástu og
Hönnu Ágústu, brugðu út af van-
anum að þessu sinni og héldu ár-
lega jólatónleika sína á Kanarí-
eyjum. Eins og lesendur Skessu-
horns þekkja hafa þau á undan-
förnum árum boðið upp á tón-
leika í Borgarneskirkju í aðdrag-
anda jóla. Troðfyllt kirkjuna með
söng og skemmtilegheitum. Nú brá
hins vegar svo við að fjölskyldan
var stödd erlendis og hélt jólatón-
leikana í kirkju sem nefnist Templo
Ecumenico, eða Sænska kirkjan, og
er á Ensku ströndinni á Gran Kan-
arí. Fóru tónleikarnir fram síðast-
liðið miðvikudagskvöld og var þétt
setinn bekkurinn. Þar sem Ingi-
björg Þorsteinsdóttir gat ekki ver-
ið á staðnum til undirleiks fékk fjöl-
skyldan José María Curbelo píanó-
leikara og píanókennara við tón-
listarháskólann í Las Palmas til að
annast undirleik. Fundu hann ein-
faldlega á Google og settu sig í
samband við hann. Olgeir Helgi
segir píanóleikarann hafa staðið sig
frábærlega.
Að sögn tónleikagesta tókst flutn-
ingurinn afar vel og setti hátíðlegan
brag á jólin hjá fjölmörgum Íslend-
ingum sem dvöldu ytra yfir hátíð-
irnar. mm
Héldu jólatónleika sína á
Kanarí að þessu sinni
Fjölskyldan ásamt José María Curbelo píanóleikara. Ljósm. sil.
Sauðfjárbónda í Dölum
Dag ur í lífi...
Nafn: Bjarni Hermannsson.
Fjölskylduhagir/búseta: Ég
bý með aldraðri móður minni á
Leiðólfsstöðum og á hjákonu í
Búðardal.
Starfsheiti/fyrirtæki: Bóndi á
Leiðólfsstöðum í Laxárdal.
Áhugamál: Að vera í sauðfjárbú-
skap.
Fimmtudagurinn 29. desember.
Klukkan hvað vaknaðirðu og
hvað var það fyrsta sem þú
gerðir? Ég vaknaði klukkan hálf
átta og það fyrsta sem ég geri á
morgnanna er að fara á klósettið
og tannbursta mig. Svo fæ ég mér
eina brauðsneið og fer í fjárhúsin.
Hvað borðaðirðu í morgun-
mat? Ég fékk mér brauðsneið.
Ég fæ mér oftast eina eða tvær,
fæ mér þá samloku. Set brauðið í
ristina og borða það með smjöri
og osti á milli. Það er það sem ég
ét oftast áður en ég fer í fjárhúsin.
Hvenær fórstu til vinnu og
hvernig? Ég fór á bílnum. Ég
fór labbandi um daginn og datt á
hausinn í hálku en oftast fer ég á
bílnum. Það er alveg eins gott að
fara á bílnum eins og að detta á
hausinn! Ég var kominn í fjárhús-
in klukkan átta og var þar hátt í
tvo tíma. Var búinn um tíu leytið
en er oftast í einn og hálfan tíma.
Fyrstu verk í vinnunni: Það er
að byrja að sópa jöturnar og gefa
rollunum heyið, auðvitað.
Hvað varstu að gera klukk-
an 10? Ég fer oftast í kaffi í KM
klukkan tíu en sleppti því þennan
dag af því að ég var lengur í fjár-
húsunum.
Hvað gerðirðu í hádeginu? Ég
er nú oftast bara heima hjá mér að
éta í hádeginu.
Hvað varstu að gera klukkan
14: Þá fór ég í Búðardal í bankann
að borga reikninga og skrapp svo
að hitta Sæmund í Vegagerðinni.
Hvenær hætt og það síðasta
sem þú gerðir í vinnunni? Það
síðasta sem ég gerði í vinnunni
var að gefa rollunum seinnipart-
inn. Ég reyni oftast að vera kom-
inn inn um sjö leytið.
Hvað gerðirðu eftir vinnu?
Horfði á fréttirnar og sjónvarpið,
geri helst ekkert á kvöldin.
Hvað var í kvöldmat og hver
eldaði? Mamma eldar bæði
kvöldmat og hádegismat. Ég fékk
steiktan lax og kartöflur í hádeg-
inu en í kvöldmat fékk ég mér
bara AB mjólk og Cheerios bland-
að saman.
Hvernig var kvöldið? Ég horfði
bara á sjónvarpið og fór svo að
sofa.
Hvenær fórstu að sofa? Ég fór
að sofa um hálf ellefu.
Hvað var það síðasta sem þú
gerðir áður en þú fórst að
hátta? Horfði á fréttirnar og
veðrið, fékk mér eitt mjólkurglas
og eina kökusneið.
Hvað stendur uppúr eftir dag-
inn? Ekkert sérstakt.
grþ/ Ljósm. sm.