Skessuhorn - 04.01.2017, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2017 7
MINNA MÁL
MEÐ SAGAPRO
VINSÆL VARA VIÐ TÍÐUM ÞVAGLÁTUM
„SagaPro hefur gagnast mér fyrst og fremst
þannig að lífsgæðin eru betri, ekki sífelldar
áhyggjur af því hvar næsta salerni sé að finna
og svefninn er betri af sömu ástæðum. Lífið
er einfaldara með SagaPro.“
Helga Arnardóttir 45 ára, húsmóðir
Fæst í helstu apótekum og matvöruverslunum
„SagaPro hefur aukið mína hvíld með
órofnum nætursvefni og ég er einnig
alveg laus við tíð þvaglát á daginn.“
Bjarni Grímsson, 61 árs framkvæmdastjóri
Vancouver, Whistler & Victoria
sp
ör
e
hf
.
Vor 4
Í þessari ferð okkar vestur á Kyrrahafsströnd er margt að sjá
og upplifa. Stórborgin Vancouver hefur upp á ótalmargt að
bjóða og munum við heimsækja hinn fallega Stanley Park,
markaðina á Granville Island, sigla yfir á Vancouvereyju og
líta merkasta skrúðgarð veraldar, Butchart Gardens ásamt
því að halda upp í fjöllin til Whistler. Njóttu dásamlegrar
vorkomu á Vesturströndinni.
20. apríl - 2. maí
Fararstjóri: Jónas Þór
Bókaðu núna á baendaferdir.is
Sími 570 2790 | bokun@baendaferdir.is | Síðumúla 2, 108 RVK
Verð: 288.400 kr. á mann í tvíbýli.
Mikið innifalið!
Þegar líður að áramótum hefur
lengi tíðkast hér á landi að kaupa
flugelda og kveðja gamla árið með
hvelli. Margir hafa mjög gaman af
flugeldunum og björgunarsveitir
landsins hafa alla tíð verið stærsti
innflutnings- og söluaðili á flug-
eldum. Í aðdraganda flugeldasölu
björgunarsveitanna fyrir nýafstað-
in áramót ræddi Skessuhorn við
Ásgeir Sæmundsson hjá Björgun-
arsveitinni Brák í Borgarnesi, en
hann hafði umsjón með flugelda-
sölu sveitarinnar líkt og undanfar-
in ár. Greinin birtist á vef Skessu-
horns. Þar ræddi Ásgeir gang
flugeldasölunnar og brýndi fyrir
fólki að fara varlega við meðferð
skotelda. En jafnframt lýsti hann
áhyggjum sínum þess efnis því að
björgunarsveitirnar gætu átt von á
miklu tekjutapi á komandi árum.
Þó að sala á neyðarkallinum hafi
komið sterk inn undanfarin ár tel-
ur Ásgeir, gróflega áætlað, að hjá
flestum sveitum standi flugelda-
salan enn undir á bilinu 85-90%
tekna. Hann kveðst hins vegar
hafa áhyggjur af þessari stærstu
fjáröflunarleið björgunarsveit-
anna til framtíðar. Ástæðan er
sú að breytingar á reglugerð um
skotelda taka gildi á nýja árinu,
skv. Evróputilskipun.
Stærstu vörurnar
teknar út af markaði
Breytingin á tilskipuninni fel-
ur í sér að allir flugeldar þurfa
að uppfylla svokallaða CE-stöðl-
un og framleiðendur og innflytj-
endur skulu hafa lagað sig að nýj-
um reglum eigi síðar en 15. janúar
næstkomandi. Samkvæmt reglu-
gerðinni má ekki lengur selja
þá skotelda sem falla í fjórða og
kraftmesta flokk flugelda sem
Landsbjörg selur. Í umfjöllun
Morgunblaðsins um málið í des-
ember segir að í þeim flokki sé 21
tegund af skottertum og bomb-
um sem Landsbjörg selur undir
yfirheitinu „Bardagar og risatert-
ur“. Landsmenn kannast ef til vill
við skotkökurnar Örlygsstaðabar-
daga, Ingólfsbardaga, Hauganes-
bardaga og Víg Snorra Sturluson-
ar. Allar falla þær undir þennan
fjórða flokk skotelda og verða því
ekki fáanlegar að ári. „Mér skilst
að það sem ekki selst af þess-
um stærstu tertum í ár megum
við nota í sýningar næstu tvö ár,“
segir Ásgeir og telur víst að þetta
feli í sér tekjutap fyrir björgunar-
sveitirnar. „Mín tilfinning er sú að
þetta verði upphafið að endinum.
Ég held það sé ljóst að við mun-
um tapa á þessu og flugeldasala
muni dragast saman í framtíðinni.
Hvort sem það tekur fimm ár eða
tíu þá skerðir það verulega okkar
möguleika þegar kemur að þessari
aðal fjáröflun björgunarsveitanna
að það falli út allar stærstu og
flottustu vörurnar,“ segir hann.
kgk
Spáir upphafi að endalokum flugeldasölu
Hefð er fyrir því á Íslandi að gamla árið sé kvatt með því að skjóta upp flugeldum.
Hér þjóta nokkrir slíkir á loft við Englendingavík í Borgarnesi. Ljósm. úr safni.
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is