Skessuhorn - 04.01.2017, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 201716
Sú skemmtilega hefð hjá Björgunar-
sveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ um
áramót að koma friðarkertum fyrir
í klettunum meðfram þjóðveginum
undir Ólafsvíkurenni var endurvak-
in nú í ár. En þetta hefur ekki ver-
ið gert í nokkurn tíma. Lýsti björg-
unarsveitarfólk upp leiðina á mjög
fallegan hátt og skapaði skemmti-
lega stemningu þegar ljósið endur-
kastaðist af grýlukertum og svört-
um hamrinum. þa
Friðarkerti lýstu upp
Ólafsvíkurenni
Samband íslenskra kristniboðs-
félaga í samstarfi við Póstinn safn-
ar nú notuðum frímerkjum. Heiti
verkefnis er: „Hendum ekki verð-
mætum!“ Söfnunin stendur til 31.
janúar 2017 og er tekið við frí-
merkjum og umslögum á pósthús-
um um land allt. Skorað er á ein-
staklinga og fyrirtæki að skila not-
uðum frímerkjum í safnkassa sem
eru á öllum pósthúsum. Æskilegt
er að fá frímerkin á umslögum en
einnig er tekið við frímerkjum á af-
rifum og stökum frímerkjum.
Ágóðinn fer til menntunar barna,
unglinga og fullorðinna í Eþíópíu
og Keníu auk menntunar barna í
flóttamannabúðum í Mið-Austur-
löndum í gegnum skólasjónvarp.
Árið 2016 skilaði frímerkjasöfn-
un Kristniboðssambandsins um 3,8
milljónum króna. Þeir fjármunir
voru m.a. notaði til að byggja fram-
haldsskóla í Pókot í Keníu, styðja
fátæk börn í Addis Abeba, höfuð-
borg Eþíópíu og kenna fullorðnum
að lesa í Suður-Eþíópíu.
mm
Notuðum frímerkjum
safnað til hjálparstarfs
52 nemendur voru brautskráð-
ir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
21. desember síðastliðinn. Við at-
höfnina flutti Dröfn Viðarsdótt-
ir annál, Elínborg Egilsdóttir ný-
stúdent flutti ávarp fyrir hönd út-
skriftarnema og Sævar Freyr Þrá-
insson fyrrum nemandi skólans
flutti ávarp. Hrefna Berg Péturs-
dóttir hlaut viðurkenningu skólans
fyrir bestan árangur á stúdentsprófi
á haustönn 2016. Við athöfnina
fluttu útskriftarnemarnir Hjördís
Tinna Pálmadóttir, Hrefna Berg
Pétursdóttir, Margrét Brandsdóttir,
Ólafía Laufey Pétursdóttir og Sig-
urlaug Rún Hjartardóttir nokkur
lög. Þær fluttu einnig nokkur jóla-
lög fyrir athöfnina ásamt Birgi Þór-
issyni sem lék undir á píanó. Ágústa
Elín Ingþórsdóttir skólameistari
ávarpaði útskriftarnemendur í lok-
in og óskaði þeim gæfu og velfarn-
aðar.
Viðurkenningar:
Eftirfarandi nemendur hlutu verð-
laun og viðurkenningar fyrir góð-
an námsárangur og störf að félags-
og menningarmálum. Nöfn þeirra
sem gáfu verðlaun eru innan sviga.
Alexandra Bjarkadóttir fyrir
ágætan árangur í félagsgreinum
(Verkalýðsfélag Akraness); fyrir
ágætan árangur í íþróttum (Omnis
Verslun) og fyrir ágætan árangur í
þýsku (Þýska sendiráðið).
Atli Vikar Ingimundarson fyrir
góð störf að félags- og menning-
armálum (Minningarsjóður Karls
Kristins Kristjánssonar).
Bakir Anwar Nassar fyrir ástund-
un og framfarir í námi (Norður-
ál).
Dóra Marín Karvelsdóttir fyrir
ágætan árangur í frönsku (Íslands-
banki á Akranesi).
Elínborg Egilsdóttir fyrir ágæt-
an árangur í raungreinum (Gáma-
þjónusta Vesturlands) og fyrir góð
störf að félags- og menningarmál-
um (Minningarsjóður Karls Krist-
ins Kristjánssonar).
Elmar Gísli Gíslason fyrir góð
störf að félags- og menningarmál-
um (Minningarsjóður Karls Krist-
ins Kristjánssonar).
Finnur Ari Ásgeirsson fyrir góð
störf að félags- og menningarmál-
um (Minningarsjóður Karls Krist-
ins Kristjánssonar).
Harpa Rós Daníelsdóttir fyrir
ágætan árangur í dönsku og þýsku
(FVA).
Hjördís Tinna Pálmadóttir fyrir
ágætan árangur í íslensku og sögu
(Penninn Eymundsson Akranesi);
fyrir ágætan árangur í stærðfræði
(Elkem Ísland) og fyrir ágætan ár-
angur í þýsku (Þýska sendiráðið).
Hrefna Berg Pétursdóttir fyr-
ir ágætan árangur í félagsgreinum
(Rótarýklúbbur Akraness); fyrir
ágætan árangur í íslensku (Lands-
bankinn á Akranesi) og fyrir ágætan
árangur í dönsku og þýsku (FVA).
Ólafía Laufey Steingrímsdóttir
fyrir ágætan árangur í íslensku og
félagsgreinum (Soroptimistasystur
á Akranesi) og fyrir ágætan árangur
í þýsku (Þýska sendiráðið).
Óli Heiðar Arngrímsson fyr-
ir ágætan árangur í rafiðngreinum
(Meitill og GT Tækni).
Sólrún Sigþórsdóttir fyrir ágætan
árangur í félagsgreinum (Íslands-
banki á Akranesi).
Þórey Petra Bjarnadóttir fyrir
ágætan árangur í íslensku (Norður-
ál) og fyrir ágætan árangur í stærð-
fræði (Skaginn).
fva/grþ/ Ljósm. Myndsmiðjan/
Guðni Hannesson.
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla
Vesturlands á Akranesi
Útskriftarhópurinn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara.
Hrefna Berg Pétursdóttir hlaut viðurkenningu skólans fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2016. Hér er hún
ásamt Ágústu Elínu Ingþórsdóttur skólameistara.